Fréttablaðið - 26.10.2016, Síða 27
✿ Vísitala kaupmáttar launa
2000-2016
137,2
Var vísitala kaupmáttar
launa í lok september 2016.
markaður verið nokkuð stefnulaus
og má líta svo á að hækkanir hafi
verið teknar út á árunum á undan.
Þannig bendir allt til þess að árið
2016 verði fremur lélegt hvað varðar
ávöxtun hlutafjár.
En hvað þarf að gera til að mæta
stöðugum straumi gjaldeyris inn
í landið með vaxandi fjölda ferða-
manna? „Það er mjög mikilvægt við
þessar kringumstæður að við séum
með neikvæðan fjármagnsjöfnuð
það er að segja flytjum út peninga.
Við þyrftum að sjá lífeyrissjóði
og aðra aðila fara með fjármuni í
erlendar fjárfestingar,“ segir Ásgeir.
Ef útstreymi við slökun gjaldeyr-
ishafta reynist hóflegt virðist fátt því
til fyrirstöðu að afnema gjaldeyris-
höft að fullu, en halda áfram að tak-
marka möguleika erlendra aðila til
vaxtamunarviðskipta til að Seðla-
bankinn geti brugðist við þenslu
með hækkun vaxta, án þess að það
verði að sjálfstæðum innstreymis-
vanda eins og varð í síðustu upp-
sveiflu.
Aðaldssöm ríkisstjórn
Hitt sem skiptir verulegu máli er
aðhaldssöm stjórn ríkisfjármála.
Mat ASÍ er að núverandi fjármála-
áætlun ríkisins 2017 til 2021 feli
ekki í sér nægt aðhald, hvorki til
að tryggja efnahagslegan né félags-
legan stöðugleika. Krafan er sem sé
að ríkið skili meiri afgangi, greiði
hraðar niður skuldir sínar og jafn-
vel safni í sjóð líkt og Norðmenn
gerðu til að olíuauðurinn setti ekki
þeirra hagkerfi á hliðina.
Sú ríkisstjórn, hver sem hún
verður, sem tekur við eftir kosn-
ingar hefur mörg tækifæri til að
láta gott af sér leiða. Hún býr hins
vegar við krefjandi stöðu hvað
varðar hagstjórn. Hún verður að
geta tekið erfiðar aðhaldsákvarð-
anir í hagsveiflu þar sem þrýsting-
ur á meiri ríkisútgjöld verður lík-
lega óbærilegur. Kjósendur ákveða
hverjum þeir treysta í það verkefni
á laugardaginn kemur.
Stöðugleiki sprettur ekki af
sjálfu sér og til þess að hagstjórn
næstu ára takist vel þurfa margir
að koma að. Atvinnurekendur,
verkalýðsfélög, ríki og sveitarfélög
þurfa að standast mikinn þrýsting
ef takast á að spila skynsamlega úr
þeirri á margan hátt öfundsverðu
stöðu sem íslenskt hagkerfi er í.
1998 2000 2002 2004 2006 2008 2010 2012 2014 2016
350
300
250
200
150
100
50
0
%
✿ Skuldir heimila sem hlutfall af ráðstöfunartekjum
1998 – 2016
Danmörk Holland Ísland
Noregur Svíþjóð Finnland
2016
Danmörk
Holland
Ísland
Noregur
Svíþjóð
Finnland
155
%
294%
277%
227% 176
%
12
6%
155,5%
af ráðstöfunartekjum
voru skuldir heimilanna
á Íslandi á öðrum
ársfjórðungi 2016. Það
er næstlægsta hlutfall á
Norðurlöndunum.
Bandarískum tæknifyrirtækjum
hefur gengið illa að fóta sig á kín-
verskum markaði. Forsvarsmenn
streymiþjónustunnar Netflix lýstu
því yfir á dögunum að fyrirtækinu
hefði ekki tekist að sigra kínverska
markaðinn. Netflix er það síðasta í
röð fyrirtækja sem ekki hafa náð að
stimpla sig inn í Kína vegna erfiðra
reglugerða og mikillar samkeppni.
Ákveðið hefur verið að bjóða ekki
þjónustu Netflix í Kína en í staðinn
mun Netflix veita kínverskum
streymiþjónustum aðgang að efni
sínu. Þannig verði hægt að koma
með það á kínverskan markað.
MarketWatch greinir frá því að
Kína sé stærsti erlendi viðskipta-
markaðurinn fyrir bandarísk fyrir-
tæki sem vilja í auknum mæli njóta
góðs af viðskiptum á þessu risa-
svæði. Regluverk og lagarammi í
Kína hefur verið gagnrýnt fyrir að
vera ekki í takt við vaxandi efna-
hagskerfið, og hefur það umhverfi
verið þrándur í götu erlendra fyrir-
tækja sem vilja sækja fram í Kína.
Samkvæmt skýrslu kínversk-banda-
ríska viðskiptaráðsins sögðu 67 pró-
sent aðspurðra að stefna yfirvalda
og regluverkið hefði mest áhrif á
fimm ára áætlanir þeirra. Einnig
hefur reynst erfitt að fá tilskilin leyfi
og að ráða starfsmenn.
Fyrirtæki, á borð við Uber og eig-
anda KFC og Pizza Hut hafa hætt
við starfsemi sína í Kína út af erfið-
leikum í viðskiptaumhverfinu. - sg
Bandarísk tæknifyrirtæki eiga í
erfiðleikum með að ná fótfestu í Kína
Í síðasta mánuði tilkynntu forsvarsmenn Uber að ákveðið hefði verið að selja kínverska starfsemi þess út af erfiðleikum við
að ná fótfestu í Kína. FréttAblAðið/Getty
67%
segja regluverk og stefnu
yfirvalda hafa mest áhrif á
viðskiptaáætlanir í Kína.
TIL AÐ VERA VISS
Sumir eru
með puttana
í eyrunum.
Aðrir á púlsinum.
marKaðuriNN 7M I Ð V I K U D A G U R 2 6 . o K t ó b e R 2 0 1 6
2
6
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
0
-E
3
A
4
1
B
1
0
-E
2
6
8
1
B
1
0
-E
1
2
C
1
B
1
0
-D
F
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K