Fréttablaðið - 26.10.2016, Side 16
Haraldur í Stjörnuna
Pepsi-deildarlið Stjörnunnar
tilkynnti á Facebook-síðu sinni
í gær að það væri búið að ná
samningum við markvörðinn
Harald Björnsson en hann samdi
við Garðabæjarfélagið til þriggja
ára. Haraldur er 27 ára gamall
markvörður sem varði mark u21
árs landsliðsins í lokamótinu
í danmörku 2011. Hann er
uppalinn Valsmaður og fór þaðan í
atvinnumennsku fyrir fimm árum.
Hann spilaði með Sarpsborg,
östersund og nú síðast lilleström
í norsku úrvalsdeildinni þar sem
hann vermir tréverkið. Haraldur
spilaði síðast vináttulandsleik fyrir
ísland í janúar en hann á að baki
27 leiki fyrir yngri landslið íslands.
Haraldur er þriðji aðalmarkvörð-
urinn sem Stjarnan fékk til sín eftir
að Ingvar jónsson fór í atvinnu-
mennsku haustið 2014. Fyrir
ári stóð Gunnar nielsen í marki
Stjörnunnar en hann
fór í FH og í sumar var
aðalmarkvörður
liðsins jamaíku-
maðurinn duwa-
yne Kerr sem fór
áður en tíma-
bilið var búið.
Stjarnan hafnaði
í öðru sæti
á síðustu
leiktíð og
verður í
Evrópu-
deild-
inni
næsta
sumar.
Í dag
18.40 West Ham - Chelsea Sport 2
18.55 Man. Utd - Man. City Sport
19.05 Grindavík - Snæfell Sport
Domino’s-deild kvenna
19.15 Grindavík - Snæfell Röstin
19.15 Keflavík - Valur TM-höllin
19.15 Skallagr. - Njarðvík Borganes
19.15 Haukar - Stjarnan Schenkerh.
Nýjast
Enski deildabikarinn
Arsenal - Reading 2-0
1-0 Alex Oxlade-Chamberlain (34.), 2-0 Alex
Oxlade-Chamberlain (78.).
Bristol - Hull 1-2
0-1 Harry Maguire (44.), 0-2 Michael Daw-
son (47.), 1-2 Lee Tomlin (90.).
Leeds - Norwich 2-2
0-1 Alex Pritchard (14.), 1-1 Marcus Antons-
son (43.), 1-2 Nélson Oliveira (99.), 2-2 Chris
Wood (109.)
Leeds vann, 3-2, í vítaspyrnukeppni.
Liverpool - Tottenham 2-1
1-0 Daniel Sturridge (9.), 2-0 Daniel Stur-
ridge (64.), 2-1 Vincent Janssen (76.).
Newcastle - Preston 6-0
1-0 Aleksandar Mitrovic (19.), 2-0 Mohamed
Diame (38.), 3-0 Matt Ritchie (53.), 4-0
Aleksandar Mitrovic (55.), 5-0 Mohamed
Diame (87.), 6-0 Ayoze Perez (90.).
Rautt: Alan Browne, Preston (25.).
mma „Ég var á opinni æfingu hjá
uFC í dublin þegar ég meiðist. Það
er frekar kaldhæðnislegt því ég er að
sýna æfingar rólega fyrir blaðamenn
er þetta gerist,“ segir bardagakapp-
inn Gunnar nelson en hann mun
ekki ná því að berjast í aðalbardaga
á bardagakvöldi í Belfast þann 19.
nóvember næstkomandi vegna
meiðsla.
Hann er mjög illa tognaður á
ökkla og svo illa að það er engin leið
að hann hefði náð bardaganum.
Hélt andliti í tvær mínútur
„Ég er að snúa æfingafélaga minn
rólega niður, og eiginlega of rólega,
og þá leggst hann ofan á ökklann
á mér þannig að það snýst illa upp
á hann. Ég hélt áfram að glíma í
svona tvær mínútur en sagði félaga
mínum að ég hefði meitt mig. Ég
hélt andliti í svona tvær mínútur en
svo varð ég að hætta vegna verkja.
tíu mínútum síðar gat ég ekki einu
sinni tyllt í fótinn.“
Gunnar segist fljótlega hafa gert
sér grein fyrir því að það yrði mikið
kapphlaup að ná þessum bardaga.
„Ég var alveg niðurbrotinn fyrst
og hélt að þetta væri búið. Þetta væri
það alvarlegt. Þjálfarinn minn hélt
í fyrstu að ég hefði brotnað en svo
kom í ljós að ég hafði ekki brotnað.
