Skólavarðan - 01.03.2003, Page 25
Frétt i r
27
Meðal annars verða eftirfarandi
spurningar til umræðu: Hvernig er að
vera barn í samtímanum? Eru börn sýni-
leg í samfélögum samtímans? Hver eru
réttindi og skyldur hlutaðeigandi í um-
önnun og menntun ungra barna, þ.e.
barnanna sjálfra, foreldra, kennara og
annarra uppeldisaðila og stefnu-
mótenda? Hvernig er hægt að styðja við
námshvöt nemenda þannig að þeir vaxi
og dafni, njóti velgengni og verði skap-
andi einstaklingar í heimamenningu
sinni? Hver eru mikilvægustu sambönd-
in (tengslin) í menntun og þroska ungra
barna? Fyrirlestra halda sex prófessorar
frá Svíþjóð, Ítalíu, Bretlandi og Banda-
ríkjunum.
Ráðstefnugjald er 465 evrur sem þarf
að greiða að hluta í síðasta lagi 15. júní.
Athugið að eftir þann tíma hækkar gjald-
ið í 492 evrur. Hægt er að sækja um
styrki til fararinnar, aðildarfélög KÍ eru
með mismunandi styrkreglur sem hægt
er að kynna sér á heimasíðu KÍ,
www.ki.is
Allar nánari upplýsingar um ráðstefn-
una, dagsetningar, hótelbókanir og
skipulag er að finna á vef ráðstefnunnar:
http://www.strath.ac.uk/
Departments/PrimaryEd/eecera/#top
Samtökin EECERA halda einnig úti
vef, slóðin er: www.worc.ac.uk/eecera
Ráðstefna í Skotlandi
Hvernig bernska er möguleg á okkar tímum?
Dagana 3. - 6. september verður haldin ráðstefna í Glasgow á vegum alþjóðlegu samtakanna European
Early Childhood Education Research Association (EECERA). Samtökin halda ráðstefnur sínar ár hvert, víða
um heim, og er þessi sú þrettánda í röðinni. Hún ber yfirskriftina Possible Childhoods: relationships and
choices, en þetta er jafnframt meginviðfangsefni ráðstefnunnar.