Skólavarðan - 01.03.2003, Síða 10

Skólavarðan - 01.03.2003, Síða 10
og verkstjóri en nú er, sem er gjörbreyting á starfinu. Einnig munu kennarar fara að vinna meira saman og deila með sér ábyrgð og sérgreinakennarar munu koma til með að vinna miklu meira með öðrum kennur- um. Ég sé fyrir mér að nemendur muni ferðast á milli vinnustöðva í náminu, vinna saman í hópum og einir sér og eiga sitt heimasvæði á Netinu, enda munu tölvur minnka í sífellu og ef það gengur eftir sem rætt er um verða nemendur með mjúkar tölvur sem þeir geta stungið í vasann.“ Mun þetta ekki leiða til þess að bein sam- skipti nemenda innbyrðis og við kennara verða miklu minni en nú er? „Við munum aldrei hætta að tala saman og vinna saman,“ segir Gerður og hlær. „Ég hef engar áhyggjur af því, ekki frekar en að bókin muni hætta að vera til. Auðvit- að verður áfram mikilvægt í skólastarfi að sjá til þess að nemendur geti tjáð sig.“ Talið berst að hreyfinámi, enda offita barna og þolleysi vaxandi vandamál sem margir hafa áhyggjur af. Er eitthvert rými fyrir hreyfingu í framtíðaskólanum? „Helsta ástæða þessa vanda er ný tíska í mataræði,“ segir Gerður. „Við getum spornað við þessari þróun með því að bjóða hollan, heimatilbúinn mat í skólum, og það er einmitt stefna Reykjavíkurborgar að inn- leiða framleiðslueldhús í öllum grunnskól- um borgarinnar, í stað þess að kaupa mat annars staðar frá. Því lýkur á þessu og næsta ári. Þetta er mikil framsýni af hálfu borgaryfirvalda og sýnir að hugsað er um hag barna til framtíðar. En við verðum að vera á varðbergi. Við vitum að það er tals- vert stór hluti barna sem stundar íþróttir reglulega en einnig er stór hluti sem hreyf- ir sig sáralítið. Þrátt fyrir að námsgreinar verði smám saman mun samþættari hljóta íþróttir alltaf að verða kenndar sérstaklega. Í samtengingu námsgreina verðum við að passa okkur á að ganga ekki of langt.“ Skólinn verður hjarta hverfisins Skólabyggingar, hönnun þeirra og nýt- ing, er annað málefni sem talsvert hefur verið rætt um undanfarið og sem dæmi um nýja hugmyndafræði í tengingu skólaarki- tektúrs og skólastarfsemi má nefna Ingunn- arskóla í Grafarholti. Hvað sér Gerður fyr- ir sér í þessum málefnum? „Já, Ingunn- arskóli vísar til framtíðarinnar en skólarnir með gamla laginu, löngum göngum og jafnstórum kennslustofum, hindra ekki að nýbreytni í skólastarfi geti átt sér stað,“ segir Gerður, „víða er hægt að aðlaga bygginguna breyttum kennsluháttum með tiltölulega litlum tilfæringum. Hlutverk skólabyggingarinnar mun breytast mikið á næstu áratugum og stefna Reykjavíkur- borgar er að skólinn verði hjartað í hverf- inu og nýttur af sem flestum íbúum þess, frá morgni til kvölds, um helgar og á sum- rin. Þetta krefst auðvitað breyttinga á skipulagi og umsjón. Ég á von á að tónlist- arnám verði að einhverju leyti áfram utan grunn- og framhaldsskólans en tónlistar- skólarnir staðsettir það nálægt öðrum skólabyggingum að nemendur geti auð- veldlega farið á milli yfir skóladaginn, enda verða einstaklingsáætlanir ríkjandi. Enn erum við komin skammt á veg með að ein- staklingsmiðað nám en þróunin verður stöðug í þá átt. Ég held að handmennt og listir verði æ mikilvægari í stað þess að bera skarðan hlut frá borði eins og sumir óttast. Litið verður á þetta nám sem leið til að þroska sköpunarhæfileikann sem er mjög mikilvægur í samfélaginu. Auk þess er af- þreyingariðnaðurinn orðinn mjög stór og fólk gerir sífellt meiri kröfur til frítíma og til þess að hann sé innihaldsríkur; listir og handmennt koma þar sterkar inn. Fljótandi skil milli skólastiga Annað