Víkurfréttir - 25.09.1980, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 25.09.1980, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 25. september 1980 VÍKUR-fréttir Alltaf erum við að rekast á hús sem hafa veriðsnyrt áþann háttaðeftir verður tekið. Myndin hér að ofan er af Heiðarbrún 12 í Keflavík, en eigandi þess, Zakarías Hjartarsson málaði sjálfur listaverkið á húsvegginn. Slldar- frysting Viljum ráða konur og karlatil síldarfrystingar. Mikil vinna framundan. Uppl. í símum 6044 og 1264. Brynjólfur hf. Kór Ytri-Njarð- víkurkirkju | óskar eftir söngfólki, sérstaklega í karlaraddir. j Mörg skemmtileg viöfangsefni í vetur. Æfingar eru í kirkjunni á þriðjudagskvöldum kl. 20.30. Þið sem hafið áhuga, vinsamlegast hafið sam- band við einhvern kórfélaga, söngstjóra (í síma 3701) eða komi á æfingu. Styrktarfélag aldraðra á Suðurnesjum: Ýmislegt á dagskrá í vetur Vetrarstarf Styrktarfélagsaldr- aðra á Suðurnesjum er nú um það bil að hefjast. Frá þvi að fé- lagiö tók til starfa hefur það haft aðstöðu til funda og föndurvinnu í Safnaðarheimilinu Kirkjulundi endurgjaldslaust. Vill stjórn fé- lagsins nota þetta tækifæri til aö færa Safnaðarfélaginu innilegar þakkir fyrir veitta aðstoð sl. 6 ár. Sem kunnugt er brann Kirkju- lundur i sumar, svo aðstaðan sem félagið hafði þar er ekki lengur fyrir hendi. I undirbún- ingi er félagsaðstaða í kjallara nýja hússins, sem bæjarfélagið hefur byggt fyrir aldraða að Suð- urgötu 12-14. Eru þar 2 góðir salir sem nýta má á ýmsan hátt. Sem vænta má vantar þar hús- gögn og allt sem til þarf, til að starfsemin geti hafist. Er unnið að þvi að útvega það sem vantar og áætlaö aö selja merki félags- ins fljótlega til fjáröflunar þvi skyni. Félagshús hf. (eigandi að Fé- lagsbiói) hefur fært félaginu rausnarlega peningagjöf, sem varið verður til kaupa á húsgögn- um i annan salinn. Sendirstjórn Styrktarfélagsins aðilum Félagshúss hf. innilegar þakkir fyrir velvilja þeirra. Á dagskrá félagsins i vetur verður "Opið hús" einn laugar- dag i mánuði í hverju sveitarfé- lagi fyrir sig. Fyrsta sunnudag í vetri hefur Safnaðarfélag kirkj- unnar boöið upp á kaffi eftir messu og vonandi veröur eins nú, en óráðið hvar þaö getur oröiö. Verður það auglýst siöar. I nóvember verður opið hús i Vogum. I desember jólahug- vekja í Innri-Njarðvík og munu kvenfélögin í Keflavik og Njarð- vik sjá um það. I janúar veröur opið hús í Sandgerði. (febrúarer áætlaö aö halda þorrablót í Stapa. I mars opið hús í Garði og sumarfagnaöur verður í Grinda- vík í apríl. Annað á dagskrá félagsins i vetur er t.d. leikhúsferö, líkams- rækt fyrir aldraða - svokölluö skólaleikfimi - sem verður i fé- lagsaðstöðunni á Suðurgötu 12-14. Einnig verður þarföndur- vinna. Smíðar verða i Gagn- fræöaskólanum undir leiðsögn Sigfúsar Kristjánssonar og einnig verður í Gagnfræöaskól- anum leirvinna og veröa leið- beinendur þær Erla Sigurbergs- dóttir og Áslaug Hilmarsdóttir. Hugmyndir hafa komið fram um aö ef félagasamtök í bænum hefðu áhuga á að stytta öldruð- um stundir, þá væri félagsaö- staðan fyrir hendi fyrir slikt og hægt að setja upp dagskrá fyrir ýmis konar skemmtiefni t.d. eitt kvöld i viku. ( sumar var farið til Júgóslavíu á vegum félagsins og tókst sú ferð mjög vel og voru þátttak- endur ánægðir. Innanlands varfariðaö Löngu- mýri í Skagafiröi til 3ja vikna dvalar og að Bifröst í Borgarfirði i viku. Tókust þessar ferðir mjög vel og var ekki siður ánægja með þær en utanlandsferðina. ( októ- ber stendur til boða önnur ferð að Löngumýri. Dagsferð var farin á vegum fé- lagsins um Reykjanes, og Rot- aryklúbbur Keflavíkur bauð í aðra dagsferð upp i Kjós og á heimleiðinni bauö Sparisjóður- inn upp á kaffi i Veitingastofunni Gafl-lnn í Hafnarfirði. Sendir stjórn félagsins báðum þessum aðilum þakkir fyrir. Að lokum skal bæjarbúum bent á aö bækur í húsbókasafn á Suðurgötu 12-14 væru vel TRAKTORSGRAFA Tek að mér alla almenna gröfuvinnu. Sigurður Jónsson Sfmi 7279 Þessar stúlkur héldu hlutaveltu að Birkiteig 20 i Keflavik um miðjan júní sl. Ágóðann, 7.200 kr., létu þær renna til Sjúkrahúss Keflavíkur- læknishéraðs. Stúlkurnar heita Freyja Ásgeirsdóttir og Telma Jóns- dóttir. Á myndina vantar Kristinu Þóru Hermannsdóttur.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.