Forspil - 01.11.1958, Blaðsíða 1

Forspil - 01.11.1958, Blaðsíða 1
FORSPIL NÓVEMBER 1958 DAGUR SIGURÐARSON: Billy the Kid eða Ærlegt handtak Vor, sólhvítt vor. Malbik og syndir hvítna í sólskininu. Þarna strunsar úngur listmál- ari niðurí bæ og er heldur stór- stígur. Hann er hár og horaður, úfinn og órakaður, auðnuleys- islegur. Frakkinn er krumpaður einsog harmónikka. Sólarnir bögglast undir skónum þegar hann geingur, smella við hvert fótmál. Sandur og smásteinar sær'a hann í iljarnar. Hann hefur ekki unnið ærlegt handtak síðustu tvö árin. Hvert er hann að flana ónytjúngurinn sá arna? Hvað er hann að hugsa? Fyrir tveimur árum var ég í byggíngarvinnu. Þá var vor eins- og nú. Ég sá minnst af því. Frá morgni til kvölds pjakkaði ég með haka og skóflu í grýttan hús- grunn. Ég hataði vinnuna: Blóð- ið streymdi allt útí skánkana, ekkert til heilans. Nótt eina dreymdi mig, að ég fann lík verkstjórans saman- bögglað í öskutunnu. Höfuðið var laust frá bolnum, hafði ver- ið sneitt af. Strjúpinn var óféleg- ur ásýndum og viðkomu. Daginn eftir braut ég skófluna og gekk úr vinnu, hét sjálfum mér að stunda aldreiframarheið- arlega atvinnu. Ég fór strax að mála af eld- móði, unni mér lítillar hvíldar. Meðan peníngarnir entust lifði ég við góðan kost, mjólk, harð- fisk og rúgbrauð. Svo svalt ég hálfu og heilu húngri. Ég leigi rúmgott kjallaraher- bergi hjá piparkellíngu sem á íbúð á efstu hæð. Þetta sumar geisuðu óþurrk- ar. Slys, glæpir og framhjáhöld voru furðu fátíð. Kellíngin varð föl og tekin og hjartveik. Ein var henni huggun í harmi: Hún laumaðist öðruhvoru niður og kíkti á skráargatið hjá mér. í fyrstu var mér skemmt. Hún verður að gera eitthvað sér til af- þreyíngar kellíngarskarið, hugs- aði ég og hló með sjálfum mér. Þegar leið að hausti, þreyttist ég á tilhugsuninni um þetta al- skyggna auga sem sá hvert pensil- strik mitt, — rétteinsog börn verða þreytt á guði. Dag nokkurn fyllti ég hjól- hestapumpu með terpentínu og sprautaði útum skráargatið. Upp- frá því lá kellíng aldrei á gægj- um. Hún hugsaði mér þegjandi þörfina. Hálfum mánuði síðar vakti hún mig með skömmum snemma morguns. Htm var enn með bindi fyrir hægra auga. — Ef þú borgar ekki húsaleig- una innan viku, læt ég fleygja þér á dyr. Ée oerðf mig blíðan á mann- inn og lofaði öllu fögru. Hún tutlaði úr sér reiðina og fór. Ég klæddi mig í snjáðu molskinns- fötin mín, öll útbíuð í litakless- um, og gamla gatslitna frakkann. Ég gekk út í manndrápsskapi. Hausthimininn var kóbaltblár og kaldranalegur. Norðanstrekk- íngur feykti fáeinum skrælnuð- um laufum niðureftir götunni. Húsin í hverfinu voru gráir kubbar sem var raðað niður hornrétt á beina línu með jöfnu millibili. Mig hryllti. Svona var þá komið fyrir mér. Lángur vetur í vændum, og ég gat ekki greitt húsaleiguna. Það sem verra var: Ég átti ekki fyrir litum. En það rættist furðanlega úr vandræðum mínum þennan dag. Gömul kona, bláfátæk, sem hafði þekkt mig barn, gaf mér fylli mína að éta. Mér heppnaðist að hnupla nokkrum litatúbum í málningarvörubúð, sápu og hálfri rúllu af klósettpappír á salerni veitingahúss. Loks hitti ég velstæðan kunn- íngja á förnum vegi. Hann mál- ar sólarlagsstemníngar í metra- tali. Hann bauð mér heim til drykkju. Það er auðveldara að komast á fyllirí en útvesa pen- ínga fyrir ÓCTeiddri húsaleÍCTi. Ég fylgdi honum heimí „flotta nýja flattið“ hans og horfði á lrann selja rosknúm hjónum mynd af stöðuvatni sem logar í skini sólar. Litirnir voru liráir og