Fréttablaðið - 26.10.2016, Blaðsíða 2
Veður
Vestan hvassvirði með suðurströndinni,
en hægari vestlæg átt annars staðar.
Skúrir eða slydduél um landið vestan-
vert, en lengst af þurrt um landið austan-
vert. Hiti 3 til 8 stig. sjá síðu 20
Draga fólk á kjörstað
ZENDIUM STYRKIR
NÁTTÚRULEGAR
VARNIR MUNNSINS
FÉLAG ÍSLENSKRA
TANNFRÆÐINGA MÆLIR
MEÐ ZENDIUM TANNKREMI
samfélag Barnaverndaryfirvöld á
Íslandi leggja allt kapp á að Eyjólfur
Kristinn Elvuson, fimm ára drengur,
verði ekki sendur til Noregs á fóstur-
heimili. Komið var saman á Austur-
velli í gær til að mótmæla yfirvof-
andi brottflutningi.
Forsaga málsins er sú að norsk
barnaverndaryfirvöld sviptu Elvu
Christinu forsjá yfir drengnum, en
hún var búsett þar í landi ásamt
móður sinni. Þegar úrskurður yfir-
valda kom tók fjölskyldan saman
föggur sínar og flúði til Íslands.
Héraðsdómur Reykjavíkur
úrskurðaði í málinu í byrjun mánað-
arins. Tvennum sögum fer af því hvað
úrskurðurinn þýðir en sagt hefur
verið frá því í fjölmiðlum að senda
eigi drenginn til Noregs á fósturheim-
ili næstu þrettán árin. Dómurinn þýði
að móðir drengsins, Elva Christina,
komi aðeins til með að hitta drenginn
tvisvar á ári undir eftirliti.
Starfsfólk Barnaverndarstofu sem
Fréttablaðið ræddi við segir málið
ekki svo klippt og skorið. Úrskurður
héraðsdóms merki að norsk barna-
verndaryfirvöld fari með forsjá
drengsins og hann eigi að vera í umsjá
þeirra. Hins vegar sé ekkert í dómn-
um sem komi í veg fyrir að norsk
barnaverndaryfirvöld velji barninu
fósturheimili hér á landi.
Heimildir Fréttablaðsins herma að
viðræður séu þegar hafnar við norsk
yfirvöld og bjartsýni ríki á niðurstöðu
málsins.
Dómur héraðsdóms byggir á Haag-
samningnum um einka réttar leg áhrif
af brottnámi barna til flutnings á milli
landa. Á vefsíðu Barnaverndarstofu
kemur fram að markmið samnings-
ins sé fyrst og fremst að leysa úr því ef
annað foreldri barns flytur barn með
ólögmætum hætti til annars lands.
Honum hefur verið beitt þegar um
forræðisdeilu foreldra er að ræða en
þeir starfsmenn Barnaverndarstofu
sem Fréttablaðið ræddi við minnt-
ust þess ekki að samningnum
hefði verið beitt til að
senda íslenskt barn út til
erlendra barna verndar-
yfirvalda. Það væri ekki
venjan.
Oddgeir Einarsson,
lögmaður móður drengs-
ins, segir úrskurð héraðs-
dóms skýran um að koma
eigi barninu fyrir á fóstur-
heimili. Málið sé þó til
meðferðar hjá Hæsta-
rétti Íslands sem eigi eftir að dæma í
málinu. „Ég hef ekkert fast í hendi
um að það náist samningur þarna á
milli. Ef maður horfir á þetta burt séð
frá öllum lagaákvæðum þá er þarna
strákur sem er fæddur á Íslandi, talar
íslensku og á íslenska foreldra, hann
er á leikskóla hérna og gengur vel og
barnaverndaryfirvöld í Reykjavík hafa
haft eftirlit með heimilinu. Manni
finnst þetta öskra á að þetta eigi ekki
að geta gerst. Það sé ekki í samræmi
við mannréttindi stráksins og friðhelgi
fjölskyldu hans.“ Oddgeir segir mik-
inn fjölda af ættingjum hér á landi
geta tekið við drengnum. Faðir
drengsins, sem er búsettur
í Danmörku, undirbýr nú
mál gegn norska ríkinu
til að fá forræði drengs-
ins.
snaeros@frettabladid.is
Reyna allt svo Eyjólfur
verði ekki sendur burt
Íslensk barnaverndaryfirvöld reyna nú að ná samningum við norsk yfirvöld svo
íslenski drengurinn Eyjólfur Kristinn Elvuson verði ekki sendur til Noregs á fóstur-
heimili. Lögmaður móður drengsins segir að málið varði mannréttindi barnsins.