sem fylgir í kjölfar einstaklings- miðaðs náms er að skilin milli allra skóla- stiga; leik- og grunnskóla, grunn- og fram- haldsskóla og framhalds- og háskóla, munu verða miklu sveigjanlegri. Þetta mun verða í báðar áttir, samanber almennar deildir í framhaldsskólum þar sem námið er í raun á grunnskólastigi að miklu leyti. Nemendur í grunnskólum eru nú þegar farnir að taka framhaldsskólaáfanga í 10. bekk og þá greiðir grunnskólinn skólagjaldið en nem- endur borga bækurnar. Foreldrar hafa reyndar mótmælt þessu þannig að ef til vill dregur úr þessari þróun um tíma, en ég á von á því að námsgögn á framhaldsskóla- stigi verði nemendum að kostnaðarlausu og þá mun þessi þróun aftur komast á skrið.“ Sérðu fyrir þér breytingar á námsgögnun- um sem slíkum, detta bækurnar út? „Kennslubækur verða áfram til,“ segir Gerður, „þó svo nemendur sæki í annars konar efni samhliða. Námsgögnin verða fjölbreytt og sveigjanleg og þurfa líka að vera það, enda lærir fólk á mismunandi hátt eins og við erum loksins að átta okkur æ betur á.“ keg Frá sjónarhóli nemandans - brot úr erindi Line Winkler frá sænsku nemendasamtökunum á ráðstefnunni Morgendagens skole. Oft og tíðum er tækniþróun hvorki eins byltingarkennd né framandi fyrir nemend- ur og aðra sem starfa í skólanum. Vanda- Skól i f ramtíðar innar 12 • Kröfur neytenda um gæði fram- leiðslu og þjónustu aukast hröðum skrefum. Það hefur mikil áhrif á skól- ann, foreldrar vilja góða menntun fyr- ir börn sín. Mat á útkomu námsins mun því setja aukinn svip á skólann á næstu áratugum. • Í nýja hagkerfinu er færni meira virði en skírteini og lokapróf. Færni geta menn öðlast af reynslunni, gjarnan í hópvinnu. Þess vegna þarf áhersla skóla m.a. að vera á að þjálfa nemendur til að mæta kröfum nýja hagkerfisins í stað þess að leggja megináherslu á prófgráður. • Við trúðum því lengi vel að börn væru saklaus og unglingar óharðnað- ir en nú er öldin önnur, börn kunna ýmislegt fyrir sér og unglingarnir eru veraldarvanir. Allar þessar breytingar hljóta að hafa áhrif á nám og skóla- starf. Í öllum þessum breytileika skipt- ir góð líðan nemenda í skólanum og sveigjanleiki í náminu miklu máli. • Við skipulag kennslu og náms samkvæmt fjölþrepa kennslu eða skóla án aðgreiningar er sama við- fangsefnið eða þemað lagt fyrir hóp nemenda sem getur verið mun stærri en bekkur nú til dags og á mismun- andi aldri. En verkefni einstakling- anna geta verið mjög ólík. • Annað einkenni nýja skólans verð- ur trúlega að hann tengist miklu nán- ar og markvissar umhverfi sínu en áður, grenndarsamfélaginu í víðum skilningi og náttúrunni. Námið fer ekki síður fram utan skólans en innan veggja hans og íbúar í hverfinu og aðilar úr atvinnulífi leggja námi nem- enda lið með margvíslegum hætti, auk þess að nýta sér aðstæður skól- ans í eigin símenntun og frístundum. • Skólastjórinn er faglegur leiðtogi skólastarfsins. Þegar hann var ráðinn var leitað að aðila sem var tilbúinn til að breyta og hugsa hlutina upp á nýtt, en ekki til að stjórna því sem fyr- ir var, eins og áður var gjarnan gert. • Menntun er lykill að velferð, lýð- ræði og hagsæld, segja menn... En menntunin ein getur ekki leyst stærstu vandamál mannkynsins sem eru mismunun í lífsgæðum og að- stöðu. Það eru efnahagsleg og stjórn- málaleg vandamál og þau krefjast efnahagslegra og pólitískra lausna utan við umbætur í skólum. Úr erindinu „Skólastarf á nýrri öld“ sem Gerður flutti á ráðstefnunni í Osló, og síðar var sérprentað og dreift á raðstefnunni „Skóli á nýrri öld“:

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.