Fréttablaðið - 26.10.2016, Side 18

Fréttablaðið - 26.10.2016, Side 18
Eyjólfur Pálsson, stofnandi Epal, er stærsti hluthafi Epal og átti tæplega 52 prósenta hlut í árslok 2015. Fréttablaðið/GVa „Ísland trónir efst á listum um jafn- rétti og hefur gert það síðustu sex árin, en við erum að reyna að átta okkur á hver sé raunveruleg staða jafnréttismála hér á landi, hvernig fólk í mismunandi geirum sé að upplifa stöðuna,“ segir Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, en þær Edda- Hermannsdóttir hafa ritað viðtals- bók um jafnréttismál sem gefin verður út í byrjun næsta árs. Bókin, Forystuþjóð, er gefin út í samstarfi við Samtök atvinnulífs- ins, og hafa þær fengið stuðning frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu og velferðarráðuneytinu. „Þetta eru yfir 30 sögur ólíks hóps úr mismunandi geirum,“ segir Ragnhildur Steinunn. „Við lögðum mikla áherslu á að fá fólk til að tjá sig um þetta mál sem hefur ekki verið að gera það áður og að fá karla inn í umræðuna líka.“ „Það sem er áhugavert við þetta er að fólk er mjög ósammála um hvaða leiðir eigi að fara til að ná jafnréttismarkmiðum. Okkur finnst umræðan búin að vera ansi einsleit, og sami hópurinn er svo- lítið búinn að vera að tala um þetta. Sumir viðmælendur eru mjög hlynntir kynjakvótum og jafnlaunavottun, á meðan aðrir eru algjörlega ósammála því,“ segir Edda. „Við erum búnar að vinna þessa bók í yfir ár og það sem hún hefur gert fyrir okkur er það sem við vonum að hún geri á markaðnum, að hún hristi upp í hugmyndum okkar,“ segir Ragnhildur Steinunn. „Við endurskilgreinum svolítið jafnréttisbaráttuna, og vonandi fer fólk að hugsa á annan hátt um brýnustu efnin,“ segir Edda. „Ég held að það sé lína í bókinni að allir séu sammála um að við séum komin langt, þess vegna heit- ir hún Forystuþjóð. Hugmyndin að bókinni kviknaði í fyrra þegar við vorum að fagna 100 ára kosninga- réttarafmæli kvenna, mikið hefur áunnist en mörg baráttumál eru eftir,“ segir Edda. Ragnhildur Steinunn bendir á að þótt halli oftast á einn veg séu einnig ýmis jafnréttismál sem varða karla. „Fæðingarorlof feðra og feðrarétturinn eru ekki síður mál sem við eigum öll að berjast fyrir.“ „Ísland hefur allt til að vera forystuþjóð á sviði jafnréttis. Við höfum það rosalega gott lagalega, en við þurfum líka að átta okkur á því að ef ósanngirni ríkir, verður hún ekki minni með því að benda á aðrar þjóðir og segja þær hafa það verra. Við eigum ekki að sætta okkur við það. Við eigum að fara alla leið og vera forystuþjóð,“ segir hún. Þær segjast hafa fundið mikinn meðbyr með bókinni, fjölmörg fyrirtæki hafa nú þegar keypt hana fyrir sína stjórnendahópa. Þær vilja skapa líflegar umræður þegar bókin kemur út og segja að mikil vitundarvakning sé nú í jafnréttis- málum. „Það verða líklega tekin ákveðin skref í þessari byltingu í róttæka átt á næstunni,“ segir Edda. saeunn@frettabladid.is Ekki nóg að vera betri en önnur lönd Edda Hermannsdóttir og Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir gefa í byrjun næsta árs út viðtalsbók um jafnréttismál í atvinnulífinu. Þær lögðu upp úr því að tala við fólk sem hefði ekki tjáð sig um málið áður og að heyra hlið beggja kynja. ragnhildur Steinunn og Edda koma úr ólíkum geirum og áttum að bókinni og segja gaman að sameina krafta sína með henni. Fréttablaðið/Ernir Fólk er mjög ósam- mála um hvaða leiðir eigi að fara til að ná jafnréttismarkmiðum. Edda