Skólavarðan - 01.03.2003, Qupperneq 21
anna sem taka þátt í þessu núna verður
vonandi hvatning fyrir yngri nemendur hér
í skólanum um að leggja hart að sér til að
gera eins vel seinna. Og ég er ekki í nein-
um vafa um að þessir krakkar verða á svið-
inu í Bíóhöllinni þegar ég fer til að sjá upp-
færslur Leiklistarklúbbs FVA árið 2005,
2006 og 2007!“
Lausn vandamála felast í samstöðu
Í Frelsi segir af stelpu sem býðst tækifæri
til að verða vinsæl. Átök skapast milli góðra
og illra afla og minni úr þjóðsögunum af
Sæmundi fróða og kölska fléttast inn í leik-
inn. Sagan fjallar um átök og einelti, vin-
áttu og að lausn vandamála felist í sam-
stöðu en ekki ofbeldi. Lá þetta allt saman
ljóst fyrir þegar þið fóruð að skrifa söguna?
„Í upphafi ákváðum við að söngleikurinn
ætti að vera við hæfi unglinga og um ungl-
inga,“ segir Flosi. „Það var nú mest til að
hlífa þeim við að leika mikið upp fyrir sig í
aldri. Svo kviknaði hjá okkur hugmynd um
að gera góðlátlegt grín að gsm-æðinu og
kapphlaupinu við tískuna og fjalla um sam-
skipti unglinga. Þá fóru smám saman að
koma hvörf í söguna og persónur að skjóta
upp kollinum. Tengingin við Sæmund og
kölska kom upp og leysti ákveðna stíflu.
Eftir það var létt verk að skrifa handrit.“
Vegna áróðursins gegn ofbeldi sem rek-
inn er í söngleiknum styður Akranesdeild
Rauða kross Íslands verkefnið, en líkt og
aðrar deildir RKÍ tekur Akranesdeildin þátt
í samnorrænu átaki landsfélaga Rauða
krossins Gegn ofbeldi. Á meðan á átakinu
stendur verður unnið markvisst að því að
vekja athygli á ofbeldisvandanum og afleið-
ingum hans, sérstaklega meðal ungs fólks.
Það verður m.a. gert með því að virkja
ungt fólk til jákvæðra og skapandi verka.
Að mati Akranesdeildar RKÍ er söngleikur-
inn Frelsi gott dæmi um slíkt verkefni.
„Megininntak þessa átaks Rauða krossins
er að hvetja fólk til að taka virka afstöðu
gegn ofbeldi,“ segir Sigurður Arnar. „Ég
trúi því að uppfærslan á Frelsi sé einmitt
slík hvatning og við í Grundaskóla munum
nota sýninguna sem lið í frekari vinnu á
öllum aldursstigum gegn ofbeldi, til dæmis
einelti.“
Karl Hallgrímsson
Söngle ikur
23