Skólavarðan - 01.03.2003, Side 5
Ges
task
r i f6
á skjánum og tengdu efnið upplýsingaskjánum sem áður voru
nefndir. Breyttir tímar umturnuðu einnig hinu hefðbundna árlega
skólablaði og úr varð vefrit sem uppfært var daglega og sótti í sig
veðrið, einkum vegna þess breytta hugsunarháttar sem unglingar
lifa eftir nú á dögum. Það er ekki óeðlilegt að nemendur stæli vef-
miðla nútímans eins og ritmiðla gærdagsins hér áður fyrr og er það
vel, kærkomið framfaraskref sem undirbýr ritstjórn framtíðarinnar
á þroskaðan hátt.
Hvað er það sem gerir skóla upplýsingatæknivæddan?
Ég var spurður þeirrar spurningar fyrir skömmu hvað þyrfti til
að upplýsingatæknivæða skóla. Ég þurfti að hugsa mig um í smá-
stund áður en ég gat svarað spurningunni. Það er nýjungagirni
þeirra sem halda um stjórntauminn, en ekki einungis starfsfólks
skólans, að væða hann upplýs-
ingatækni og færa í nútíma-
legra horf. Breyttur hugsunar-
háttur gerir kröfur um breytt
starfsumhverfi sem uppfyllir
þarfir markaðarins.
Jafnvel þótt vel hafi tekist til
með verkefnið sem lýst var hér
að ofan er ennþá langt í land.
Engum lokapunkti verður náð
þótt daglega komi fram nýj-
ungar í þessu ört breytilega
umhverfi skólanna. Þó þyrftu
allir skólar að setja sér mark-
mið í þessum málum á hverju
ári svo að þeir dragist ekki aft-
ur úr og verði „gamaldags“, en
æ algengara er að nemendur
taki fyrr í taumana en starfsmenn og yfirmenn þessara skóla. Það er
ekki endilega við þá síðarnefndu að sakast en þeim mun meiri
ástæða fyrir þá að leita til nemenda til að finna upp og framkvæma
nýjungar til þess að mæta væntingum þeirra.
Því fórum við í gang með námskeið undir nafninu „Hvað ungur
temur gamall nemur“. Þar spiluðu nemendur stóra rullu og kenndu
eldri borgurum réttu handtökin líkt og þeir eldri höfðu áður gert.
Verkefnið heppnaðist vel, nemendur kenndu og fyrrum kennarar,
skólastjórar og fleiri lærðu nýja tækni og undruðust framfarirnar í
hverri kennslustund. Þau eldri og heldri urðu nú að aðlaga sig
breyttu umhverfi sem þau yngri taka sem sjálfsögðum hlut.
Er þessi hátæknivæðing óyfirstíganleg fyrir hinn gamla klassíska
skóla sem við flest höfum þekkt fram til dagsins í dag? Nei, það er
langt í frá. Einföld tól og tæki gera þetta framfaraspor auðveldara
en nokkurn tíma fyrr og ef þú, lesandi góður, ert ennþá í vafa
skaltu senda undirrituðum póst og leita svara. Ég setti mér það tak-
mark að finna hentugustu lausnirnar á þeim tíma sem ofangreind
uppbygging fór fram og vil miðla þeirri þekkingu sem víðast og
heyra af sem flestu sem er að gerast.
Hagkvæmar lausnir framar öllu
En verkinu var hvergi lokið. Svo stórtækar breytingar taka lang-
an tíma og því ekki seinna vænna en að taka „fyrsta skrefið“. Þótt
starfsmenn og nemendur taki tækninni fagnandi tekur langan tíma
að laga starfsumhverfi og kennsluhætti að þessum nýju og breyttu
tímum. Einhver sagði að hamingjan kæmi í smáum skömmtum.
Þessi nýfengna hamingja er kærkomin á hvaða vinnustað sem er en
hverfur fljótt ef aðstaðan er ekki í lagi. Því er mikilvægt að stjórn-
endur og ekki síst forsvarsmenn sveitarfélaga séu vakandi fyrir
brýnni þörf skóla og stofnana og veiti þeim það fjármagn sem til
þarf um leið og aðhald er viðhaft. Aðhald þarf ekki endilega að
þýða niðurskurður í innkaupum heldur hagkvæmar lausnir framar
öllu. Allt of oft sé ég stjórnendur eyða umtalsverðum fjármunum í
kostnaðarsamar framkvæmdir án þess að kynna sér mun ódýrari
lausnir og oftar en ekki vegna fákunnáttu á sviði tölvutækninnar.
