Skólavarðan - 01.03.2003, Síða 24
Frétt i r
26
Rannsóknin var bæði megindleg og
eigindleg og auk þess var safnað upp-
lýsingum um menntastefnu, námskrár
o.fl. Ítarleg spurningakönnun var lögð
fyrir 13 ára nemendur á þremur mis-
munandi skólasvæðum í hverju landi og
eftir það voru tekin viðtöl við sex nem-
endur í þremur skólum á hverju svæði,
þ.e. 54 í hverju landi. Þá voru tekin hóp-
viðtöl við þessa nemendur ásamt jafn-
mörgum félögum þeirra sem þeir höfðu
sjálfir valið. Með þessum síðarnefndu
samtölum var markmiðið að fá innsýn í
hvort börnin sæju kennarann sem vin
sinn, hvað það þá merkti og hvaða áhrif
það hefði á nám þeirra eða tiltrú á sjálf-
um sér á því sviði og áhrif á skólamenn-
inguna í heild sinni. Loks var rætt við
kennara og stjórnendur og fylgst með í
tímum í því skyni að fylla upp í myndina
sem fyrri hlutar rannsóknarinnar höfðu
dregið útlínur að.
Svörin við spurningalistunum gáfu
sterka vísbendingu um að samband
kennara og nemanda hefði mjög mikil
áhrif á löngun nemandans til að læra og
líðan hans í skólanum. Skilgreiningar
unglinganna á góðum skóla, kennara,
vinahópi og nemanda voru talsvert ólík-
ar milli landanna en óskir nemenda og
væntingar voru hins vegar afar svipað-
ar. Tvennt stóð upp úr sem mikilvæg-
ustu eiginleikar kennara: Annars vegar
að hann væri skilningsríkur og gott að
tala við hann. „Kennarinn á að hafa tíma
til að hjálpa manni bæði námslega og
persónulega,“ sagði einn nemendanna
og tæplega helmingur nemenda í öllum
löndunum taldi að þeir lærðu mest hjá
kennurum sem líkaði vel við þá. Hins
vegar var hæfni kennarans til að tala við
nemendur sína eins og jafningja. Einnig
lögðu nemendur mikla áherslu á að
kennarinn væri sanngjarn, útskýrði vel
og gerði námið áhugavert. Þegar nem-
endur voru spurðir hvað þeir ættu við
með „áhugavert“, svöruðu þeir á þann
veg að það ætti að vera skemmtilegt,
eitthvað sem þeir tækju virkan þátt í, og
sem ætti sér samsvörun í lífinu utan
skólaveggjanna.
Danskir nemendur reyndust vera þó
nokkuð jákvæðari gagnvart kennurum
sínum og skólum en þeir bresku, og
miklu jákvæðari en þeir frönsku.
Snarað úr greininni „Kan en lærer være
en ven?“, greinin í heild sinni birtist
í tímaritinu Forum for skoleledelse,
2. tbl. 2003.
keg
Kennarinn hefur mikil áhrif á námslöngun
Árið 1999 var gerð rannsókn á hvernig nemendur í þremur löndum; Bretlandi, Frakklandi og Danmörku,
upplifu skólagöngu sína. Markmiðið var að skoða félagslegan veruleika nemenda í þessum þremur skóla-
kerfum og hvaða hlutverki kennarann hefði að gegna í þeirra augum, og varpa ljósi á áhrif mismunandi
menningar og skólakerfa á lærdómsferlið, nemendur og kennara.
Samkvæmt lögum félagsins er árs-
fundur haldinn þau ár sem aðalfundur
er ekki haldinn. Rétt til setu á ársfundi
eiga stjórn og varastjórn félagsins, for-
menn svæðafélaga, samninganefnd,
skólamálanefnd og formenn fasta-
nefnda. Tveir fulltrúar Stúdentaráðs KHÍ
sóttu fundinn.
Á fundinum var fjallað um starfsemi
félagsins og starfsáætlun, svo og reikn-
inga og drög að fjárhagsáætlun. Gerð
var grein fyrir starfsemi samninga-
nefndar og undirbúningi næstu kjara-
samninga og aðrir þættir í starfsemi
félagsins voru einnig til umræðu. M.a.
var kynnt fyrirhuguð skoðanakönnun
meðal félagsmanna en þess er að
vænta að niðurstöður hennar verði
hafðar til hliðsjónar við mótun næstu
kröfugerðar. Einnig var fjallað í vinnu-
hópum um innra starf félagsins þar sem
fundarmenn veltu fyrir sér spurningun-
um: Hvar stöndum við? - Hvert stefnum
við? - Hvert viljum við stefna? - Hvað er
jákvætt ? - Hvað er neikvætt?
Síðari fundardaginn hélt Anna Þóra
Baldursdóttir lektor við Háskólann á
Akureyri erindi um rannsókn sem hún
hefur gert á vinnuumhverfi kennara og
kulnun í starfi.
Á fundinum var samþykkt sérstök
ályktun um málefni barna með miklar
hegðunar- og tilfinningaraskanir og
hefur henni verið komið á framfæri við
stjórnvöld.
Ályktun ársfundar Félags grunn-
skólakennara
Alvarlegt ástand hefur skapast víða í
skólakerfinu vegna barna með miklar
hegðunar- og tilfinningaraskanir. Árs-
fundur Félags grunnskólakennara, hald-
inn á Hótel Geysi 9. - 10. mars 2003,
beinir þeim tilmælum til stjórnvalda að
skoða frá öllum hliðum heildstæð úr-
ræði fyrir þennan hóp.
Fundurinn hvetur stjórnvöld til að
þess að veita fagfólki sem á að sinna
málefnum barna með geðraskanir svig-
rúm og aðstöðu til þess að veita þá
þjónustu sem þessi börn eiga rétt á.
Fundurinn skorar á yfirvöld heilbrigð-
is,- félags- og menntamála að bregðast
snarlega við þessu brýna málefni og
vinna í sameiningu að lausn þess.
Þriðji ársfundur
Félags grunnskólakennara
Þriðji ársfundur Félags grunnskólakennara var haldinn á
Hótel Geysi dagana 9. - 10. mars.
„The thunder of war is at an horizon
measured in weeks, if not days.
Whatever your stance, remember,
when it starts, there is no turning back;
no pleasant turn of phrase to quiet the
combatants; no sudden turn by pilots,
soldiers, sailors and Marines to sit
down for tea and cookies with whom
they construe as their enemies; no
„gosh, I’m sorry; let’s not,“ whispered
into a pillow or a pleasant drawing
room. War ... is an act of utter finality;
once it starts, we deal with war’s con-
sequences, not how it might have been
different. And, as on the eve of any war
ever fought, we do not know what
those consequences will be.
Úr vefútgáfu tímaritsins EXPANSIVE
POETRY AND MUSIC, febrúar 2003
Þrumur stríðsins
eru skammt undan
Þessa tilvitnun rak á fjörur Skóla-
vörðunnar skömmu fyrir útgáfu
blaðsins og hún birtist hér
óþýdd, í þeirri von og trú að les-
endur fyrirgefi okkur útlenskuna!