Skólavarðan - 01.03.2003, Qupperneq 19
Það lá beinast við að semja
söngleik
Höfundar Frelsis eru Flosi
Einarsson og Gunnar Sturla
Hervarsson. Þeir eru kennarar
við Grundaskóla og hafa tekið
þátt í fjölmörgum verkefnum á
sviði tónlistar og leiklistar, inn-
an skólans og utan. Flosa Ein-
arsson þekkja margir tón-
menntakennarar og þróunar-
starf hans í tónlistarkennslu
með aðstoð tölva, en hann hef-
ur kennt á vinsælu námskeiði
fyrir kennara sem Tónastöðin hefur
haldið um notkun tölva í tónlistar-
kennslu. Flosi hefur einnig verið feng-
inn til að stjórna tónlist í uppfærslum
Skagaleikflokksins og Leiklistarklúbbs
Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi.
Gunnar Sturla hefur leikið með Skaga-
leikflokknum í fjölmörgum uppfærslum,
haldið námskeið í leiklist í Grundaskóla
og bæði samið og leikstýrt skólaleikrit-
um.
Karl Hallgrímsson settist niður með
samkennurum sínum, þeim Flosa og
Sigurði Arnari Sigurðssyni, deildarstjóra
unglingadeildar Grundaskóla, og ræddi við
þá um uppsetningu söngleiksins.
„Við höfum gert ýmislegt í tengslum við
tónlist og leiklist hérna í skólanum en
aldrei neitt af þessari stærðargráðu,“ segir
Flosi. „Við höfum haldið söngvarakeppni
og hljómsveitakeppni með nemendum
skólanna á Akranesi á hverju ári í mörg ár,
gert tilraunir með tónsmíðar, myndbönd
og tölvur í vali í tónmennt, sett upp frum-
samin leikrit á árshátíðum og fleira í þeim
dúr. En okkur hafði lengi langað að fara út
í stærra verkefni. Söngleikur varð fyrir val-
inu vegna þess að hæfileikinn og áhuginn
eru fyrir hendi. Ég er tónmenntakennari,
píanóleikari og upptökumaður; Gunnar
Sturla hefur verið að semja tónlist árum
saman og er þar að auki helsýktur af hinni
alræmdu leiklistarbakteríu. Það lá beinast
við að semja söngleik.“
Hefur leiklist verið sinnt að einhverju
marki í skólastarfinu í Grundaskóla?
„Hér áður fyrr var heilmikið og gott
samstarf við Brekkubæjarskóla um leiklist
og nemendur beggja skóla léku saman í
leikritum undir stjórn Guðbjargar Árna-
dóttur kennara í Brekkubæjarskóla. Svo
dró úr þessu, en þegar Gunnar Sturla
fór að starfa hér setti hann allt í gang og
hefur haldið námskeið og samið eitt leikrit
á ári sem hann hefur svo sett upp með
nemendum.“
En hvers vegna létuð þið af þessu verða
einmitt núna?
„Vegna krakkanna sem eru í unglinga-
deildinni núna,“ svarar Flosi. „Þetta er ein-
stakur hópur að ýmsu leyti en ekki síst
vegna þess hve margir góðir söngvarar eru
í hópnum. Svo hefur það vafalítið haft áhrif
að ég er sjálfur nýkominn úr námsleyfi frá
Bandaríkjunum þar sem ég lærði tónsmíðar
og útsetningar tónlistar fyrir kvikmyndir,
þetta er eiginlega alveg rökrétt framhald af
því.“
Í samræmi við stefnu skólans
„Eitt af aðalmarkmiðum Grundaskóla,“
segir Sigurður Arnar, „er að efla áhuga
nemenda á list- og verkgreinum. Að mati
okkar sem vinnum þar er vellíðan nemenda
forsenda náms. Með því að leggja áherslu á
list- og verkgreinar getum við komið til
móts við fleiri nemendur og leyft hæfileik-
aríkum nemendum á því sviði að njóta sín.
Þegar hugmyndin um söngleik kemur svo
fram af fullum krafti er það í samræmi við
stefnu skólans og markmið að styðja vel við
verkefnið. T.a.m. fengu höfundarnir tíma í
stundaskrá sinni til að sinna verkefninu.“
Flosi og Gunnar Sturla hafa ekki staðið
einir að verkefninu. Eftir að æfingar hófust
gátu þeir einbeitt sér að leikstjórn og tón-
listarflutningi. Þeir fengu samkennara sinn,
Einar Viðarsson, í lið með sér til að stýra
framkvæmdinni og bæði hann og Sigurður
Arnar hafa haft hönd í bagga um ýmis mál,
Söngle ikur
Í byrjun febrúar sýndu nemendur úr
8., 9. og 10. bekk í Grundaskóla á
Akranesi leikrit með söngvum á sal
skólans. Söngleikurinn Frelsi er ekki
bara venjulegt skólaleikrit heldur risa-
vaxið verkefni, sýningin tekur tvær
klukkustundir í flutningi og í verkinu
eru ellefu ný lög sem komu út á
geisladiski áður en sýningar hófust
og er til sölu hjá Nemendafélagi
Grundaskóla.
Virk afstaða gegn ofbeldi
í söngleiknum Frelsi á Akranesi
21