Fréttablaðið - 02.12.2016, Blaðsíða 38
Heildarlausn
dk hugbúnaður hefur allt fyrir
bókhaldið, reksturinn, áætlanir og
launin sniðið að sveitarfélögum
með þeirra bókhaldslykli, stofnu-
num, málaflokkum, deildum og
fyrirtækjum.
Í dk er hægt að prenta út árs-
reikning sveitarfélagsins, mála-
flokkayfirlit, ársreikning fyrir
deildir, rekstrarreikning
fyrir sjóði, sjóðstreymi
og margvíslegar
greiningar niður á
þessar víddir.
Áætlanagerð
Áætlanir má vinna
inni í kerfinu, senda yfir
í Excel til frekari vinnslu og
lesa síðan aftur inn í dk. Hægt er
að vera með svo kallaða „ramma–
áætlun“ og búa til breytingar/mis-
munandi sviðsmyndir út frá henni
allar skýrslur og greiningar má
síðan taka út með samanburði við
áætlun. Hægt er að taka út aðalbók
með samanburði við áætlun og sjá
hvað mikið er eftir af áætluninni.
Öflugar tengingar
dk er með tengingu við
Fasteignamatið/álagningarkerfi
Þjóðskrár fyrir álagningu
fasteignagjalda og við
Hagstofuna til að skila
inn gögnum. Einnig öll
rafræn samskipti, bæði
við banka, kortaþjónustur,
ríkisskattstjóra, lífeyrisjóði,
stéttarfélög og fleiri aðila.
18 ára reynsla
dk viðskiptahugbúnaðurinn er
búinn að vera eitt vinsælasta
bókhaldskerfið á Íslandi síðustu 18
árin og hentar vel fyrir allar stærðir
og gerðir af sveitarfélögum.
Örugg hýsing gagna
Hýsingarþjónusta dk hefur verið
starfandi frá árinu 2006 undir
nafninu dkVistun og hefur vaxið
mikið. Nú er svo komið að yfir
3.000 fyrirtæki eru með bókhaldið
sitt í skýinu hjá dk.
Bæjarhálsi 1 | 110 Reykjavík | Hafnarstræti 53 | 600 Akureyri | 510 5800 | www.dk.is
dk fyrir sveitarfélög
3.000
fyrirtæki með
bókhaldið sitt í
skýinu hjá dk
dk hugbúnaður hefur í um 18 ár hannað og þróað hinn vinsæla dk viðskiptahugbúnað fyrir íslensk
fyrirtæki og skapað viðskiptalausnir sem stuðla að vexti og velgengni viðskiptavina.
Lausnir fyrir sveitarfélög
dk hefur lausnir fyrir öll sveitarfélög
Dolly Parton kom fram á glæsi-
legri jólahátíð í Rockefeller Cent-
er á miðvikudag og söng meðal
annars jólalagið sitt Coat of Many
Colors. Eftir því var tekið hversu
glæsileg söngkonan er en hún
varð sjötug á árinu. Þar sem Dolly
kemur ekki oft fram vakti hún sér-
staka athygli gesta. Aðrir gestir
voru ekki af verri endanum, meðal
annarra hinn síungi Tony Bennett
sem varð níræður á árinu og er
enn í fullu fjöri. Sveitasöngstjörn-
urnar Trisha Yearwood og Garth
Brooks komu einnig fram á hátíð-
inni og sungu lagið Baby, It’s Cold
Outside.
Christmas in Rockefeller Cent-
er er árlegur viðburður í New York
frá árinu 1933 en þá er kveikt á
glæsilegu jólatré staðarins. Sjón-
varpsstöðin NBC sendir viðburð-
inn út.
Dolly Parton var í rauðu jóla-
dressi þegar hún söng lagið sitt
sem fjallar um hamingju fjölskyld-
unnar og þakklæti fyrir það smáa.
Dolly kynnir um þessar mundir
glænýja jólamynd, Christmas of
Many Colors: Circle of Love, sem
frumsýnd var hjá NBC sama dag
og ljósin voru tendruð á trénu.
Dolly Parton með
nýja jólamynd
AugnAblikið þAð einA sem er öruggt
Núvitund skapast við að beina at-
hyglinni með ásetningi að því sem
er, eins og það er án þess að dæma.
Hún snýst um að vera á staðnum
með fullri meðvitund. Að dvelja í
líðandi stund í stað þess að keyra
áfram á sjálfstýringunni. Það hljóm-
ar einfalt en vefst fyrir mörgum og
sumir dvelja jafnvel meira við fortíð
og framtíð en núið.
Það eina sem er öruggt er hins
vegar augnablikið hér og nú. Þeir
sem ná góðum tökum á núvitund fá
gjarnan meira út úr lífinu en áður
og öðlast bætta líðan. Hún hefur
sömuleiðis gagnast þeim sem glíma
við þunglyndi, streitu og kvíða svo
dæmi séu nefnd.
Hér eru nokkur atriði sem einkenna
þá sem hafa tileinkað sér núvitund.
1. Þeir trúa ekki öllum þeim hugs-
unum sem skjóta upp kollinum
og taka þær ekki of alvarlega.
2. Þeir reyna ekki að forðast eða
afneita tilfinningum.
3. Þeir skilja að hlutirnir koma og
fara.
4. Þeir gera eitt í einu.
5. Þeir breyta hversdagslegum
gjörðum í núvitundaraugnablik.
6. Þeir njóta hvers bita sem þeir
láta ofan í sig.
7. Þeir hægja á sér við lestur og
meðtaka upplýsingarnar.
8. Þeir eru á staðnum á meðan
þeir hlusta á aðra tala og reyna
ekki að stjórna eða dæma.
9. Þeir ögra eigin hugmyndum.
10. Þeir næra líkamann.
11. Þeir eru forvitnir.
12. Þeir einbeita sér að því sem þeir
eru að gera hverju sinni.
13. Þeir fara út og njóta náttúrunnar.
14. Þeir hafa húmor fyrir sjálfum
sér.
Þeir sem eru orðnir þreyttir á
gamla, góða hafragrautnum ættu
að prófa þessa uppskrift. Byrjið á
að græja grautinn eins og venju-
lega en í staðinn fyrir kanil, sykur
eða annað sem þið notið venjulega
kryddið hann þá með salti og pipar.
Til þess að toppa þetta – og fá auka
próteinskammt um leið, skellið þá
spældu eggi ofan á grautinn og
stráið smávegis osti yfir til að gera
þetta sérstaklega gómsætt.
½ bolli hafrar
1 bolli vatn
Salt og pipar
1 stórt egg
2 msk. rifinn cheddar-ostur
1 msk. vorlaukur smátt
skorinn
Sjóðið vatn í potti, bætið við höfr-
um og salti. Hrærið, aukið hitann
og látið malla í um fimm mínút-
ur. Hitið pönnu á meðan og eldið
eggið þar til hvítan hefur stífnað en
rauðan er enn lin, í um þrjár mín-
útur. Kryddið eggið með salti og
pipar. Setjið grautinn í skál, eggið
ofan á og stráið bæði osti og lauk
yfir.
Hafragrautur
með eggi
2 . d e s e m b e r 2 0 1 6 F Ö s T U d A G U r14 F ó l k ∙ k y n n i n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F s s T í l l
0
2
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:2
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
8
6
-C
6
E
0
1
B
8
6
-C
5
A
4
1
B
8
6
-C
4
6
8
1
B
8
6
-C
3
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
1
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K