Fréttablaðið - 26.10.2016, Qupperneq 22
Hafliði
Helgason
haflidi@frettabladid.is
Staða íslenska hagkerfisins er einstök um þessar mundir og spár hagfræðinga eru samhljóða um að ekki sjái fyrir endann á uppsveiflunni á kom
andi árum. Allt sem Íslendingar
óttast í venjulegu árferði virðist
vera í lagi.
Staðan er óumdeilanlega góð,
en það er ekki að ástæðulausu að
hagfræðin er stundum uppnefnd
hin döpru vísindi. Þessar aðstæður
kalla á varkárni ef hagkerfið á ekki
að ofhitna með tilheyrandi skelli í
lok hagsveiflu.
Slakinn farinn
„Við erum á þeim stað að allur
slaki er farinn úr hagkerfinu,“
segir Ásgeir Jónsson, deildar
forseti hagfræðideildar Háskóla
Íslands. Hann segir hagsveifluna
að því leyti ólíka fyrri hagsveiflum
að skuldsetning sé lítil og skuldir
heimila hafi lækkað. Síðasta hag
sveifla var að stórum hluta til
keyrð áfram af lántökum með
miklum viðskiptahalla. Nú er
afgangur af viðskiptum við útlönd.
ASÍ gaf út sína hagspá í síðustu
viku. Spá ASÍ er að hagvöxtur
þessa árs verði 4,7% og 5,4%
yfir árið 2017 en eftir það fari að
hægja á hagvexti. ASÍ ofmat í fyrri
spá vöxt einkaneyslu, en heimilin
virðast hafa lækkað skuldir og nýtt
kaupmáttaraukningu til að styrkja
eiginfjárstöðu sína með sparnaði.
ASÍ gerir ráð fyrir að einkaneyslan
fari nú hratt vaxandi og heimilin
nýti svigrúmið sem skapast til stór
kaupa, bílakaupa og utanlands
ferða. Þó einkaneyslan hafi vaxið
hægar en kaupmáttur í upphafi
sveiflunnar eru vísbendingar um
að vöxtur hennar sé hratt vaxandi.
Spurningin er hvort dramatískur
endir síðustu hagsveiflu sé enn í
svo fersku minni að skuldsetning
verði áfram minni en venjulega í
íslenskum hagsveiflum.
Skuldum frekar lítið
Skuldir heimila sem hlutfall af
ráðstöfunartekjum eru nú minni
en á Norðurlöndunum utan
Finnlands. Það hefði einhvern
tíma þótt saga til næsta bæjar.
Ef heimili, fyrirtæki og opinberir
aðilar nýta svigrúm þessarar upp
sveiflu til að styrkja eiginfjárstöðu
sína, þá væri hagkerfið vel undir
það búið að mæta ófyrirséðum
áföllum. Í ljósi sögunnar er það
þó ekki mjög líklegt.
Hagvöxtur á Íslandi hefur verið
mun meiri en í nágrannalöndum
og þar sem þjóðinni hefur ekki
fjölgað svo neinu nemi, þá klifrum
við hratt upp listann yfir þjóðir
með mestu landsframleiðslu á
mann. Á þessu ári munum við klifra
enn hærra upp listann og erum þá
komin í hóp fimm efstu þjóða í Evr
ópu á þennan mælikvarða. Fyrir
ofan öll Norðurlöndin nema Noreg.
Miðað við hagspár ættu lífskjör á
Íslandi að vera í hópi þeirra bestu í
heiminum á komandi árum ef rétt
er á málum haldið.
Ruðningsáhrif ferðaþjónustu
Þetta ef er býsna stórt. Það er vel
þekkt í hagsögunni að ríki sem
hafa allar forsendur til að tryggja
varanlega velsæld hafa með röngum
ákvörðunum búið svo um hnúta að
hagkerfið hefur verið ein rjúkandi
rúst eftir uppsveiflur. Við þurfum
svo sem ekki að leita út fyrir land
steinana til þess að finna dæmi, en
önnur dæmi eru Argentína sem var
fjórða ríkasta land heims í byrjun
20. aldar. Hollendingar misstu tökin
á hagkerfi sínu þegar þeir leyfðu
hagnaði af gasvinnslu að renna inn
í hagkerfið og fengu heilt hugtak
í hagfræðinni kennt við sig, hol
lensku veikina.
Ferðaþjónustan, miðað við vöxt
og viðgang hennar að undanförnu,
getur orðið veira íslensku veikinnar.
Ásgeir Jónsson bendir á ruðnings
áhrif af sterkara gengi krónunnar
vegna ferðamannastraumsins.
