Fréttablaðið - 26.10.2016, Page 10
Stjórnmálaflokkar styðjast við sam-
félagsmiðla í auknum mæli til þess að
koma stefnu sinni og sjónarmiðum á
framfæri nú þegar kosningabaráttan
er á lokametrunum. Kosið verður til
Alþingis á laugardaginn.
Algengt er að framboð birti jafnt
myndir sem myndbönd á Facebook,
Snapchat og Twitter. Annars vegar
myndbönd þar sem frambjóðendur
eru kynntir og hins vegar þar sem
stefna flokksins er kynnt.
Þá hafa fjölmargir flokkar einnig birt
einfaldar myndir af frambjóðendum
sínum þar sem tilvitnunum, ýmist í
frambjóðandann sjálfan eða stefnu
flokksins, hefur verið skeytt við mynd-
ina. Samfylkingin tók þá hugmynd
skrefinu lengra og birti tilvitnanirnar
á fjölda tungumála, allt frá færeysku til
tyrknesku, í nafni fjölmenningar.
Mættu gera enn meira
Andrés Jónsson almannatengill segist
hafa orðið var við þessa aukningu.
Honum finnst þó að flokkar megi gera
enn meira af því að auglýsa á sam-
félagsmiðlum. „Enginn þeirra stendur
eitthvað sérlega framarlega í þessum
málum en flokkarnir hafa náð ágætis
dreifingu á þessi myndbönd sem þeir
hafa verið að gera. Svo hafa sumir
flokkar líka verið að klippa saman
myndbönd af því þegar frambjóð-
endur hafa verið í sjónvarpssal. Það
eru mun færri sem horfa á línulegt
sjónvarp en áður þannig það er góð
þjónusta að klippa saman bestu brotin
og setja texta,“ segir hann.
Ástæðu þessarar áherslu á sam-
félagsmiðla segir Andrés einna helst
vera þá að margir séu á samfélags-
miðlum. „Á Íslandi er mjög hátt hlut-
fall kjósenda á Facebook.“ Hins vegar
segir hann ekki þar með sagt að hægt
sé að ná til allra notenda þar sem skoð-
anir þeirra eru misjafnar. Hann segir
notkun samfélagsmiðla einnig mikil-
væga því umræðan um stjórnmál sé
fyrst og fremst þar.
„Mesta umræðu fékk myndbandið
af Bjarna að skreyta köku fyrir dóttur
sína og sitt sýndist hverjum um það.
Ég er hins vegar á því að það hafi verið
nettó-ávinningur af myndbandinu
fyrir hann þótt það hafi ekki komið
fram í könnunum. Fyrir óákveðna
skiptir máli að kynnast frambjóð-
endum,“ segir Andrés. Einnig nefnir
hann myndband Oddnýjar Harðar-
dóttur þar sem hún útskýrir kvóta-
kerfið með Skittles fyrir ungum dreng.
Myndbandið segir hann hafa náð í
gegn í umræðunni en ekki skilað sér
í könnunum. „Núna síðast hefur inn-
koma Ragnars Kjartanssonar fyrir
Vinstri græn slegið í gegn á Face book
og fengið mjög jákvætt umtal.“
Andrés segir, með fyrirvara um að
það sjái ekki allir það sama á Face-
book, að honum sýnist Sjálfstæðis-
menn hafa, með Bjarna og Áslaugu
Örnu Sigurbjörnsdóttur í fararbroddi,
náð einna mest í gegn auk Vinstri
grænna með Ragnar Kjartansson. „En
Framsóknarflokkurinn, Björt framtíð
og Samfylkingin síður.“ Þá segir hann
Viðreisn einna helst hafa náð í gegn í
aðdraganda baráttunnar með því að
láta frambjóðendur tilkynna um fram-
boð sitt á samfélagsmiðlum.
Samfélagsmiðlar nýttir
í kosningabaráttunni
Kosningabaráttan er á lokametrunum. Framboð til Alþingis leitast við að
auglýsa á samfélagsmiðlum sökum þess hve dýr hefðbundin kosningabarátta
er. Myndir og myndbönd hafa vakið mikla athygli á Facebook.
Píratar hafa birt myndir af frambjóð-
endum með tilvitnunum í orð þeirra
og stefnu flokksins ásamt slagorðinu
„Endurræsum Ísland“. Mynd/PÍratar
Flokkur fólksins birti þessa kröfu um
300 þúsund króna skattleysismörk á
Facebook-síðu sinni. Mynd/Flokkur
Fólksins
Viðreisn hefur
líkt og Píratar
birt myndir af
frambjóðendum
með tilvitnunum
auk myndbanda
þar sem fram-
bjóðendur skýra
stefnu flokksins.
