Fréttablaðið - 26.10.2016, Blaðsíða 28
Svipmynd
Berta DaníelsDóttir
Berta Daníelsdóttir mun taka við
starfi framkvæmdastjóra Íslenska
sjávarklasans þann 15. nóvember
næstkomandi af Þór Sigfússyni,
stofnanda og eiganda. Þór mun
starfa áfram að nýsköpunarverk-
efnum sem klasinn hefur sett á
laggirnar ásamt því að vera áfram
stjórnarformaður.
Íslenski sjávarklasinn er drif-
kraftur nýrra hugmynda og stuðlar
að öflugu samstarfi fyrirtækja og
frumkvöðla í haftengdri starfsemi.
Klasinn starfrækir meðal annars
Hús sjávarklasans ehf. sem er sam-
félag tæplega 70 fyrirtækja og frum-
kvöðla.
Berta hefur gegnt ýmsum
ábyrgðar störfum fyrir Marel síðast-
liðin 18 ár og nú síðast sem rekstrar-
stjóri Marel í Seattle í Bandaríkj-
unum.
„Ég er afskaplega spennt fyrir
þessum breytingum. Ég hef frá
stofnun Sjávarklasans fyrir fimm
árum fylgst vel með þróuninni.
Marel var einn af fyrstu sam-
starfsaðilum í húsinu og í gegnum
þáverandi starf mitt fylgdist ég náið
með fyrstu skrefunum,“ segir Berta.
„Þetta er réttur tími til að breyta
til og mikil áskorun. Framtíðin er
björt hjá Sjávarklasanum. Virðis-
keðja sjávarútvegsins er svo miklu
stærri en bara veiðar og vinnsla.
Það er magnað hvað nýsköpunin
hefur náð miklu flugi í geiranum á
síðustu árum. Það er mikill fókus
á nýsköpun og sjálfbærni, og bæði
Marel og Íslenski sjávarklasinn
hafa það að markmiði að styðja við
sjálfbærni í matvælavinnslu,“ segir
Berta.
Berta er með meistaragráðu í
stjórnun alþjóðlegra fyrirtækja frá
Háskólanum á Akureyri. Hún er
ein af stofnendum félagsins Konur í
sjávarútvegi. Hún flutti í ágúst heim
eftir að hafa búið í átján mánuði í
Seattle og þar áður sex mánuði í
Singapúr á vegum Marel.
„Það er frábært að koma heim.
Þó að það sé ótrúlega spenn-
andi að vera erlendis, upplifa nýtt
menningar líf og aðstæður og kynn-
ast lífinu á annan hátt, þá togar
fjölskyldan alltaf,“ segir Berta. Hún
á þrjú uppkomin börn, og þrjár
ömmustelpur sem eiga hug hennar
allan.
Þegar hún er ekki að sinna
ömmu stelpunum stundar Berta
mikla hreyfingu. „Ég bý yfir ótrú-
legri orku og verð að hreyfa mig ef
ég næ henni ekki úr kroppnum á
daginn, annaðhvort snemma um
morguninn eða seinna á kvöldin,
til að losa mig við hana,“ segir Berta.
Berta stundar líkamsrækt og
göngur með hundinum. „Það er
stundum spurning hver dregur
hvern út,“ segir hún glettin. „Ég
geng aðallega í kringum Hafnar-
fjörð þar sem ég get tekið hundinn
með, meðal annars í Heiðmörk. Ég
bý á Völlunum í Hafnarfirði og það
er opin náttúra í bakgarðinum hjá
mér. Náttúran er margbreytileg
og maður er alltaf með eitthvert
nýtt listaverk fyrir augunum,“ segir
Berta.
Hún er einnig mikill lestrarhest-
ur. „Ég les aðallega skandinavíska
krimma, ég slaka mjög mikið á við
að lesa þá og detta inn í góða Nesbo-
fléttu. Eftir langa daga og mikið
áreiti þá er rosalega gott að opna
góða bók,“ segir Berta. „Skandinav-
ísku höfundarnir og þeir íslensku
eru magnaðir því bækurnar eru svo
raunverulegar.“ saeunn@frettabladid.is
Slakar á með góðum
norrænum krimma
Berta Daníelsdóttir tekur við starfi framkvæmdastjóra Íslenska sjávarklasans
þann 15. nóvember eftir átján ára starf hjá Marel. Hún flutti nýlega heim eftir
tveggja ára dvöl í Singapúr og Bandaríkjunum. Berta hefur áhuga á hreyfingu,
göngum um Hafnarfjarðarsvæðið og skandinavískum krimmum.
Ég bý yfir ótrúlegri
orku og verð að
hreyfa mig ef ég næ henni
ekki úr kroppnum á daginn.
Berta Daníelsdóttir segist finna fyrir mikilli þörf fyrir að losa um orkuna með hreyfingu. FréttaBlaðið/GVa
Íslenski sjávarklasinn er fimm ára.
2 6 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M I Ð V I k U D A G U r8 markaðurinn
2
6
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
1
0
-E
8
9
4
1
B
1
0
-E
7
5
8
1
B
1
0
-E
6
1
C
1
B
1
0
-E
4
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K