Víkurfréttir - 09.10.1980, Qupperneq 8

Víkurfréttir - 09.10.1980, Qupperneq 8
8 Fimmtudagur 9. október 1980 VfKUR-fréttlr Allsherjar- atkvæðagreiðslá um kjör fulltrúa á Sjómannasambandsþing Ákveðiö hefur verið að viðhafa allsherjar atkvæða- greiðslu um kjör aðal- og varafulltrúa Sjómanna- deildar Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis á 12. þing Sjómannasambands ís- lands. Tillögur um tvo aðalfulltrúa og jafn marga til vara skulu sendar skrifstofu VSFK í síðasta lagi fyrir kl. 19, föstudaginn 10. október n.k. Hverri tillögu skal fylgja stuðningsyfirlýsing tilskil- ins fjölda félagsmanna sjómannadeildarinnar. Kjörstjórn Iðnsveinar, Suðurnesjum Skrifstofa lönsveinafélags Suöurnesja aðTjarnar- götu 7, Keflavík, verður framvegis opin sem hér segir: Mánudaga kl. 15-19 Þriöjudaga kl. 15-17 Miðvikudaga kl. 15-17 Fimmtudaga kl. 15-19. Iðnsveinafélag Suðurnesja Orðsending til húsbyggjenda frá Hitaveitu Suðurnesja Þeir húsbyggjendur, sem vilja fá hús sín tengd hitaveitu í haust og vetur, þurfa að sækja um teng- ingu sem fyrst, og eigi síðar en 20. október n.k. Hús verða ekki tengd, nema þeim hafi verið lokað á fullnægjandi hátt, gólfplata steypt við inntaksstað og lóð jöfnuð í pípustæðinu. Ef frost er í jörðu, þarf húseigandi að greiða auka- kostnað sem af því leiðir að leggja heimæðarvið slíkar aðstæður. HITAVEITA SUÐURNESJA Nýbygging sjúkrahússins: Drðttur verður ð afhend- ingu efri hœðarinnar Á fundi sjúkrahússtjórnar, 17. sept. sl. skýrði Eyjólfur Eysteins- son frá gangi nýbyggingarinnar og sagöi, að nokkur dráttur yrði á afhendingu efri hæöarinnar, en taldi að þaö yröi innan tveggja til þriggja vikna. Byggingin yröi þá sennilega tilbúin til notkunar um mánaöamótin október-nóvem- ber. Verktakar greiöa dagsektir Keflavik ................... Njarövík ................... Grindavík................... Geröahreppur ............... Hafnir ..................... Miöneshreppur .............. Vatnsleysustrandarhreppur .. vegna tafa á afhendingunni. Formaður sjúkrahússtjórnar- innar lagöi til aö opinber opnun byggingarinnar færi ekki fram fyrr en í vor, þegar hún veröur öll tekin í notkun. Þá kom fram aö gjaldfallinn kostnaður sveitarfélaganna 1. sept. 1980, en ógreiddur, er sem hór segir: . 59.01% Kr. 11.802.000 . 16.79% - 3.358.000 . 8.12% - 1.624.000 . 5.61% - 1.122.000 . 0.91% - 182.000 . 7.42% - 1.484.000 . 2.14% - 428.000 AUGLÝSIÐ f VÍKUR-fréttum Ætla bæjaryfirvöld i Keflavík og Njarövík Að hrekja fiskverkendur til nðgrannabyggðarlaganna? f síöustu viku komu tveir væntanlegir fiskverkendur aö máli viö blaöiö og kváöust óhressir meö þaö aö hvergi væri lóöir aö fá undir fiskverkunarhús i Keflavík eöa Njarövlk. Bentu þeir m.a. á frétt I slöasta blaöi varöandi lóöaúthlutun viö Hóla- miö I Keflavlk, og töldu þær út- hlutanir Iftils viröi þar sem tekiö skyldi fram viö lóöahafa aö bygg- ingaskilmálar heföu ekki veriö samþykktir og lagning veitukerfa ekki veriö ákveöin og væru ekki fyrirsjáanleg á næstunni. Báöu þeir blaöiö aö gera fyrirspurn til til bæjaryfirvalda Keflavikur og Njarövíkur, hvort þaö væri stefna þeirra aö hrekja fiskverkendur I burtu til nágrannabyggöarlag- anna? Viö höföum samband viö Albert K. Sanders bæjarstjóra I Njarövik og bárum undir hann þessa fyrirspurn. ,,Ég man nú ekki eftir aö hafa fengiö neitt bróf inn á borö til mín um beiöni um fiskverkunarlóöir," sagöi hann. „Hins vegar er hér mikiö af fiskverkunarstöövum sem berjast I bökkum, og þaö er ekki skynsamlegt aö vera aö byggja upp nýjar stöövar þegar húsakynni eru fyrir hendi. Hór niöri á bökkum hjá okkur eru 5 eöa 6 stöövar hálfnýttar og kannski nýttar af 1/10, og ef þessir menn heföu áhuga þá gætu þeir haft samband viö ein- hvern af þeim mönnum sem eiga þessar stöövar og fengiö aö nýta þau húsakynni og þann tækja- kost sem fyrir er. Frumskilyröiö er aö leggja inn erindi og ein- hverjar áætlanir um þaö hvernig þeir ætli aö standa aö þessu, þaö er ekki nóg aö segja ég ætla aö fá lóö til aö byggja fiskverkunar- hús, og vita svo kannski ekki hvort fjármagn er fyrir hendi til þess eöa hvort einhver fiskur er til aö verka. Svona lóö kostar 10 milljónir fyrir sveitarfólagiö og maður hendir því ekki bara út í loftið til aö láta hana liggja ónýtta árum saman þangaö til einhverj- um dettur einhvern tíma í hug aö byggja á henni, þaö hlýtur hver maöur aö sjá." Steinþór Júlíusson bæjarstjóri í Keflavík kvöa þaö alls ekki vera stefnu bæjaryfirvalda aö hrekja fiskverkendur úr bænum, en kvaö bæinn hafa átt í erfiðleik- um meö aö skaffa lóöir undir fiskiönaö, og kæmi þar til skipu- lag og fleira. „Þaö er ekki hent- ugt að vera meö fiskverkun þarna upp frá, svona fyrirtæki eiga aö vera niöur viö sjó, sagöi Steinþór, „og svo er þaö nú svo að hér eru nokkur fiskvinnslu- fyrirtæki sem eru ónotuö, sem aflaust væri hægt aö fá inni í.“ Utanlandsferð Framh. af 5. síðu Einnig þeim sem studdu nefnd- ina með fjárframlögum, en þaö voru: Sparisjóöurinn i Keflavík, Útvegsbankinn í Keflavík, Versl- unarbankinn ( Keflavík, Lands- bankinn Keflavíkurflugvelli, Að- alverktakar, Kef lavíkurf lugvel li, Keflavíkurverktakar, Keflavik- urflugvelli, Suðurnesjaverktak- ar, Keflavik, Verkalýös- og sjó- mannafólag Keflavlkur og ná- grennis, Verkakvennafólag Kefla víkur og Njarövlkur, Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum. Fyrirhuguö er kvöldvaka á vegum feröanefndarinnar fyrir aldraöa innan tíöar, meö mynda- sýningu o.fl., en ekki er enn ákveöiö hvenær þaö veröur.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.