sóðalegir. — Ég hef alltaf verið svo hrif- in.af vatni, sagði konan og dæsti: F.inkum í túnglskini. Eigið þér einga með túnglskini? — Ég skal fixa það, svaraði fé- lagi minn: Breyti sólinni í túngl. Það verður tilbúið eftir hádegi á morgun. Kostar átta hundruð. Hann fylgdi þeim til dyra og kvaddi. Þvínæst læsti liann úti- dyrunum, tók símann úr sam- bandi og skenkti í glösin. Kvöldið var notalegt: Svart kaffi og giært vodka, mjúkir hæg- indastólar og baknag um stéttar- bræður, fullt túngl með rauðri slikju á glugganum. Á miðnætti hafði ég drukkið gestgjafa minn undir borðið. Stakk ég þá á mig pyttlu fleyti- fullri af vodka, ásamt tveimur pökkum af tsésterfíld, konúng- legri stærð, og rölti heimáleið með klyfjar mínar, mátulega híf- aður. : . Það ýrði úr Ioftí. Bleksvört ský hafði dregið fyrir túngl og stjörnur. Vot lauf trjánna gljáðu í skímunni frá götuljósunum. Laufin voru að falli komin. Lauf víðisins voru gul, lauf reynisins rauð og birkilaufin brún. Vodkað yljaði mér. Náttkulið hressti mig. Myndrænt umhverf- ið kom mér í ljómandi skap. Að vísu klæjaði mig í kollinn þegar skítugt hárið blotnaði. Mig gilti það einu. Ég hafði sápu í vasanum. Og húsaleigan?Skítt með hana. Ég hafði liti í vasanum. Okkur- gult, prússablátt, karmínrautt og stóra túbu af sínkhvítu. Sál mín kæmist einnig í bað. Heil vika var til stefnu. Ég stakk hendinni í vasann, liandlék túburnar af sömu á- fergju og nærgætni og hómó- sexúalisti þuklar belli elskhuga sinna. Leið mín lá gegnum miðbæ- inn. Fáir voru á ferli. Umferða- ljós og marglitar ljósaauglýsíng- ar spegluðust í blautu malbiki. Á götuhorni stóð moldfull kona, illa til reika. Hún baðaði út höndum og saung hásri röddu: Verður og fer sem fer Skvísi mig hver sem er Tveir rasssíðir, lierðabreiðir lögregluþjónar leiddu hana á vit kjallarans. Það er glæpur að vera í góðu skapi. Ég dreypti á vodkanu og hélt áfram, útúr miðbænum. Myndin sem beið mín hálf- köruð heima: Hún var af er- lendri prinsessu, ríkiserfíngja. Ég hafði streingt á andlitsvöðvum hennar. Grágrænn svipurinn lýsti al; ángist. Bakvið liana var hers- íng af skríl, þegnum hennar mál uðum í jarðlitum. Hvílíkt axarskaft! Prinsessan hafði bara fríkkað við þessar að- farir, orðið geðugri. Ég hefði átt að undirstrika hið ríkjandi í fari hennar: roðann og skvapið, sljó- leikann og værukærðina, ofáts- einkennin. Þjóðhöfðínjgar hugsa aldrei til þegna sinna. Ég gekk gegnum almenníngs- skrúðgarð. Mölin í gángstígun- um var rennblaut, sömuleiðis fúnir bekkirnir, Trén voru nak- in og gljáandi. Föllnum laufunl hafði verið sópað saman í hrúg- ur. í einu hornx gafðsins var fftl* gerð eirstytta af nakinni kortu. Einhver gárúnginn hafði vöðlað saman dagblaði og stúngið því efst milli læra hennai-. Það var gegndrepa. Þarna gekk ég framá stúlku. Hún hnípti ein á bekk og góndi niðui'á tær sér, skalf. Kannski horfði hún gegnum tærnar og jarðskorpuna, sá djúpt í iður jarðar. Kannski var hún bara við- utan. Sennilega var hún miður sín. Hún var ekki beinlínis falleg. Púkó, mundu kynsystur hennar segja: Eða tíkó. Sveitó. Hún var ein þeirra stúlkna sem karlmenn taka ekki eftir á götu eða í stræt- isvagni. Hún leit út fyrir að vera um tvítugt. Hún var dauðyflislega til fara: í hversdagslegri grárri ull- arkápu. Hún var grannholda og LANDSBQkASAFN 221487 ÍSLABOS

x

Forspil

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Forspil
https://timarit.is/publication/1203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.