Skólavarðan - 01.03.2003, Page 26
Danskir kennarar óska eftir íbúðaskiptum
í sumar
1. Hjón með átta og tíu ára börn bjóða 135 m2 íbúð (svefn-
pláss fyrir 4-6) í miðbæ Kaupmannahafnar í skiptum fyrir hús
eða íbúð á Íslandi. Þau hugsa sér að vera á Íslandi í 1 - 2 vikur
á tímabilinu 10. júlí -10. ágúst.
Hafið samband við Familien Agger,
netfang: aha@sbi.dk
2. Hjón sem undirbúa þriðju Íslandsferð sína bjóða
einbýlishús í Vanløse í skiptum fyrir hús eða íbúð á Íslandi.
Frekari upplýsingar veita Jytte og Jørn,
netfang: ju.csv@ci.kk.dk
3. Ungt barnlaust par býður litla íbúð á Østerbro í
Kaupmannahöfn í skiptum fyrir íbúð á Íslandi.
Frekari upplýsingar veita Jaris og Rise,
netfang: rise_v@hotmail.com
Sumarbústaður í Danmörku
Rúmgóður sumarbústaður ( níu svefnpláss ) á stórri lóð til
leigu. Eins og hálfs tíma keyrsla frá Kaupmannahöfn, á nv Sjá-
landi. Bústaðurinn er leigður viku í senn, frá laugardegi til
laugardags, og er laus í júní og ágúst. Mjög hentugur barna-
fólki. Stutt á góða strönd og „Sommerland Sjælland“.
Nánari upplýsingar í síma 00 45 35262528.
Guðlaug gulla@os.dk
Opinn fundur um samræmd próf
í framhaldsskólum
Opinn fundur um samræmd próf í framhaldsskólum
verður haldinn fimmtudaginn 3. apríl 2003 í Borgartúni
6, kl. 14-17
Félag framhaldsskólakennara heldur fundinn í samstarfi við
Samtök móðurmálskennara, menntamálaráðuneytið, Náms-
matsstofnun og Félag íslenskra framhaldsskóla og koma frum-
mælendur frá öllum þessum aðilum.
Í drögum að dagskrá fundarins kemur fram að fyrirhuguð
eru erindi um:
1) markmið/tilgang samræmdra prófa
2) mögulegt efni/inntak samræmds prófs í íslensku miðað
við námskrá og lýsingu í reglugerð um „markmiðsbundið
yfirlitspróf úr kjarna“
3) gerð, framkvæmd og úrvinnslu samræmdra prófa í
framhaldsskólum
4) áhrif samræmdra prófa á skólastarf í framhaldsskólum
(tvö erindi, frá kennara og skólameistara).
Á milli erinda og í lok fundarins verða umræður og fyrir-
spurnir. Skólamenn eru hvattir til að mæta á fundinn og taka
þátt í umræðum um þetta mikilvæga málefni.
Auglýsing um úthlutun hærri ferðastyrkja
úr A deild Vísindasjóðs FL
Hér með eru auglýstir styrkir til einstaklinga til að sækja ráð-
stefnur og námskeið erlendis. Styrkirnir nema kr. 100,000. -
Skulu líða a.m.k. fjögur ár frá því að félagsmaður fær styrk til
utanfarar þar til hann getur sótt um slíkan styrk aftur.
Sjóðsstjórn áskilur sér rétt til að taka tillit til starfsaldurs um-
sækjenda og fleiri þátta sem hún telur skipta máli.
Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum sem fást
á skrifstofu FL/KÍ og á heimasíðu Kí www.ki.is
Umsóknarfrestur er til 15. maí 2003.
Sjóðsstjórn
Auglýsing um úthlutun styrkja úr B deild
Vísindasjóðs Félags leikskólakennara
Hér með eru auglýstir námsstyrkir til félagsmanna FL sem
hyggjast stunda framhaldsnám í leikskólafræðum skólaárið
2003 til 2004.
Styrkirnir nema kr.100.000 til þeirra er stunda nám hér á
landi og kr.140.000 til þeirra er stunda nám í útlöndum.
Sjóðsstjórn áskilur sér rétt til að taka tillit til starfsaldurs
umsækjenda og fleiri þátta sem hún telur skipta máli.
Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum sem
fást á skrifstofu FL/KÍ og á heimasíðu KÍ www.ki.is
Umsóknarfrestur er til 15. maí 2003.
Sjóðsstjórn
Norræn ráðstefna um leikskólamál
Dagana 19. og 20. september 2003 verður haldin
norræn ráðstefna um leikskólamál í Safnaðarheimili
Akureyrarkirkju. Yfirskrift hennar er„Að mæta barni
nútímans“. Að ráðstefnunni standa Akureyrarbær,
Randers í Danmörku, Álasund í Noregi og
Västerås í Svíþjóð.
Á ráðstefnunni gefst leikskólafólki tækifæri til að hlusta á fyr-
irlesara í fremstu röð fjalla um málefni leikskólans og ætti eng-
inn, sem hefur áhuga á þeim málefnum, að láta þessa ráð-
stefnu fram hjá sér fara. Fyrirlesarar verða Guðrún Alda Harð-
ardóttir, lektor við Háskólann á Akureyri, Stig Broström, lektor
við danska uppeldisháskólann, og Mara Westling Allodi, fil. dr.,
við kennaraháskólann í Stokkhólmi.
Auk þess verða vinnusmiðjur frá hverju landi: Arnar Ingvars-
son frá leikskólanum Iðavelli á Akureyri fjallar um tölvur og
börn. Frá Randers kemur Vibra Svejstrup, hún fjallar um
norræna frásagnarhefð í starfi með börnum. Morten Jahren
frá Álasundi veltir fyrir sér hugtakinu nýja foreldrakynslóðin
og Anne-Christine Söderström frá Västerås fjallar um hæfileik-
aríka barnið og hvernig sýn hins fullorðna á barnið hefur áhrif.
Ráðstefnan er opin öllum sem áhuga hafa á málefnum leik-
skólans.
Vakin er athygli á að allir fyrirlestrar fara fram á dönsku,
norsku eða sænsku og ekki verður túlkað.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu ráðstefnunnar,
þar fást einnig umsóknareyðublöð: http://www.idavollur.
akureyri.is/radstefnanorraent.htm
Undirbúningsnefndin
Smáauglýs ingar og t i lkynningar
28