Fréttablaðið - 07.11.2016, Qupperneq 2
CMYK litir
blár: 100-68-7-28
grár: 33-18-13-37
Tæknifræðingafélag Íslands
CMYK litir
blár: 100-68-7-28
grár: 33-18-13-37
Verkfræðingafélag Íslands
Atkvæðagreiðsla um sameiningu VFÍ og TFÍ
Dagana 5. – 11. nóvember fer fram atkvæðagreiðsla meðal félags manna
Verkfræðingafélags Íslands og Tæknifræðingafélags Íslands
um sameiningu félaganna.
Félagsmönnum hafa verið sendar upplýsingar í tölvupósti.
Þær er einnig að finna á heimasíðum félaganna:
www.vfi.is
www.tfi.is
Félagsmenn sem ekki hafa fengið tölvupóst frá skrifstofu félaganna eru
vinsamlega beðnir um að tilkynna um rétt netfang með því að senda
tölvupóst: lydiaosk@verktaekni.is eða hringja í síma: 535 9300.
Félagsmenn eru eindregið hvattir til þess að kynna sér upplýsingar um
sameiningarmálið leita svara við spurningum sem kunna að vakna og
framar öllu taka þátt í atkvæðagreiðslunni.
Veður
Stíf sunnanátt og hlýtt í dag. Talsverð
rigning sunnan- og vestanlands, en
lítilsháttar rigning á norðaustanverðu
landinu. Gengur í suðaustan storm
vestan til á landinu í kvöld. sjá síðu 18
Airwaves-pönk
Finnsku pönkararnir í Pertti Kurikan Nimipäivät léku á Gauknum á Airwaves í gær. Hljómsveitin vakti lukku er hún tók þátt í Eurovision árið 2015.
Fréttablaðið/ernir
landbúnaður Ört vaxandi fjalla-
ferðamennska er farin að valda
íslenskum fjárbændum áhyggjum.
Málið var rætt á fundi fjallskila-
nefndar Borgarhrepps, Stafholts-
tungna og Norðurárdals vestan Norð-
urár fyrir helgi. Þriðju og síðustu leitir
haustsins á svæði nefndarinnar voru
sunnudaginn 16. október og skiluðu
þær um eitt hundrað kindum og
nokkrum erlendum ferðamönnum
sem fest höfðu jeppa sinn á fjöllum.
„Það er orðið dálítið mikið um
gönguhópa sem fara svokallaða
Vatnaleið. Þetta er náttúrlega einmitt
yfir sumartímann þegar féð er á svæð-
inu,“ segir Sigurjón Jóhannesson,
bóndi á Valbjarnarvöllum á Mýrum
og fulltrúi í fjallskilanefndinni sem
ræddi „aukinn ágang ferðamanna á
afréttinum, gangandi og akandi“ á
síðasta fundi:
„Nefndin lýsir yfir áhyggjum sínum
af áhrifum þess á sauðfé og vekur
athygli á að auka þarf þjónustu og
eftirlit með mannvirkjum samfara
þeirri þróun,“ bókaði nefndin.
Sigurjón segir hópa á eigin vegum
og frá Ferðafélagi Íslands ganga
Vatnaleiðina sem liggur frá Hlíðar-
vatni um Hítarvatn og Langavatn í
Hreðavatn. Og það sé gott mál.
„Aðalmálið, finnst mér, er ef fólk
er með hunda sem eru ekki vanir fé.
Þeir eru til í það að stökkva í kindur
og styggja þær. Við höfum rætt að fólk
hafi hundana í bandi þegar farið er
um þar sem aðalfjársvæðið er,“ segir
Sigurjón.
Það er ekki aðeins göngufólk sem
fer um þessar slóðir að sögn Sigur-
jóns. Mikil jeppaumferð sé um troðn-
inga inn Langavatnsdal.
„Menn eru að keyra þar og er í
sjálfu sér ekkert hægt við því að gera,“
segir Sigurjón. Í fyrrnefndum leitum
fyrir rúmum hálfum mánuði hafi
smalar komið til hjálpar útlendingum
sem skilið höfðu bíl sinn eftir kirfilega
fastan í drullu.
