Skólavarðan - 01.03.2003, Side 8
Það sem af er árinu hefur hver ráðstefnan
um skólamál rekið aðra og þær eiga það
sammerkt að efni þeirra tengist að hluta
eða öllu leyti því hvert við erum - og ætlum
okkur - að stefna í menntamálum. Ráð-
stefnan sem gaf tóninn var reyndar haldin
erlendis og þjófstartaði umræðunni á þessu
ári með því að vera haldin í desember
á síðastliðnu ári. Þetta er ráðstefnan
Morgendagens skole í Norden, sem haldin var
í Osló 5. og 6. desember sl., en Norðmenn
áttu frumkvæðið að henni í tilefni af því að
þeir hafa tekið við formennsku í Norrænu
ráðherranefndinni. Aðalmarkmiðið var
framlag til norrænnar menntastefnu í formi
umræðu um þau verkefni sem staðið er
frammi fyrir í menntamálum á Norður-
löndum, með sérstöku tilliti til upplýsinga-
tækni. Ráðstefnan var vel sótt og heppnað-
ist einnig vel að mati þeirra er hana sóttu. Í
umfjöllun okkar beinum við sjónum að
Gerði G. Óskarsdóttur sem var einn aðal-
fyrirlesara á ráðstefnunni auk þess sem við
vitnum í erindi Linu Winkler frá sænsku
nemendasamtökunum.
Annar nemandi kemur einnig við sögu í
umfjöllun okkar um skóla framtíðarinnar,
Guðrún Þengilsdóttir nemandi í MA, sem
var einn þriggja aðalfyrirlesara á UT - ráð-
stefnunni á Akureyri mánaðamótin febrúar
-mars. Við segjum líka frá erindum hinna
aðalfyrirlesaranna tveggja, Jóhanns Guðna
Reynissonar og Johan Strid, og í síðari
tölublöðum Skólavörðunnar á þessu ári er
ekki ólíklegt að ýmsu því sem fyrir augu
bar á ráðstefnunni verði gerð nokkur skil.
Auk þessara tveggja stóru ráðstefna, sem
eru þvert á skólastig, hafa verið haldnar
aðrar minni en ekki síður forvitnilegar. Í
janúarlok var haldin ráðstefnan „Umhverfi
sem hvetur til náms“ í húsnæði Kennarahá-
skóla Íslands en hún var samvinnuverkefni
menntamálaráðuneytis og Landsskrifstofu
Leonardó og Sókratesar. Í okkar litla og
hógværa blaði getum við ekki sagt frá öllu
sem markvert er, en þessi ráðstefna er efni-
viður í allslags spennandi umfjöllun þótt
síðar verði.
Í febrúar stendur einn viðburður upp úr
af þeim sem vísa til framtíðarinnar í skóla-
málum, en það er að sjálfsögðu ráðstefnan
og sýningin „Skóli á nýrri öld“ sem við
gerum nokkur skil.
Í febrúar funduðu líka skólastjórnendur
um skil grunnskóla og framhaldsskóla sem
er heitt mál um þessar mundir og að
mörgu að hyggja. Málþingið var haldið í
samvinnu Félags íslenskra framhaldsskóla,
Félags stjórnenda í framhaldsskólum og
Skólastjórafélags Íslands og tilgangur þess
var að efla tengsl grunnskóla og framhalds-
skóla og skýra færar leiðir sem auðvelda
nemendum að stunda nám á báðum skóla-
stigum.
Þegar þetta er skrifað er framundan
námskeið fyrir stjórnendur tónlistarskóla
þar sem kafað verður ofan í viðfangsefnið
mannauðsstefna og mannauðsstjórnun, en
mannauðsstefnan hefur rutt sér til rúms í
skólum undanfarin ár og talið er að áhrifa
hennar muni gæta í síauknum mæli í skóla-
stjórnun og -starfi eftir því sem fram líða
stundir. Einnig er skammt undan námskeið
um þróun mats á skólastarfi í samvinnu
íslenskra og erlendra fræði- og skólamanna
og við munum fylgjast með báðum þessum
viðburðum og segja fréttir af þeim.
Kjaramálin eru sömuleiðis í deiglunni og
svo dæmi sé nefnt sitja trúnaðarmenn og
samstarfsnefndir framhaldsskóla námskeið
um samningagerð sem hófst í febrúar og
verður fram haldið með námskeiðslotum út
vorið 2004. Kjararáð KÍ efndi til málþings
um samningamál í janúar sl. sem markaði
upphaf undirbúnings næstu kjarasamninga
og margir fleiri fundir hafa verið haldnir
eða eru í væntanlegir um allt land á vegum
aðildarfélaga Kennarasambandsins og
svæðafélaga og -deilda um tengd málefni.
Janúarmánuður var einnig tími hinnar
árlegu BETT sýningar í London sem
margir kennarar hafa sótt heim á undan-
förnum árum og svo var einnig í ár.
Af nógu er að taka í ráðstefnu- og funda-
haldi um skóla framtíðarinnar og ef marka
má fjölbreytta flóru á þessum vettvangi er
breytinga að vænta í skólamálum í kjölfar
mikillar umræðu um skóla framtíðarinnar.
keg
Skól i f ramtíðar innar
10
Skóli framtíðarinnar
til umræðu á málþingum, ráðstefnum, fundum og sýningum