Skólavarðan - 01.03.2003, Side 4
Breyttir tímar kalla á nýjar lausnir. Þetta var boðskap-
ur UT 2003 ráðstefnunnar sem haldin var á Akureyri
28. febrúar - 1. mars sl. Boðskapurinn á fullan rétt á
sér og honum þarf að fylgja eftir, enda eru lausnirnar
fyrir hendi og svo virðist sem stjórnendur séu einnig
að opna augun fyrir breyttum áherslum dagsins í
dag.
Ég undirritaður stóð frammi fyrir því verkefni fyrir tveimur
árum að „upplýsingatæknivæða“ skóla sem stóð illa hvað þau mál
varðaði. Við mér blasti fremur hrörleg tölvuaðstaða en þó um leið
áhugasamir stjórnendur og starfsmenn sem einfölduðu vandaverk-
ið og gerðu það ánægjulegt. Með samstilltu átaki tókst að gera
miklar breytingar á kennslu í tölvugreinum, tölvubúnaður var end-
urnýjaður, allir nemendur fengu heimasíðusvæði og tölvupóstfang
og tóku nú virkan þátt í upp-
byggingunni. Því fylgdi jafn-
framt breyttur hugsunarhátt-
ur starfsfólks sem tileinkaði
sér nýjar aðferðir við
kennslu, nýtti vefinn,
kennsluhugbúnað og annað
tölvutengt efni til að skila
efni til nemenda í takt við
nýja tíma.
Túss- og korktöflur viku
Eitt af því sem breytti umtalsverðu var nýtt vef- og póstkerfi
skólans. Margir töldu verkefnið vera dýrt í framkvæmd, erfitt og
jafnvel óvinnandi verk þegar um svo marga nemendur væri að ræða
(300 í þessu tilfelli). Með því að nýta til verksins einfaldan en um
leið fullkominn hugbúnað var búið að láta alla nemendur fá heima-
svæði og netfang á örfáum vikum og áhyggjur gærdagsins því
óþarfar. Starfsmenn fengu aðgang að sama kerfi og gátu þar með
skilað efni til nemenda á tölvutæku formi og tekið við með sama
hætti. Þetta jók að sjálfsögðu um leið fjölbreytni í verkefnaskilum
þar sem nemendur gátu nú skilað efni út á vefinn með einföldum
hætti.
Segja má að gerðar hafi verið gagngerar endurbætur á upplýs-
ingakerfi skólans. Þó mætti spyrja hvort eiginlegt upplýsingakerfi
hafi verið til fyrir þennan
tíma. Túss- og korktöflur
viku fyrir rafrænum töflum
af sömu tegund og sjón-
varpsskjám var komið fyrir
víða um skólann til að koma
síbreytilegu efni til upplýs-
ingaþyrstra nemenda. Upp-
færsla kerfisins var ekki
lengur í höndum ritara skól-
ans heldur þeirra fjölmörgu
einstaklinga sem koma að
skólastarfinu. Með einfaldri
tækni gátu nú forsvarsmenn
félagsmiðstöðvar, kirkjustarfs, nemendaráðs og
ekki síst starfsmenn skólans uppfært rafrænar
glærur í rauntíma og þess á milli sá tölvutæknin
um að uppfæra fréttir, veður og aðrar síbreytileg-
ar upplýsingar sjálfvirkt. Með þessu móti birta
upplýsingaskjáir nýjar fréttir á degi hverjum og
hægt er að nálgast þær hvar sem er, hvenær sem
er. Á sama einfalda hátt var upplýsingatafla starfs-
manna nú færð í vef- og póstkerfi skólans og því
létt verk að skoða tilkynningar í gegnum netið.
Það var ekki síður mikilvægt að fá starfsmenn til
að taka þátt í verkefninu en nemendur.
Sjónvarpsstjóri skólans
Fljótlega var stofnuð sjónvarpsnefnd en hún sá
um að uppfæra ákveðnar upplýsingar á skjám
skólans og halda úti vikulegum fréttatímum,
skipuleggja dagskrá og um leið að gera upplýsing-
arnar „unglingavænni“ en fyrr. Þá má ekki heldur
gleyma því veigamikla embætti sem sjónvarps-
stjóri skólans sinnir, en sjálfsagt njóta fáir slíkrar
„hylli“ sem embættið veitir nema e.t.v. formaður
nemendaráðs.
Þó er mikilvægt að ekki sé horft á þessa tækni-
byltingu með augum kerruhestsins heldur er
markmiðið að tengja allar námsgreinar upplýs-
ingatækninni. Eitt dæmi um slíka samtengingu
var samvinnuverkefni myndmennta-, smíða- og
upplýsingatæknikennara. Í sameiningu var smíð-
aður upplýsingastandur með tölvuskjá og mynd-
skreyttur af nemendum. Nemendur í upplýsinga-
tækni hönnuðu svo hugbúnað sem þeir létu birtast
Ges
task
r i f 5
Framtíðarskólinn
Uppfærsla kerfisins var ekki lengur í höndum ritara
skólans heldur þeirra fjölmörgu einstaklinga sem
koma að skólastarfinu. Með einfaldri tækni gátu nú
forsvarsmenn félagsmiðstöðvar, kirkjustarfs, nem-
endaráðs og ekki síst starfsmenn skólans uppfært raf-
rænar glærur í rauntíma og þess á milli sá tölvutæknin
um að uppfæra fréttir, veður og aðrar síbreytilegar
upplýsingar sjálfvirkt.