Mynd/ViðrEisn
Vinstri græn birtu
myndband sem
skartaði nakinni
konu og ragnari
kjartanssyni á Fa-
cebook-síðu sinni.
Myndbandið var
þó fjarlægt vegna
nektarinnar. Mynd/
skjáskot
Björt framtíð birti
tilkynningu frá
hinu skáldaða
Félagi rasista í
myndbandi á
Facebook-síðu
sinni. Þar eru
rasistar hvattir
til að kjósa ekki
Bjarta framtíð.
Mynd/skjáskot
sjálfstæðisflokkurinn birti myndband á Facebook þar sem
mátti sjá Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra skreyta
köku. Mynd/skjáskot
Stóru fréttirnar
verða fæstar til á
samfélagsmiðlum en eftir-
leikurinn og
umræðan
verður þar.
Andrés Jónsson
almannatengill
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Ljós og hiti
TY2007X
Vinnuljóskastari ECO perur
2x400W tvöfaldur á fæti
6.590
TY2007K
Vinnuljóskastari
m handf 400W ECO
pera, 1,8m snúra
3.290
T38 Vinnuljós
5.590
Rafmagnshitablásari
5Kw 3 fasa
12.830
TY2007W
Vinnuljóskastari
á telescope fæti
400W ECO pera
5.390
Kletthálsi 7, Reykjavík
Fuglavík 18, Reykjanesbæ
SHA-2625
Vinnuljóskastari
Rone 28W m.
innst. blár. 1,8m
snúra
6.990
SHA-8083 3x36W Halogen
16.990
Rafmagnshitablásari
9Kw 3 fasa
17.990
Stjórnmál Þingvallanefnd hefur
ákveðið að lýsa yfir vilja sínum til
að nýta forkaupsrétt á Valhallarstíg
nyrðri 7 við Þingvallavatn. Nefndin
ályktar þó að nauðsynlegt sé að
skoða frekari annmarka á málinu.
Á Valhallarstíg nyrðri 7 stendur
grunnur að sumarbústað og er eign-
in metin á um 85 milljónir króna.
„Nefndin ákvað að lýsa yfir vilja
til þess að nýta forkaupsréttinn og
ætlar að óska eftir því að forsætis-
ráðuneytið skoði feril málsins og
möguleika á fjármögnun á kaup-
um,“ segir Róbert Marshall, full-
trúi Bjartrar framtíðar í nefndinni,
en ákvörðunin var tekin á fundi
nefndarinnar í gær.
Í Fréttablaði gærdagsins kom
fram að óvissa væri um nýtingu
forkaupsréttar. Sagði Róbert þá að
meirihluti nefndarinnar hefði áður
ákveðið að nýta forkaupsréttinn
ekki.
Sigrún Magnúsdóttir, formaður
nefndarinnar og umhverfisráðherra,
sagði í samtali við fréttastofu í gær
að grundvöllur fyrri ákvörðunar
um að nýta réttinn ekki hafi verið
sá að fjárveiting var ekki fyrir hendi.
Hún sagðist jafnframt kát með það
að einhugur hafi verið um að lýsa
yfir vilja um nýtingu forkaupsréttar.
Sérstaklega í ljósi þess að fundurinn
var síðasti fundur nefndarinnar.
Róbert Marshall kveðst einnig
ánægður með niðurstöðuna. „Ég
er himinlifandi með þetta og mjög
ánægður með að meirihlutinn hafi
ákveðið að skoða málið betur og sé
tilbúinn til þess að endurskoða fyrri
ákvörðun sína,“ segir hann. – þea
Þingvallanefnd vill
nýta forkaupsréttinn
Eigendaferill
Valhallarstígs nyrðri 7
l Sonja Zorilla athafnakona
l Vigdís Finnbogadóttir, fyrr-
verandi forseti
l Ástríður Magnúsdóttir, dóttir
Vigdísar
l Ásdís Halla Bragadóttir, fyrr-
verandi bæjarstjóri Garðabæjar
l Bogi Pálsson, núverandi eigandi
af fundi Þingvallanefndar í gær. FréttaBlaðið/EyÞór
Grunnur að sumarbústað á Valhallar-
stíg nyrðri 7. FréttaBlaðið/PjEtur
Framsóknarflokk-
urinn birti mynd-
band úr heimsókn
til sigurðar inga
jóhannssonar for-
sætisráðherra sem
sést hér með hesti.
Mynd/skjáskot
2 6 . o k t ó b e r 2 0 1 6 m I Ð V I k U D A G U r10 f r é t t I r ∙ f r é t t A b l A Ð I Ð
kosningar
2016
Þórgnýr Einar Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
2
6
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
0
-D
9
C
4
1
B
1
0
-D
8
8
8
1
B
1
0
-D
7
4
C
1
B
1
0
-D
6
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K