Hermannsdóttir Á árinu 2015 var hagnaður á rekstri Epal hf. að fjárhæð 39,6 milljónir króna, samanborið við 41,3 millj- óna króna hagnað árið áður. Stjórn félagsins gerir að tillögu sinni að hagnaðinum verði varið til hækk- unar á óráðstöfuðu eigin fé fyrra árs. Eignir félagsins námu 424 millj- ónum króna í árslok, samanborið við 359,4 milljónir króna árið áur. Eigið fé nam 207 milljónum samanborið við 181 milljón í árslok 2014. Skuldir námu 217 milljónum í árslok 2015, samanborið við 178 milljónir árið áður. Eyjólfur Pálsson, stofnandi Epal, er stærsti hluthafi Epal og átti tæp- lega 52 prósenta hlut í árslok 2015. Framkvæmdastjóri Epal í árslok 2015 var Kjartan Páll Eyjólfsson. Á árinu 2015 störfuðu hjá Epal að meðaltali 14 starfsmenn og námu launagreiðslur til þeirra 117,4 millj- ónum króna. Þóknun til stjórnar og endurskoðenda var engin. Epal design ehf., dótturfélag Epal, sem sinnti sölu á hönnunarvöru í fríhöfnum, tapaði 23,6 milljónum á síðasta ári, samanborið við 14 millj- óna króna hagnað árið áður. Rekstri félagsins var hætt í ár. – sg Hagnaður Epal minnkar 39,6 milljóna króna hagnaður var hjá Epal hf. Miðvikudagur 26. október Hagstofa ÍsLaNDs l Vinnumarkaður í september 2016 Þjóðskrá ÍsLaNDs l Hverjir eiga viðskipti með íbúðar- húsnæði? NýHerji l Þriðji ársfjórðungur 2016 MareL l Þriðji ársfjórðungur 2016 Össur l Þriðji ársfjórðungur 2016 VoDafoNe l Þriðji ársfjórðungur 2016 VÍs l Þriðji ársfjórðungur 2016 Fimmtudagur 27. október Hagstofa ÍsLaNDs l Gistinætur og gestakomur á hótelum í september 2016 Hagstofa ÍsLaNDs l Vísitala neysluverðs í október 2016 Þjóðskrá ÍsLaNDs l Fjöldi útgefinna vegabréfa LaNDsbaNkiNN l Þriðji ársfjórðungur 2016 VoDafoNe l Þriðji ársfjórðungur 2016 MareL l Þriðji ársfjórðungur 2016 sÍMiNN l Þriðji ársfjórðungur 2016 tM l Þriðji ársfjórðungur 2016 Föstudagur 28. október Hagstofa ÍsLaNDs l Nýskráningar og gjaldþrot hluta- félaga og einkahlutafélaga í septem- ber 2016 sÍMiNN l Kynningarfundur þriðja ársfjórð- ungs 2016 iceLaNDair group l Þriðji ársfjórðungur 2016 Á döfinni dagatal viðskiptalífsins allar markaðsupplýsingar Árið 2015 voru konur með tæplega 30 prósent lægri atvinnutekjur en karlar á Íslandi, en þá er átt við allar tekjur af atvinnu án tillits til vinnu- tíma. Um 20 prósenta munur var á heildarlaunum en um 14 prósenta munur á reglulegum launum án yfirvinnu, samkvæmt tölum Hag- stofunnar. Óleiðréttur launamunur mældist 17 prósent árið 2015. 30% lægri meðallaun Vikan sem leið Bandaríski fjarskiptarisinn AT&T og Time Warner hafa gert með sér sam- komulag um kaup fyrrnefnda fyrirtæk- isins á því síðarnefnda. Heildar virði Time Warner í þessum viðskiptum er 110 milljarðar dollara eða tæplega 13 þúsund milljarðar króna. Þetta eru stærstu viðskipti ársins ef af verður, en þau eru háð samþykki stjórnvalda í Bandaríkjunum. 13 þúsund milljarðar Markaðurinn ÚtgáfuféLag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301 Umsjón Hafliði Helgason hafliði@365.is Ábyrgðarmaður kristín Þorsteinsdóttir Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is 2 6 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M i ð V i k u D a g u r2 Markaðurinn 2 6 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 1 0 -F C 5 4 1 B 1 0 -F B 1 8 1 B 1 0 -F 9 D C 1 B 1 0 -F 8 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 2 5 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.