Þetta var alvarleg tognun innan og
utan á ökklanum,“ segir Gunnar en
hann gerði allt hvað hann gat til
að fá sig góðan af meiðslunum.
Gerði allt sem hann gat
„Ég fékk ráðleggingar frá ökklasér-
fræðingi í dublin um að ég ætti að
hvíla þetta alveg í viku. Byrja svo
að hreyfa ökklann í vatni ásamt því
að vera stanslaust að kæla og hita
ökklann til skiptis. Svo átti ég að
gera stigvaxandi álagsæfingar fyrir
ökklann þegar hann væri orðinn
betri. Ég var farinn að geta labbað
nokkuð eðlilega eftir svona tíu daga.
Þá fór ég að verða bjartsýnn á ný.
Það voru miklar sveiflur í þessu.“
Þetta gekk allt saman ágætlega
hjá Gunnari en þegar kom að því
að láta reyna á ökklann af alvöru þá
uppgötvaði hann að ökklinn yrði
aldrei nógu góður fyrir bardagann
í Belfast.
„Ég á enn nokkuð í land með að
verða nógu góður og þjálfararnir
mínir sögðu að ég yrði bara að sætta
mig við að ég myndi ekki geta bar-
ist að þessu sinni,“ segir Gunnar og
vonbrigðin leyna sér ekki í andliti
hans.
„Það er erfitt að lýsa því hvað ég
er svekktur. Ég hef barist einu sinni
á írlandi og það var alveg geðveikt.
nú átti ég að vera í aðalbardaga
og þvílíkt mikið af fólki sem var
á leiðinni út til að styðja mig. Mig
langaði svo mikið að vera þarna en
svo gerist eitthvað sem maður ræður
ekki við. Þetta er bara ömurlegt fyrir
alla.“
Gunnar segir það vera nokkuð
ljóst úr þessu að hann berjist ekki
aftur á þessu ári. næst er að ná sér
heilum og svo getur hann farið að
leita að andstæðingi aftur.
„Ég talaði við john þjálfara og
hann sagði að það væri best að
byrja á því að ná mér alveg góðum.
Það væri klúður að reyna að koma á
einhverjum bardaga núna og lenda
svo í því að vera ekki orðinn nógu
góður. Eiga jafnvel lélegar æfinga-
búðir og vera í veseni þegar kæmi
að bardaga,“ segir Gunnar en hann
vonar þó að hann verði orðinn
góður fyrir jól og geti síðan farið að
skoða landslagið.
„Ég er að vonast eftir því að geta
barist aftur eins fljótt á nýju ári og
mögulegt er.“ henry@frettabladid.is
Ég var alveg niðurbrotinn
UFC staðfesti í gær að Gunnar Nelson mun ekki berjast við Kóreubúann Dong Hyun Kim í Belfast í næsta
mánuði. Gunnar er meiddur á ökkla. Okkar maður vonast til þess að berjast sem fyrst á nýju ári.
Gunnar ætlar að snúa sterkur til baka á nýju ári. fRéTTABLAðið/GeTTy
aðEInS EItt SætI EFtIr
Stjörnum prýtt lið Þróttar Vogum
er úr leik í Coca Cola-bikar karla
í handbolta eftir tap gegn Gróttu
sem verður í hattinum þegar
dregið verður í átta liða úrslitin.
Víkingur vann sannfærandi sigur
á Kr í gær í uppgjöri tveggja fyrstu
deildar liða og er einnig kominn
áfram ásamt HK, Fram, Selfossi,
aftureldingu og Stjörnunni. Einn
leikur er eftir en á laugardaginn
mætast íBV 2 og Mílan.
2 6 . o k t ó b E r 2 0 1 6 m I Ð V I k U D a G U r16 s p o r t ∙ F r É t t a b L a Ð I Ð
Mættu og taktu númer
Gömlu kempurnar fengu skell í bikarnum
Engu gleymt Logi Geirsson skoraði sex mörk og var markahæstur í liði Þróttar Vogum sem tapaði, 33-23, fyrir Gróttu í 16 liða úrslitum Coca
Cola-bikarsins í gærkvöldi. Lið Þróttar Vogum spilar bara í bikarnum og mætir ávallt til leiks með stjörnum prýtt lið. fRéTTABLAðið/HANNA
sport
2
6
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
0
-E
8
9
4
1
B
1
0
-E
7
5
8
1
B
1
0
-E
6
1
C
1
B
1
0
-E
4
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K