Víkurfréttir - 21.10.1982, Blaðsíða 1
19. tbl. 3. árg. Fimmtudagur 21. október 1982
íbúðir fyrir aldraða
í Njarðvík
Sl. laugardag var tekin
fyrsta skóflustungan aö
byggingu íbúða fyrir aldr-
aða i Njarðvík, að Vallar-
braut2. Skóflustungunatók
Óskar Jónsson, aldursfor-
seti og heiðursfélagi Lions-
klúbbs Njarðvíkur, en klúbb
urinn átti hugmyndina að
byggingu hússins og hefur
stór hluti af tekjum hans
verið lagður til hliðar til að
standa straum af kostnaði,
en klúbburinn hefur nú
þegar gefið undirbúnings-
vinnu og hönnunarkostnað.
Auk þess hafa nokkriraöil-
ar tekið vel undir að leggja
verkefninu lið og má þar
nefna Ellert Skúlason og
starfsmenn hans, sem grafa
fyrir húsinu og fjarlægja
uppgröft án endurgjalds.
Húsið verður á einni hæð,
4 einstaklingsíbúðir og 4
hjónaíbúðir auk samveru-
skála. Njarðvíkurbær hefur
forgöngu um byggingu
Framh. á 12. siðu
Óskar Jónsson, aldursforseti og heiöursfélagi Lionsklúbbs Njarövíkur, tók fyrstu skóflustunguna.
Trésmiðja Þorvaldar Ólafssonar: i
Samkeppnisfær við innflutta vöru
Trésmiðja Þorvaldar Ól- I fyrirtækja hér syöra, sem i framleiðslu, sem að meiri
afssonar hf. er eitt þeirra I hafa sérhæft sig í ákveðinni ' hlutaerseld útfyrirsvæöið.
Framkvæmdir eru (fullum gangi viö stækkun Trósmiöju Þorvaldar Ólafssonar
Vel staðið að málum
Oft vill brenna viö aö húsbyggjendur dragi þaö alltof lengi að
ganga frá ytra útliti húsa og umhverfi. Þetta á svo sannarlega ekki
viö um hús þaö sem sést á meðfylgjandi mynd og stendur við
Hringbraut rétt við íþróttavöllinn. Húsið er ekki einungis fallegt,
heldur er frágangur þess og umhverfi húsbyggjandanum til sóma,
en það er byggt af Hilmari Hafsteinssyni í Njarðvík. - epj.
Nú stendur yfir stækkun á
verksmiðjuhúsi fyrirtækis-
ins við Iðavelli í Keflavík, og
af því tilefni ræddi blaðið
við Þorvald Ólafsson.
,,N.k. vor verður nýja við-
bótarhúsnæðið tekið í
notkun á þeim tímamótum
hjá fyrirtækinu, að þá
eigum við einmitt 10 ára af-
mæli,“ sagði Þorvaldur.
„Fyrirtækið hóf starfsemi
sína í 50 ferm. bílskúr við
Smáratún, en 1976 fluttum
við í nýtt húsnæði við Iða-
velli sem var þá stórt stökk,
eða upp í 800 ferm. Þegar
nýja viðbótarhúsnæðið
verður tekið í notkun í vor
verður gólfplássið orðið
2000 ferm.
Við þessa stækkun verð-
ur einnig aukið við vélakost
fyrirtækisins og þá munum
við geta framleitt vöru sem
er í öllu samkeppnisfær við
innflutta vöru. Við verðum
með svipaðan vélakost og
erlendar verksmiðjur svo
sem í Skandinavíu hafa og
eru í samkeppni við okkur
hér heima, auk þess sem
mikil aukning verður á
framleiðslu við þessa
stækkun.
Sérsvið þessarar fram-
leiðslu er innihurðir og við-
arþiljur, og ídag fer%hlutar
framleiðslunnar á Reykja-
víkursvæðið og út á land.
Gert er ráð fyrir að þegar
viðbótin hefur verið tekin i
notkun muni starfa hér um
20 manns, en i dag vinna
hér 12 manns. Þá breytist
vinnslan meira ífæribanda-
vinnu, og hef ég áhuga á að
bæta í þessi störf kvenfólki,
því þarna verður um að
ræða ýmis létt störf, t.d. í
samsetningu og pökkun."
Eins og sést á þessu við-
tali við Þorvald, eru þarna
Framh. á12. siðu
Markaður kaupfélagsins opnaður um miðjan nóv.
Nú styttist óöum sátími þartil hinn nýimarkaöur KauptélagsSuöurnesjaveröuropnaöur, en stefnter
að því aö opna 18. nóvember n.k. Nú er verið að leggja i gólf, ganga frá rafmagni og leggja að kæli-
tækjum, og siðan verðurfarið að raöa upp. Nýlega voru bílastæöin malbikuð og er þar þlássfyrir 100
bíla. ( markaðnum verða matvörur, nýlenduvörur, búsáhöld, ritföng, fatnaöur, leikföng, feröa- og
Sþortvörur. Þær verslanir sem leggjast niöur við opnun markaðarins eru Skemman og verslunin að
Hafnargötu 62, svo og útibúið í Njarövík. - stgr.
Vinsæl störf
Fyrir nokkru voru aug-
lýstar lausar tvær afleys-
ingastöður við Lögregluna í
Keflavík og 1 í Grindavík.
Var hér um að ræða afleys-
ingastörf til vors, eða á
meðan fastráðnir lögreglu-
menn eru i Lögregluskól-
anum. Þrátt fyrir það sóttu
23 um þessar 3 stöður,
þannig að eftirsótt mjög
virðist vera að fá að starfa
innan lögreglunnar, alla
vega hér á Suðurnesjum.
Svipað virðist vera uppi á
teningnum varðandi aðrar
stöðuveitingar. T.d. aug-
lýsti Keflavíkurbær laust
starf skrifstofustúlku. Er
fresturrannúthöfðu 10 um-
sóknir borist um þetta eina
starf. - epj.
11 ára strákar
stálu bíl og
skemmdu
Um miöjan dag 9. okt. sl.
komust þrír strákar 10 og 11
ára gamlir yfir lykla af
Cherokee-jeppa með JO-
númeri, er stóð við Berg hf.,
Grófinni 7 í Keflavík. Um
kvöldið komu þeir síðan og
tóku bílinn traustataki og
fóru í ökuferð, sem endaði
með því að þeir bökkuðu á
annan bíl. Við þann árekst-
ur skemmdust báðir bilarnir
nokkuð og strákarnir kom-
ust í hendur lögreglunnar.
epj.
—
Kynningarrit
um aðal-
skipulagið
Eins og áður hefur
komið fram hér í blað-
inu hefur verið ákveðið
að framlengja frestinn
varðandi athugasemdir
við aðalskipulag Kefla-
víkur, Njarðvíkur og
Keflavíkurflugvallar. Að
beiðni bæjarstjórnanna í
Keflavík og Njarðvík hef-
ur verið óskað eftir því
við Skipulag ríkisins, að
það útbúi kynningarrit
og uppdrátt af þeim
svæðum sem um er að
ræða.
Keflavíkurbær hefur
ákveðið að dreifa ritinu
um bæinn til fólks, svo
það geti séð hvað um er
að ræða.
Njarðvíkingar munu
hins vegar gangast fyrir
opnum fundi þar sem
málin verða tekinfyrirog
upplýsingum dreift.
Vonandi verða bæjar-
búar margs vísari á eftir
og komi með athuga-
semdir áður en frestur
rennur út, ef einhverjar
,eru. - epj. .