Fréttablaðið - 26.10.2016, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 26.10.2016, Blaðsíða 12
Suðvesturkjördæmi í hnotskurn 201 6 Ellefu framboð bjóða fram lista í Suðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningar 2016. Hér fyrir neðan má sjá efstu menn á hverjum lista. Eygló Harðardóttir Framsóknarflokki Rósa Björk Brynjólfsdóttir Vinstri grænum Ragnar Ingólfsson Dögun Jón Þór Ólafsson Pírötum Óttarr Proppé Bjartri framtíð Ãrni Páll Árnason Samfylkingunni Guðmundur Ingi Kristinsson Flokki fólksins Þorgerður Katrín Gunnarsdóttiir Viðreisn Guðmundur Magnússon Alþýðufylkingunni Bjarni Benediktsson Sjálfstæðisflokki Ragnheiður Ríkharðsdóttir þingmaður Sjálfstæðis- flokksins Katrín Júlíusdóttir þingmaður Sam- fylkingarinnar Ögmundur Jónasson þingmaður VG Þingmenn sem hætta Úrslit síðustu kosninga Þingmenn Fjöldi á kjörskrá í kosningunum 2013 63.125 Stærð kjördæmis 770 km2 Sveitarfélög í kjördæminu Hafnarfjarðarkaupstaður, Garðabær, Kópavogsbær, Seltjarnarnesbær, Mosfellsbær og Kjósarhreppur. 13 þingmenn tilheyra Suðvesturkjördæmi, fleiri en í nokkru öðru kjör- dæmi. Karlar 33.567 Konur 34.675 Fjöldi á kjörskrá 68.242 Ég vil sjá stjórn­ málafólk við völd sem sýnir ráðdeild í rekstri. Þannig gæti kaupmáttur fólks aukist, en jafnframt ættu fátækir ekki að líða skort í samfélaginu. Þórður Tryggva- son, læknir á Sel- tjarnarnesi Heilbrigðisþjónusta, menntun og lög­ gæsla eru mér efst í huga fyrir þessar kosningar. Ég hef áhyggjur af því að þessi grunnþjónusta hafi setið eftir síðustu ár. Ólafur Örn Braga- son, sálfræðingur í Mosfellsbæ Jöfnuður er mér ofarlega í huga. Þá er ég ekki að tala um að enginn megi vera ríkur. Það þurfa bara allir að geta lifað með reisn og öll börn þurfa að eiga sömu tækifæri. Sigríður Guðlaugs- dóttir, verkefna- stjóri hjá Barna- heillum, Garðabæ Hvað segja kjósendur? HveR eRu bRýnustu Kosningamálin? Suðvesturkjördæmi er fjölmennasta kjördæmið á landinu. Á kjörskrá eru rúmlega 68 þúsund manns. Kjör- dæmið hefur lengi verið eitt sterkasta vígi Sjálfstæðisflokksins og á flokkur- inn núna fimm af þrettán þingmönn- um kjördæmisins. Sveitarfélögin í kjördæminu eru Hafnarfjörður, Garðabær, Kópavogur, Seltjarnar- nes, Mosfellsbær og Kjósarhreppur. Í fimm af þessum sex sveitarfélögum á Sjálfstæðisflokkurinn aðild að meiri- hlutastjórn eða meirihlutinn er skip- aður Sjálfstæðismönnum eingöngu. Flestir þeir sem Fréttablaðið hefur rætt við í Norðvestur-, Norðaustur- og Suðurkjördæmi segjast vilja sjá atvinnumál og samgöngumál sem helstu áhersluatriði kosningabarátt- unnar. Mikil áhersla virðist einnig lögð á það í Suðvesturkjördæmi. Kjósarhreppur er minnsta sveitar- félagið í Suðvesturkjördæmi. Guðný G. Ívarsdóttir sveitarstjóri segir áhersluna í sveitarfélaginu vera á lagningu hitaveitu og verið sé að ljós- leiðaravæða í leiðinni. „Svo brenna vegamálin á okkur,“ segir hún. Nú sé verið að vinna við Kjósarskarðsveg, sem íbúar í Kjósinni hafi barist fyrir lengi. „Það er byrjað að leggja á hann bundið slitlag og vonast eftir að það verði klárað. Síðan er það að klára Eyrarfjallsveginn, að setja á hann bundið slitlag,“ segir Guðný. Hún segir það einnig orðið knýjandi að breikka brú þar sem þjóðvegur fer yfir Laxá í Kjós. „Á síðustu árum hefur orðið mikil aukning á ferðamönnum í Kjósinni. Ferðamenn standa á ein- breiðri Laxárbrúnni og virða fyrir sé Laxfoss og umhverfið. Brúin, eins og hún er nú, er mikil slysagildra.