„Ferðaþjónustan virðist þola hækk
andi gengi krónunnar, en aðrar
útflutningsgreinar fara að kveinka
sér verulega. Sjávarútvegurinn er
jafnvel farinn að finna fyrir þessu og
kallar þó ekki allt ömmu sína gagn
vart háu gengi.“
Erfitt fyrir nýsköpun
Þekkt er í sögunni að góð ár í sjávar
útvegi styrktu krónuna sem olli
öðrum útflutnings og samkeppnis
greinum verulegum vanda. „Við
erum kannski að komast á sama
stað og við vorum á hér á árum áður
þegar sjávarútvegurinn keyrði upp
gengið og aðrar útflutningsgreinar
gáfust upp,“ segir Ásgeir.
Nýsköpunarfyrirtæki sem byggja
á menntuðu vinnuafli og eru til
lengri tíma líkleg til að skapa fleiri
hálaunastörf finna fyrir þessu.
Launahækkanir og styrking krónu
veldur því að ef svo heldur áfram
verða þau ekki samkeppnishæf
við nágrannalöndin. Með öðrum
orðum að nýgræðingur getur ekki
vaxið í skugga vaxtargreinarinnar
ferðaþjónustu sem skapar fleiri lág
launastörf en hálaunastörf. Þetta
getur haft mikla þýðingu þegar
lengra er horft fram á veginn.
Ekkert bendir enn til að breyting
verði á þessari þróun. „Það verður
ekki séð að þeir leitniferlar sem hóf
ust fyrir fjórum til fimm árum séu
að rofna sem felst í mikilli fjölgun
ferðamanna og hagstæðri þróun
viðskiptakjara,“ segir Ásgeir.
Gjaldeyristaðan brátt jákvæð
Staða Íslands gagnvart útlöndum
hefur aldrei verið betri og var nei
kvæð um eitt prósent í lok annars
ársfjórðungs 2016. Þriðji ársfjórð
ungur er stærsti fjórðungurinn í
ferðaþjónustu, enda þótt vel hafi
tekist að auka hana á öðrum árs
tímum. Það þýðir að Íslendingar
verða orðnir nettóeigendur að
gjaldeyri í lok þriðja ársfjórðungs.
Það hefur sennilega bara gerst einu
sinni í samtímasögunni, á seinni
styrjaldarárum þegar fiskverð var
hátt og takmörk fyrir því sem við
gátum keypt á móti frá stríðshrjáð
um nágrönnum okkar.
Sú ríkisstjórn sem tekur við eftir
kosningar mun þurfa að axla mikla
ábyrgð. Vandinn er kannski sá að
verði hagstjórnarmistök gerð á
næsta kjörtímabili, þá munu þau
ekki koma í bakið á okkur á líftíma
næstu stjórnar. Það skapar vissa
hættu á að skammtímasjónarmið
stjórnmálamanna verði ofar lang
tímahugsun.
Tækifæri til að opna
Óvissa um framhaldið endurspegl
ast einna best í kauphöllinni. Eftir
miklar hækkanir hefur hlutabréfa
Hagkerfið þarfnast mjög agaðrar
hagstjórnar á komandi kjörtímabili
✿ Landsframleiðsla á mann í Bandaríkjadollurum
miðað við kaupmáttarjafnvægi (PPP) 1990 – 2015
1990 1995 2000 2005 2010 2015
45
40
35
30
25
20
15
10
5
0
.000 USD
✿ Gengisvísitala krónunnar og úrvalsvísitalan
janúar 2013–október 2016
220
210
200
190
180
170
2.250
2.000
1.750
1.500
1.250
1.000
Gengisvísitala krónunnar
Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands
ÚrvalsvísitalaGengisvísitala
2013 2014 2015 2016
Staða hagkerfisins er um margt einstök. Atvinnuleysi er í lágmarki og verðbólga
innan markmiða Seðlabankans. Afgangur er af viðskiptum við útlönd og skortur
á gjaldeyri sem oft hefur þjáð þjóðina hefur breyst í innflæðisvandamál. Staða
þjóðarbúsins vegna ferðamannastraums er betri en nokkurn gat órað
fyrir. Hætturnar eru þó skammt undan og ofhitnun hagkerfisins er
enn á ný raunveruleg hætta.
-1%
var undirliggjandi staða
þjóðarbúsins um mitt ár.
Hraðbyri stefnir í að erlendar
eignir verði meiri en skuldir.
Það verður ekki séð
að þeir leitniferlar
sem hófust fyrir fjórum til
fimm árum séu að rofna sem
felst í mikilli fjölgun ferða-
manna og hagstæðri þróun
viðskiptakjara.
Ásgeir Jónsson, deildarforseti
hagfræðideildar Háskóla Íslands
✿ Undirliggjandi erlend staða þjóðarbúsins
2007–2016
2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016
0
-20
-40
-60
-80
-100
-120
-140
2 6 . o k t ó B e r 2 0 1 6 M I Ð V I k U D A G U r6 markaðurinn
2
6
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
0
-E
3
A
4
1
B
1
0
-E
2
6
8
1
B
1
0
-E
1
2
C
1
B
1
0
-D
F
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K