Fréttablaðið - 26.10.2016, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Þetta er skemmtilegur heimur og mjög áhuga-vert að fylgjast með því hvernig þetta þróast hjá mér og allt í kringum mig,“ segir Erna Kristín
Stefánsdóttir, 25 ára hönnuður og
guðfræðinemi. Erna Kristín hefur
tekið samfélagsmiðlana Snap chat
og Instragram tryggilega í sína
þjónustu og auglýsir á þeim eigin
hönnun, föt og myndir, og einnig
innlenda og erlenda hönnun ann-
arra, til að mynda barnavörur sem
hún fær sendar frá fyrirtækjum.
„Instagram-reikningurinn minn
er stærri eins og er, enda opnaði ég
hann fyrr, en Snapchat-reikningur-
inn minn stækkar mun hraðar en
ég bjóst við, sérstaklega þegar haft
er í huga hversu seint ég opnaði
hann. Snapchat er augljóslega
langvinsælasti samfélagsmiðillinn
í dag,“ segir Erna Kristín og bætir
við að hún leggi sáralitla áherslu
á Facebook þegar kemur að því að
auglýsa hönnun eftir sjálfa sig og
aðra, enda séu vinsælar „læksíður“
á Facebook nánast faldar þegar
fylgjendur þeirra ná ákveðnum
fjölda, nema eigendur þeirra borgi
sérstaklega fyrir þær. „Það er algjör
klikkun og ég er ekki að fara að
borga Facebook. Það kemur ekki til
mála,“ segir hún ákveðin.
Erna Kristín notar þó ekki vin-
sæla reikninga sína á Instagram
og Snapchat einungis t i l að
auglýsa vörur, heldur
deilir hún líka ýmsu úr
sínu daglega lífi. Spurð
hvort nauðsynlegt sé að
vera persónulegur á sam-
félagsmiðlum í bland við
auglýsingarnar, til að halda
fylgjendum við efnið, segist
Erna Kristín halda að svo sé.
„Um leið og ég fór að deila
persónulegum hlutum úr
lífi mínu fjölgaði fylgjendum
mínum til muna, þótt þeir hafi
verið margir fyrir. En ég nenni
alls ekki að fara eftir neinum
óskrifuðum reglum í sambandi
við samfélagsmiðlana og geri
þetta bara eins og mér finnst
skemmtilegt. Svo er fólki velkomið
Nauðsynlegt að
vera persónulegur
Erna Kristín Stefánsdóttir er umsvifamikil á Snapchat og Instagram
þar sem hún auglýsir bæði sína hönnun og annarra. Hún lýkur guð-
fræðinámi um jólin og segist ætla að verða nútímalegur prestur.
Erna Kristín Stefánsdóttir, hönnuður og guðfræðinemi, vekur athygli á Snapchat og Instagram. Hægt er að fylgjast með Ernu
Kristínu á snapchat: Ernuland. FRÉTTABLAÐIÐ/EyÞÓR.
Hér má sjá hluta af vörunum frá
Ernu landi. Vörurnar hennar hafa
verið í sölu meðal annars í Bret-
landi, Hollandi og Bandaríkjunum.
Meðal verkefna sem fram undan
eru hjá Ernulandi er hluti af nýrri
sumarlínu fyrir barnafatamerkið
Igloo+indi 2017 og nýir bandana-
klútar fyrir tískuvöruverslunina
Black and Basic sem koma í
verslun á næstu dögum.
að fylgjast með ef það hefur áhuga.
Ég hef heyrt að fylgjendur sumra
annarra reikninga setji ákveðnar
kröfur á eigendur þeirra, að gera
meira af þessu og minna
af hinu og þar fram
eftir götunum, en ég er
sjálf mjög heppin með
fylgjendur og hef ekki
lent í neinu slíku.“
Þegar Erna Kristín
auglýsir vörur á reikn-
ingum sínum notar hún
stundum tveggja ára gamlan
son sin, Leon Bassa, sem
fyrir sætu. Aðspurð segir
hún son sinn lítið kippa sér
upp við það að vera aug-
lýsingamódel. „Um leið og
þetta verður kvöð fyrir hann
þá hætti ég að nota hann því
ég er mjög meðvituð um að passa
upp á hann,“ segir Erna Kristín og
viðurkennir að hún hafi í meira
en nægu að snúast þessa dagana
og ekki minnkar álagið við það að
stunda guðfræðinám við Háskóla
Íslands sem hún lýkur nú um jólin.
Eftir áramót tekur svo prestsnám
við hjá Ernu Kristínu. Spurð hvern-
ig hún haldi að framtíðarsöfnuðir
taki í það að presturinn þeirra sé
umsvifamikill á samfélagsmiðlum
segist hún ætla að verða nútíma-
legur prestur sem horfir fram á við.
„Ég veit ekki hvort þessi dæmigerða
messa myndi henta mér. Ég hef
áhuga á því að predika fyrir sam-
félagið út frá hlutum sem fólk tengir
við og vill heyra. Það er margt gott
fólk að koma inn í kirkjustarfið á
Íslandi með nútímaleg viðhorf og
miðað við það hvernig talað er um
kirkjuna í dag held ég að það sé gott
fyrir framtíð kirkjunnar.“
kjartang@frettabladid.is
ALLTAF VIÐ HÖNDINA
Þú getur lesið
Fréttablaðið í heild
sinni á Vísi og í
Fréttablaðs-appinu
... allt sem þú þarft
Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum
● Auka blóðflæði í
höfði;
● Slaka á vöðvum í
hnakka;
● Bæta öndun með
því að slaka á
axlasvæði;
● Samhæfa ósjálfráða
taugakerfið;
● Slaka á vöðvum í
efri hluta kviðar;
● Bæta virkni
meltingar kerfisins;
● Bæta blóðflæði í
nára.
ÖRVUN MEÐ SVÆÐANUDDS-
INNLEGGI MIÐAR AÐ ÞVÍ AÐ:
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
SLÖKUN OG VELLÍÐAN
F YRIR ALL AN LÍK AMANN
N ÝJ U N G Í B E T R A B A K I
BYLTING FYRIR
ÞREYTTA FÆTUR
7.900 K R.
Með fimmsvæða nuddinnleggi UNDRA heilsuinni
skónna nærðu slökun og vellíðan sem dregur úr
spennu og örvar blóðflæði. Skórnir
eru fallegir, hlýir og einstaklega
þægilegir. Fáanlegir í dökkgráu eða
ljósu flókaefni.
Komdu og prófaðu!
UNDRI HEILSUINNISKÓR
B Y LT I N G A K E N N T
5 S VÆ Ð A N U D D I N N L E G G
2 6 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M I Ð V I k U D A G U r30 L í f I Ð ∙ f r É t t A b L A Ð I Ð
2
6
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
1
0
-D
9
C
4
1
B
1
0
-D
8
8
8
1
B
1
0
-D
7
4
C
1
B
1
0
-D
6
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K