“ Guðlaug Kristjánsdóttir, fyrrverandi formaður Bandalags háskólamanna, hefur verið bæjarfulltrúi Bjartrar fram- tíðar og formaður bæjar ráðs í Hafnar- firði frá vorinu 2014. Hún nefnir mál- efni ungs fólks þegar hún er spurð hvaða málefni brenni helst á henni fyrir þessar kosningar. Í fyrsta lagi sé þar vert að hugsa um fæðingarorlofið. „Það þarf að gera það bærilegra og loka bilinu milli fæðingar orlofs og leikskóla,“ segir hún. Ríki og sveitar- félög þurfi að vinna saman að fjár- mögnun þess. „Húsnæðismálin tala beint við unga fólkið líka og þar þurfum við stöðugan gjaldmiðil og heilbrigðara vaxtaumhverfi af því að það er grunnurinn að öllu í sambandi við húsnæðismál, hvort sem það eru lánin eða byggingarkostnaður eða hvað sem það nú er,“ segir hún. Guðlaug segir líka brýnt að huga að atvinnulífi og þekkingarstörfum í Kraganum. „Það þarf að leggja áherslu á nýsköpun og þróun í atvinnumál- um,“ segir hún. Þá nefnir hún sam- göngur, enda sé stórhöfuðborgar- svæðið eitt atvinnusvæði. „Það þarf að vinna áfram borgarlínuna þannig að Hafnfirðingar, til dæmis, séu fljótir að komast á milli bæja.“ Greiðari umferð hafi jákvæð áhrif á allt daglegt líf og fjölskyldulíf. „Eina trúverðuga leiðin til þess að létta á samgöngum eru almenningssamgöngurnar. Og við í Hafnarfirði þurfum öruggar veg- tengingar við Reykjanesbrautina, eins og hjá Krýsuvíkurveginum.“ Segir stöðugan gjaldmiðil stuðla að betra húsnæðiskerfi Samgöngumál eru eitt mikilvægasta hagsmunamál íbúa í Suðvesturkjördæmi, rétt eins og á landsbyggð- inni. Húsnæðismál og öflugt atvinnulíf skipta líka máli. Kraginn er stærstur af kjördæmunum sex. Staða Sjálfstæðisflokksins er sterk og flokkurinn á aðild að meirihluta í sveitarstjórnum alls staðar nema í Kjós. eitt af sex sveitarfélögum í suðvesturkjördæmi er Hafnarfjörður. Formaður bæjarráðs vill að hugað sé að atvinnulífi og þekk- ingarstörfum í kjördæminu. Það sé líka brýnt að tryggja samgöngur milli sveitarfélaga. FRéttablaðið/Daníel Jón Hákon Halldórsson jonhakon@365.is Kosningar 2016 7,9% 13,6% 30,7% 21,5,% 5,0% 9,2% Húsnæðismálin tala beint við unga fólkið líka og þar þurfum við stöðugan gjaldmiðil og heilbrigðara vaxta­ umhverfi. Guðlaug Kristjáns- dóttir bæjarfulltrúi 2 6 . o K t ó b e r 2 0 1 6 M I Ð V I K U D A G U r12 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A Ð I Ð 2 6 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 1 0 -C 6 0 4 1 B 1 0 -C 4 C 8 1 B 1 0 -C 3 8 C 1 B 1 0 -C 2 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 2 5 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.