Skólavarðan - 01.03.2003, Blaðsíða 2
Afmælismálþing
Félag tónlistarskólakennara átti 20 ára afmæli 21. nóvember síðastliðinn og heldur af því
tilefni málþing á vordögum. Nú þegar kjarasamningar tröllríða ekki lengur starfsemi
félagsins gefst stjórn þess færi á að sinna faglegu hlutverki sínu en atorkusemi á því sviði
mun nýtast okkur vel við næstu kjarasamningagerð.
Á málþinginu mun dr. Þórir Þórisson draga upp mynd af þróun tónlistarkennslu á Ís-
landi og nokkrir valdir fyrirlesarar rýna í stöðuna eins og hún er nú, fjalla um stöðu tónlist-
arfræðslu og tengd málefni, ásamt því að líta til framtíðar.
Ný könnun
Undanfarna mánuði hefur stjórn félagsins unnið að gerð könnunar sem tekur til starfa
tónlistarkennara og þjónustu og umfangs tónlistarskóla. Könnun á svipuðum nótum var
gerð árið 1989 og er því orðið tímabært að endurtaka leikinn til að auðvelda yfirsýn og mat
á þróun mála í tónlistarskólum. Slíkar upplýsingar koma til með að verða styrkur fyrir tón-
listarskólana á margvíslegan hátt, ekki hvað síst í ljósi þess að víða þrengir að þeim með
harðnandi samkeppni um fjármagn sveitarfélaga sem mörg hver standa höllum fæti.
Allvíða hefur fjármagn til reksturs tónlistarskóla verið skorið niður eða staðið í stað þrátt
fyrir mikla fólksfjölgun og aukna eftirspurn eftir tónlistarnámi. Í nokkrum sveitarfélögum
hafa menn gripið til þess að samreka tónlistarskóla og grunnskóla og er skólastjóra grunn-
skólans falin yfirstjórn beggja skólagerða. Síðastliðið haust leitaði stjórn Kennarasambands
Íslands eftir lögfræðilegu áliti lögmanns KÍ á samrekstri leik-, tónlistar- og grunnskóla. Til
að gera langa sögu stutta þá komst lögmaðurinn að þeirri niðurstöðu að slík aðgerð væri
ólögmæt. Stjórn FT sendi bæði menntamálaráðuneyti og Sambandi íslenskra sveitarfélaga
álitsgerðina til skoðunar.
Að læra að kenna
Stjórn félagsins hefur undanfarið einnig fengið að fylgjast með annarri könnun sem nem-
endur í blásarakennaradeild Tónlistarskólans í Reykjavík eru að vinna að undir handleiðslu
dr. Þóris Þórissonar, „Að læra að kenna: Hvernig hefur menntun tónlistarkennara nýst
þeim í starfi?“ Tilgangurinn með þessari rannsókn er að kanna viðhorf tónlistarkennara,
sem luku námi frá hljóðfærakennaradeildum Tónlistarskólans í Reykjavík á árunum 1991 til
2000 og hafa starfað í a.m.k. þrjú ár við tónlistarfræðslu, til þess hvernig menntun þeirra
hefur nýst þeim í starfi og hvaða hugmyndir þeir hafa um æskilegt inntak tónlistarkennara-
menntunar.
Fyrri könnunin, sem nefnd er hér að ofan og er gerð af FT, var send út til tónlistarskóla
7. mars sl. og er skilafrestur til 24. mars. Niðurstöður hennar verða kynntar á afmælis-
málþingi félagsins í vor en einnig verður sagt frá niðurstöðum seinni könnunarinnar sem
hér er getið ef framkvæmd og úrvinnslu verður lokið.
Þjóðfélagið er í stöðugri þróun, hlutir taka sífelldum breytingum og viðmiðin eru ýmist
sótt í nánasta umhverfi okkar eða út fyrir landsteinana. Því er mikilvægt að málsvarar og
hagmunaaðilar tónlistarfræðslu í landinu séu vel upplýstir og meðvitaðir um stöðu mála í
umhverfi sínu til að vera sem best í stakk búnir til að taka þátt í og vera leiðandi í stefnu-
mörkun þessara mála til framtíðar.
Afmælismálþing Félags tónlistarskólakennara er hugsað bæði sem vettvangur til að miðla
upplýsingum og til skoðanaskipta. Málþingið verður auglýst nánar þegar nær dregur.
Kennarakveðjur,
Sigrún Grendal
Formannspist i l l
3
Höfum við gengið til góðs
götuna fram eftir veg?