Fréttablaðið - 26.10.2016, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 26.10.2016, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 5 3 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r M i ð V i K u d a g u r 2 6 . o K t ó b e r 2 0 1 6 Fréttablaðið í dag sKoðun Kári Stefánsson skrifar um sögu Sjón. 15 sport Gunnar Nelson er meiddur á ökkla. Vonast til þess að berjast sem fyrst á nýju ári. 16 tÍMaMót Hallgrímskirkja vígð við sögulega athöfn á þessum degi fyrir þrjátíu árum. 18 lÍfið Bestu bílarnir í kvik­ myndum. 28 MarKaðurinn Staða hagkerfisins hefur batnað mikið. Vaxandi hætta er á ójafn­ vægi og ofhitnun. Faxafeni 11 • Sími 534 0534 Finndu okkur á KVÖLDOPNUN ÚT VIKUNA hluti af ÞÚ ÞARFT í hádeginu Sautján af 42 farþegum sem voru í rútunni sem fór út af veginum á við Skálafellsafleggjarann á Þingvallavegi í gær voru fluttir á Landspítala Íslands. Þar af voru tveir fluttir á gjörgæsludeild. Bílstjórinn og leiðsögumaðurinn voru íslenskir en rútan var á vegum Skagaverks ehf. og var ekki á nagladekkjum en á góðum dekkjum samkvæmt forsvarsmanns Skagaverks. Farþegarnir voru flestir kínverskir. Alls voru 27 farþegar fluttir í fjöldahjálparstöð Rauða krossins í Mosfellsbæ. Búið var að útskrifa nokkra farþega þegar Fréttablaðið fór í prentun. Fréttablaðið/Vilhelm plús sérblað l fólK *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 saMfélag Starfsmannaþjónustan Elja hefur haft milligöngu fyrir tólf dekkjaverkstæði til að manna starfs­ stöðvar þeirra yfir helsta álagstímann hjá fyrirtækjunum nú í vetrarbyrjun. Þegar hafa komið til landsins rúm­ lega 80 manns til að leysa úr vanda fyrirtækjanna í þeirri tveggja mánaða törn sem fram undan er. Hópurinn dreifist á 23 starfsstöðvar þessara tólf fyrirtækja á höfuðborgar svæðinu, í Reykjanesbæ, á Akureyri og Selfossi. Starfsmennirnir koma flestir frá Litháen, en einnig frá Póllandi, Ung­ verjalandi og Rúmeníu. Elja hóf starfsemi í janúar og hefur strax fengið hingað til starfa rúmlega 400 manns – en í augnablikinu eru 250 manns við störf á vegum fyrir­ tækisins hjá fjölbreyttri flóru fyrir­ tækja. – shá / sjá síðu 6 Dekka vandann með útlendum verkamönnum stjórnMál „Þetta er mjög alvarleg staða fyrir Samfylkinguna. Nú ríður á að safna öllum mögulegum atkvæð­ um fyrir laugardaginn. Ég bara bendi fólki á að hér verður ekki raun­ veruleg umbótastjórn nema Sam­ fylkingin verði með sterkari stöðu. Það er mikið í húfi,“ segir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir um nýja skoð­ anakönnun Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis. Könnunin var gerð í gær og í fyrrakvöld. Niðurstöðurnar benda til þess að Sjálfstæðisflokkurinn fái flest atkvæði allra flokka. Alls segist 25,1 prósent þeirra sem afstöðu taka ætla að kjósa flokkinn, en 23,7 pró­ sent sögðust ætla að kjósa flokkinn í síðustu viku. Píratar eru næststærsti flokkurinn með 20,3 prósenta fylgi og Vinstri græn eru með 16,4 prósenta fylgi. Framsóknarflokkurinn og Viðreisn eru álíka stórir, fyrrnefndi flokkurinn með 11,2 prósenta fylgi en Viðreisn með 10,8 prósent. Báðir flokkar bæta við sig milli vikna því að í síðustu viku mældist Framsóknarflokkurinn með 8,5 prósent og Viðreisn með einungis 6,6 prósent. Samfylkingin er núna með sex prósenta fylgi, sem er svipað og flokkurinn var með í síðustu viku, og Björt framtíð tapar fylgi milli vikna, er með 5,1 prósent núna en var með 7,4 prósent. Undanfarið hafa Píratar, VG, Sam­ fylkingin og Björt framtíð rætt saman um samstarf eftir kosninga. Sigríður Ingibjörg segir Samfylkinguna þó ekki geta tekið þátt í stjórnarsam­ starfi ef niðurstöður kosninga verða í samræmi við kannanir. „Ekki við þessar aðstæður en við þurfum að styrkja stöðu okkar til að geta farið í slíkt samstarf.“ Fleiri taka afstöðu í þessari könnun en í fyrri könnunum Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis, eða 76,6 prósent. Rúm sex prósent segjast ekki ætla að kjósa eða skila auðu, níu prósent segjast óákveðin og tæp átta prósent kjósa að svara ekki spurningunni. Í könnun sem gerð var fyrir viku tóku 68 prósent svarenda afstöðu. Ein leið til að túlka þá niðurstöðu er að fólk sé í auknum mæli farið að velta fyrir sér kosningunum sem eru á laugar­ daginn. Könnunin var gerð þannig að hringt var í 1.127 manns dagana 24. og 25. október þar til náðist í 802 sam­ kvæmt lagskiptu slembiúrtaki. Svar­ hlutfallið var því 71,2 prósent. – jhh Sjálfstæðismenn með afgerandi forystu Sjálfstæðisflokkurinn er með tæplega fimm prósentustiga forskot á Pírata í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis. Þingmaður Samfylkingar segir flokkinn ekki geta tekið þátt í stjórn með óbreytt fylgi. Björt framtíð er nálægt því að þurrkast út. 5,1% 5,1% 11,2% 20 ,3 % 6% 25,1% 10 ,8 % 16,4 % aðrir ✿ Könnun 24. og 25. okt. V i ð s K i p t i Bandaríska fyrir­ tækið Pentair Aquatic Eco Syst­ ems Ltd. hefur fest kaup á Vaka fiskeldiskerfum. Vaki hefur verið leiðandi afl í vöruþróun innan fisk­ eldis um allan heim í þrjá áratugi. Hjá fyrirtækinu starfa 28 manns á Íslandi, auk 22 til viðbótar í dóttur­ félögum í Chile, Noregi og Skotlandi. Yfir 90 prósent af umsvifum Vaka eru á erlendum mörkuðum. Helstu vörur Vaka eru fiskiteljarar, búnaður til stærðarmælinga á eldisfiski, ásamt dælum, flokkurum, fóðurkerfi og öðrum vörum fyrir iðnvætt fiskeldi. Pentair er skráð í kauphöllina í New York og hefur 30.000 starfsmenn í sextíu löndum sem starfa m.a. innan orkugeirans, matvælaiðnaðar, vatns­ meðhöndlunar og fjarskipta. – hh / sjá Markaðinn. Stórfyrirtæki kaupir Vaka fiskeldiskerfi 2 6 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 1 0 -C 6 0 4 1 B 1 0 -C 4 C 8 1 B 1 0 -C 3 8 C 1 B 1 0 -C 2 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 2 5 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.