„Það átti að fara að leita að þeim
en það var hægt að ná sambandi ein-
hvers staðar og þá uppgötvaðist að
þeir voru ekki týndir. Þeir slógu sér
bara saman við leitarmenn,“ lýsir Sig-
urjón. Erlendir ökumenn aki óhikað
út í hvað sem er. „Það er reyndar líka
þannig með suma Íslendinga, þeir
halda að það fljóti alla vega á meðan
ekki sekkur.“
Fjallskilanefndin skoraði á fund-
inum einnig á sveitarstjórn Borgar-
byggðar að beita sér fyrir því að
komið verði á farsímasambandi á
svæðinu. Sigurjón segir að það myndi
bæta öryggi til muna.
„Það er merkilegt að ekki skuli að
minnsta kosti vera búið, á fjölfarinni
leið eins og inn Langavatnsdal, að
setja upp endurvarpa svo þar sé sam-
band. Að vísu er hægt að fara þar sem
hæst er upp en útlendingar fatta það
ekki. Þeir festa bíla þarna og ganga
þá kannski langar leiðir í stað þess að
fara upp.“ gar@frettabladid.is
Göngufólk á Vatnaleið
styggir fé á afréttinum
Fjallskilanefnd í Borgarfirði lýsir áhyggjum af vaxandi ágangi ferðamanna sem
styggja kindur á afrétti. Bæði um að ræða göngufólk og akandi á Vatnaleið, segir
nefndarmaðurinn Sigurjón Jóhannesson, bóndi á Valbjarnarvöllum á Mýrum.
Aðalmálið, finnst
mér, er ef fólk er
með hunda sem eru ekki
vanir fé. Þeir eru til í það að
stökkva í kindur og styggja
þær.
Sigurjón Jóhannesson, bóndi á
Valbjarnarvöllum
Horft yfir Hafradal á Vatnaleið. Hafradalsá rennur í langavatnsá sem síðan fellur í
langavatn úr norðri.
sýrland Herir Kúrda og Araba hyggj-
ast nú sækja að sýrlensku borginni
Raqqa sem kölluð hefur verið höfuð-
borg hryðjuverkasamtakanna Daish,
sem kenna sig við íslamskt ríki.
Bandalagið, sem kallast SDF,
mun njóta aðstoðar lofthers Banda-
ríkjanna í árásinni. Almennir borg-
arar eru varaðir við því að fara nærri
svæðum þar sem herliðar Daish
halda sig.
Tilkynnt var um fyrirhugaða sókn
á blaðamannafundi í bænum Ain
Issa, um fimmtíu kílómetrum frá
Raqqa. „Hin stóra orrusta um Raqqa
og nærliggjandi svæði er hafin,“ sagði
talsmaður SDF á blaðamannafund-
inum.
„Sóknin fer fram í nokkrum þrep-
um. Í dag hófst einangrunarþrep og
næst munum við sparka Daish út úr
Raqqa. Það mun gerast,“ sagði Brett
McGurk, fulltrúi Bandaríkjahers.
Her SDF telur um 30 þúsund
manns, þar af eru 25 þúsund Kúrdar.
– þea
Beina sjónum
sínum að Raqqa
bandarískir sérsveitarmenn undirbúa
sóknina. nordicpHotos/aFp
stjórnmál Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins,
ræddi við Guðna Th. Jóhannesson,
forseta Íslands, í síma í gær. Ekki
fengust upplýsingar um hvað þeir
ræddu.
Þegar Guðni veitti Bjarna stjórn-
armyndunarumboðið á miðviku-
dag bað forsetinn hann um að vera
í sambandi um eða eftir helgina til
að upplýsa um stöðu mála varð-
andi stjórnarmyndunarviðræður.
Um helgina ræddu Bjarni, Óttarr
Proppé, formaður Bjartrar fram-
tíðar, og Benedikt Jóhannesson,
formaður Viðreisnar, saman. Ótt-
arr sagði þá ekki hafa hist heldur
aðeins „heyrst í raun og veru til
þess að ræða að það væri ekkert
sérstakt að frétta“. Engar formlegar
stjórnarmyndunarviðræður væru
hafnar.
Þá sagðist Óttarr ekki hafa rætt
við forystufólk í öðrum flokkum
um helgina. – skh
Bjarni ræddi við
forsetann í gær
Í dag hófst einangr-
unarþrep og næst
munum við sparka Daish út
úr Raqqa.
Brett McGurk, fulltrúi Bandaríkjahers
7 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 m á n u d a G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
7
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
3
6
-2
D
1
0
1
B
3
6
-2
B
D
4
1
B
3
6
-2
A
9
8
1
B
3
6
-2
9
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
6
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K