Allt of margir leita ráða hjá stóru tölvufyrirtækjunum án þess að
ráðfæra sig við þá sem einnig hafa mikla reynslu á þessu sviði og
þessum stóru fyrirtækjum er oft hætt við að aðhyllast stórar vöru-
merkjalausnir sem ekki eru endilega í hag, nema þá kannski fyrir
söluaðilann. Oft má nálgast ódýrari hugbúnaðarlausnir, jafnvel
ókeypis, í stað þeirra sem krefjast hárra notkunargjalda og áskrifta.
Að auki geta kennarar nú komið eigin kennsluefni á framfæri í
gegnum netið og jafnvel haft tekjur af og um leið unnið verkefni í
samvinnu þar sem allir leggj-
ast á eitt að semja efni sem
margir geta notað.
Framtíðin er rafræn. Við
munum í æ meiri mæli skipta
út „gamaldags“ tólum og
tækjum fyrir rafrænar lausnir
sem einfalda nútíma nemand-
anum að upplifa, skynja og
læra hluti með aðferðum sem
okkur fundust fjarlægar fyrir
ekki svo löngu síðan. Kyn-
slóðin sem við kennum nú
hefur tileinkað sér aðra tækni
til lærdóms, tækni sem bygg-
ist á margmiðlun og gerir
kröfur. Með hugbúnaði á
borð við t.a.m. Mediator geta
kennarar nú á þægilegan hátt framleitt margmiðlunarkennsluefni
fyrir kröfuharða nemendur án þess þó að þurfa að læra og tileinka
sér forritun. Einföld en öflug vef- og póstkerfi gera nemendum og
kennurum kleift að skiptast á verkefnum og lesefni. Allt þetta
stuðlar að breyttri upplifun á námsefni og pappírslausu skólaum-
hverfi.
Á morgun kemur nýr dagur.
Skólaumhverfi morgundagsins verður að mínu mati fjarvinnu-
vænna en það er í dag. Nemendur munu ráða tíma sínum og skipu-
leggja námið á annan hátt en hið hefðbundna skólaumhverfi gerir
nú. Með þessu móti geta kennarar kennt stærri hóp í einu sem gef-
ur þ.a.l. meiri möguleika á að kennarar geti sérhæft sig á ákveðnum
sviðum námsefnisins. Með aukinni tölvunotkun og fartölvuvæð-
ingu geta nemendur nú sótt fyrirlestra í gegnum netið með hljóði
og mynd og skipst þar á spurningum og svörum í umræðuhópum í
rauntímasambandi við kennara. Verkefnaskil verða framkvæmd
gegnum netið og rafrænar skólabækur leysa pappírinn af hólmi.
Við erum óðum að stíga skref í þessa átt og fjölbreytilegt kennslu-
efni íslenskra kennara á netinu endurspeglar þessa þróun. Kennarar
hafa tekið tækninni opnum örmum og með jákvæðu hugarfari
þeirra og stjórnenda eru fjölbreytt verkefni og spennandi tímar
framundan.
Frosti Heimisson
frosti@go.is
Höfundur er eigandi og framkvæmdastjóri go.is internetlausna,
sem sérhæfir sig í netlausnum fyrir skóla og stofnanir.
Hann hefur einnig starfað sem kennari í grunnskólum,
Kennaraháskóla Íslands og víðar.
Þótt starfsmenn og nemendur taki tækninni fagnandi
tekur langan tíma að laga starfsumhverfi og
kennsluhætti að þessum nýju og breyttu tímum. Ein-
hver sagði að hamingjan kæmi í smáum skömmtum.
Þessi nýfengna hamingja er kærkomin á hvaða
vinnustað sem er en hverfur fljótt ef aðstaðan er
ekki í lagi. Því er mikilvægt að stjórnendur og ekki
síst forsvarsmenn sveitarfélaga séu vakandi fyrir
brýnni þörf skóla og stofnana og veiti þeim það fjár-
magn sem til þarf um leið og aðhald er viðhaft.