Fréttablaðið - 26.10.2016, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 26.10.2016, Blaðsíða 24
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is, s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433 lilja björk Hauksdóttir liljabjork@365.is Sérblaðið Hringbrautar- verkefnið kom út mánu- daginn 24. nóvember. Í grein þar sem full- trúar framboða til alþingiskosninga voru inntir eftir sinni sýn varð- andi uppbyggingu nýs þjóðarsjúkra- húss við Hring- braut láðist að birta svar Gunnars Skúla Ármannssonar, læknis og fulltrúa Dögunar. Það fer hér á eftir. Byggingarsaga Landspítalans er mjög merkileg saga og verða vonandi gerð góð skil síðar meir. Stjórnmálasamtökin Dögun telja að það verði að byggja nýjan spítala fyrir alla landsmenn. Í raun ættum við núna að vera að byggja Landspítala númer tvö eða þrjú frá því Landspítalinn var opnaður 1930. Dögun vill því að spítalinn verði byggður sem fyrst. Erlendis er það ekki óal- gengt að spítalar séu endurnýj- aðir á rúmlega þrjátíu ára fresti. Það hafa verið miklar umræður um staðarval og einnig það ferli sem leiddi til þeirrar niðurstöðu að byggja ætti á Hringbrautinni. Dögun tekur enga aðra afstöðu í því máli en þá að við getum sam- þykkt þá kröfu að gerð yrði ný könnun að kröfu þeirra sem vilja að spítalinn verði ekki reistur við Hringbraut. Sú könnun verður þá að ganga hratt fyrir sig og vera trúverðug. Ef hún gjörbreytir fyrri niðurstöðum verða menn að endurskoða staðarvalið. Annar kostur við þessa könnun er að ef hún er samhljóma fyrri ákvörð- unum þá mun skapast meiri sátt um þær ákvarðanir. Dögun vill að lokum leggja mikla áherslu á að stjórnvöld hviki hvergi frá settu markmiði að byggja nýjan spítala fyrir alla landsmenn. leiðrétting ari eldjárn og björn bragi arnarsson hafa ferðast um landið að undanförnu með sýningu sína Á tæpasta vaði. „Það var fullt út úr dyrum á síð- ustu tveimur kvöldum og virki- lega góð stemning. Það er allt- af gaman að koma út á land og skemmta á stöðum sem maður fær sjaldan tækifæri til að koma á og hitta nýtt fólk,“ segir Björn Bragi Arnarsson. Ari Eldjárn bætir við að þá hafi langað til að taka litla sýningaröð þar sem þeir fengju tækifæri til að flytja lengra uppistand en vanalega. „Þegar við komum fram með Mið- Íslandi eða skemmtum á hvers kyns viðburðum erum við yfir- leitt með um 15 til 20 mínútna at- riði. Í þessari sýningu tökum við hins vegar hvor sínar 45 mínút- urnar af gríni, tökum í raun sinn hálfleikinn hvor af uppistandi.“ Eins og á öðrum sýningum hjá þeim félögum eru efnistökin fjöl- breytt en þeir fá innblástur úr öllu sem er að gerast í kringum þá. „Við tölum mikið um hvers- dagslega hluti, það sem er að ger- ast í samfélaginu og allt þar á milli. Við reynum líka að taka að- eins fyrir staðinn sem við erum á hverju sinni enda hefur hvert bæjarfélag sín sérkenni sem er gaman að gera góðlátlegt grín að,“ segir Ari. Björn Bragi segir mikla stemn- ingu hafa verið hjá þeim Ara á ferðalögunum en með þeim í för er Atli Rúnar sem heldur utan um öll þeirra mál í þessari sýn- ingu. „Ferðirnar eru hrikalega skemmtilegar, það er mikið djók- að og þar fæðist oft gott grín sem á það síðan til að rata inn í sýn- ingarnar.“ „Samstarf okkar Björns Braga er frábært. Við erum miklir vinir og vinnum mjög vel saman. Okkur gengur líka vel að semja efni saman, það er mjög gott að hafa góðan félaga í því,“ segir Ari. Í kvöld verða þeir Ari og Björn Bragi með uppistand í Skyrgerð- inni í Hveragerði og á Háaloftinu í Vestmannaeyjum annað kvöld. Á tæpasta vaði verður í gangi fram í lok nóvember og þá fer vinna á fullt við undirbúning nýrrar sýn- ingar Mið-Íslands sem verður frumsýnd í Þjóðleikhúskjallaran- um í janúar 2017. „Við stefnum á að hún verði okkar besta hingað til,“ segja þeir félagarnir. Á tæpu vaði Félagarnir og grínistarnir björn bragi arnarsson og ari eldjárn hafa að undanförnu ferðast um landið með uppistand sitt Á tæpasta vaði og segja þeir viðtökurnar hafa verið frábærar. Í kvöld skemmta þeir í Skyrgerðinni í Hveragerði og annað kvöld í Vestmannaeyjum. gunnar skúli Ármannsson Dr. Shubhangee ayurvedískur læknir MD í jurtafræðum verður með námskeið dagana 26, 27, 28 október frá 18:30-21:30. Miðvikudagur 26. Okt.: Húðsjúkdómar – meðferð krónískra húðsjúkdóma með ayurveda. Fimmtudagur 27. Okt.: Læknandi eiginleikar ayurvedískra krydda. Föstudagur 28. Okt.: Ayurveda og stress. Að ná tökum á stressi með hjálp ayurveda. námskeið Ayurveda Jurtaapótekið Skipholti 33, skráning í síma: 552-1103 Einnig laust í einkaviðtöl 19. og 26. nóvember og 3. og 10. desember RANGÁRFLÖTUM 4, HELLU – S. 531 8010 – STRACTAHOTELS.IS Jólahlaðborð, 8.800 kr. á mann. Gerum tilboð fyrir hópa. Ef hópar vilja koma aðra daga, hafið samband í síma 531 8010 eða 531 8007. Netfang: info@stractahotels.is Jólahlaðborð og gisting í tveggja manna herbergi með morgunverði, 17.400 kr. á mann. 2 6 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M I Ð V I k U D A G U r2 F ó l k ∙ k y n n I n G A r b l A Ð ∙ X X X X X X X X ∙ k y n n I n G A r b l A Ð V I Ð b U r Ð I r 2 6 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 1 0 -C F E 4 1 B 1 0 -C E A 8 1 B 1 0 -C D 6 C 1 B 1 0 -C C 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 2 5 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.