Oddgeir Einarsson,
lögmaður móður
drengsins.
Elva Christina og sonur hennar, Eyjólfur Kristinn Elvuson, komu hingað til lands í
sumar þegar norsk yfirvöld höfðu svipt Elvu forræði yfir drengnum. Hún hafði þá
verið í neyslu fíkniefna. Hér á landi hefur hún farið í regluleg próf sem benda til
þess að hún sé ekki lengur í neyslu. Fréttablaðið/antOn brinK
samfélag Hæstiréttur hefur dæmt
öryggistrúnaðarmann HS Veitna
í fimmtán mánaða fangelsi fyrir
fíkniefnamisferli. Við ákvörðun
refsingarinnar var horft honum til
refsimildunar að hann hafði ekki
sætt refsingu áður.
„Við vissum af þessu máli og
vorum að bíða eftir úrskurði
Hæstaréttar,“ segir Egill Sigmunds-
son, forstöðumaður rafmagns-
deildar HS Veitna. Honum hefur
ekki verið vikið úr starfi en Egill
segir málið vera til skoðunar.
Öryggistrúnaðarmaðurinn var
handtekinn heima hjá sér í apríl
2014. Á heimili hans fundust um
það bil 250 grömm af amfetamíni,
100 grömm af kókaíni, 50 grömm
af marijúana og um 600 stykki af
MDMA-töflum. Ásamt fíkniefnun-
um var lagt hald á sex fartölvur sem
stolið hafði verið úr tölvuverslun
daginn áður.
Öryggistrúnaðarmaður er kosinn
af starfsmönnum til þess að sinna
vinnuverndarverkefnum fyrir
þeirra hönd. Honum ber að fylgjast
með því, að aðbúnaður, hollustu-
hættir og öryggi á vinnustað séu í
samræmi við vinnuverndarlög. – þh
HS Veitur
vissu af
misferli
Dómurinn féll í Hæstarétti Íslands.
Fréttablaðið/GVa
Við vissum
af þessu máli og
vorum að bíða eftir úrskurði
Hæstaréttar
Egill Sigmundsson, forstöðumaður raf-
magnsdeildar HS Veitna
HValVEIðaR Tillaga um griðasvæði
fyrir hvali í Suður-Atlantshafi var
felld í Alþjóðahvalveiðiráðinu í
gær. Alls greiddu 38 þjóðir atkvæði
með tillögunni en 24 gegn henni.
Þrjá fjórðu atkvæða hefði þurft til
að tillagan fengist samþykkt.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
slík tillaga er lögð fram og að sama
skapi ekki í fyrsta skipti sem hún
er felld. Ólíklegt þótti að tillagan
fengist samþykkt nú.
Meðal þjóða sem greiddu
atkvæði gegn tillögunni voru hval-
veiðiþjóðirnar Japan, Noregur og
Ísland.
Rúmlega 2,9 milljónir hvala
voru drepnir á síðasta ári, rúmlega
71 prósent drepnir þar sem griða-
svæðið hefði átt að vera.
Fyrir ráðinu liggur einnig tillaga
um að Japanar muni þurfa sam-
þykki ráðsins fyrir vísindaveiðum
sínum. Allar líkur eru á að sú tillaga
verði felld. – jóe
Hvalir fá ekki
griðasvæði
„Hugmyndin kviknaði í kringum orðagrínið að „draga fólk á kjörstað“„ segir dragdrottningin Drama Tík. Ragna Rök og Turner Strait óku, ásamt
henni, fólki á kjörstað í gær. Saman mynda þau leiklistarhópinn Dragsúg sem er með reglulegar sýningar hér í höfuðborginni. Óvíst er hvort þau
muni skutla fleirum að kjörborðinu næsta laugardag, en tilkynningar þess efnis yrði að finna á Facebook-síðu hópsins. Fréttablaðið/Hanna
2 6 . o k t ó b E R 2 0 1 6 m I ð V I k u D a g u R2 f R é t t I R ∙ f R é t t a b l a ð I ð
2
6
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
0
-C
A
F
4
1
B
1
0
-C
9
B
8
1
B
1
0
-C
8
7
C
1
B
1
0
-C
7
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K