Víkurfréttir - 05.04.1984, Síða 1
Starfsmenn véladeildar Í.A.V. í setuverkfalli
„Þetta er aðeins byrjunin“, segir Guðmundur Finnsson í samninganefnd starfamanna
Sl. þriöjudagsmorgun
fóru starfsmenn véladeildar
Islenskra Aðalverktaka í
setuverkfall og náði það
fram til kl. 3 sama dag. Er
hér um 65-70 menn að raeða.
„Ástæðan fyrir þessu
setuverkfalli er sú að
(slenskir Aðalverktakar
greiddu hér ákveðnum hóp
manna sambærileg laun og
varnarliðið greiðir sínum
starfsmönnum. Við fórum
fram á það sama, félags-
menn í V.S.F.K. fyrir þunga-
vinnuvélamenn og verka-
menn sem hér starfa. Þær
aðgerðir hófust í byrjun maí
Starfsmenn véladeildarinnar tóku lifinu með ró sl. þriðjudagsmorgunn þegar Ijósmyndara
Vikur-frétta bar að garði, og sátu ýmist við spil eða tafl.
sl. ár en við lentum í efna-
hagsaðgerðum ríkisstjórn-
arinnar sem bönnuðu allar
kauphækkanir frá og með
27.maí til 31.janúar 1984.
Við fengum yfirlýsingu frá
Islenskum Aðalverktökum
þar sem þeir staðfesta að
kaupið sem þeir greiða er á
margan hátt lægra en aðrir
greiða hér á vellinum, þá á
ég við varnarliðið, þeirra
þungavinnuvéladeild og
verkamenn. Frekari saman-
burðarathugun átti síðan að
hefjast aftur í nóvember og
taka gildi þegar banninu
létti. Á þeim tveim fundum
sem við áttum síðan með
forsvarsmönnum fyrirtækis
ins var okkur tekið fálega.
Það var mikill hringlanda-
háttur í þeirra viðræðum og
í þessum aðgerðum sem við
stöndum í núna er beinn
þrýstingur til að fá þá að
samningaborðinu", sagði
Guðmundur Finnsson sem
á sæti í samninganefnd
starfsmanna í samtali við
blm. Víkurfrétta sl.
þriðjudagsmorgun er
setuverkfallið hófst.
Hugið þið á enn frekari að-
gerðir ef árangur fæst ekki
með þessari vinnustöðvun.
„Þetta er aðeins byrjunin.
Það er mjög slæmt fyrir
verkafólk sem starfar hér á
Suðurnesjum aðeffjársterk
ur atvinnurekandi sem og
(slenskir Aðalverktakar geti
geti gefið út skriflega yfir-
lýsingu og ekki staðið við
hana, það tel ég mjög alvar-
KLAKADROPAR
legan hlut" sagði Guðmund
ur. „Við munum sjá að svo
komnu máli hvað þessar
aðgerðir okkar munu leiða
af sér. Ef þeir viljasetjast við
samningaborðið og hefja
viðræður á þeim grundvelli
sem umerrætt þáteljumvið
okkur hafa náð okkar
takmarki þartil að samning-
um kemur" sagði Guðmund
ur Finnsson. pket.-
Fyrstu
bátarnir
búnir með
kvótann
- og því hættir
veiðum
Nú er vitað um nokkra
litla báta sem eru hættir
veiðum, þar sem þeir eru
búnir með aflakvóta þann
sem þeim var úthlutað og
þeim hefur ekki tekist að
afla frekari kvóta annars
staðar frá. Eru þetta bátar
sem gerðir hafa verið út allt
árið um kring fram að þessu
en verða nú að hætta veið-
um, eftir aðeins tæplega
þriggja mánaða úthald.
epj.
Ljósm : pket
Fólk vantar í frystihúsin
Sala ríkisfyrirtækja
Kanna hvort ríkisstjórnin vilji selja sveitar-
félögunum hlut sinn í Hitaveitunni
Verður flutt inn erlent vinnuafl?
Þrátt fyrir mikið umtal um
minni aflakvóta og atvinnu-
leysi því samfara, er ástand
þannig í dag, að frystihúsin
fá ekki nægjanlegt vinnuafl
til starfa. Vitað er t.d. um tvö
frystihús, Brynjólf hf. í
Njarðvík og Hraðfrystihús
Keflavíkur hf„ sem hafa
að undanförnu auglýst mik-
ið eftir fólki án þess að mik-
ill árangur hafi orðið af
þeim auglýsingum.
Eyjólfur Lárusson, yfir-
verkstjóri Hraðfrystihúss
Keflavíkur hf„ sagði t.d. í
viðtali við blaðið: „Eins og
staðan er í dag þá vantar
okkur fólk og virðist ekkert
framboðveraáfólkitil þess-
ara starfa. Virðist okkur að
allir fiskverkendur búi við
þetta vandamál hér á svæð-
inu“.
Um það hvað yrði gert, ef
ekki fengist fólk, sagði
hann: „Ef ekki verður fljót-
lega breyting þarna á, hlýt-
ur það að gerast fyrr heldur
en seinna, að reynt verður
að fá hingað erlent vinnu-
afl. T.d. gerir þetta fólks-
leysi það að verkum hjá
okkur, að við náum ekki út
úr okkar hagkvæmu breyt-
ingum því sem annars ætti
að vera hægt að fá, því allt
grundvallast þetta jú af
góðu fólki og nógu mörgu
fólki, og því er það okkar
höfuðvandamál nú í augna-
blikinu". - epj.
Samþykkt var á aðalfundi
Hitaveitu Suðurnesja eftir-
farandi tillaga frá Tómasi
Tómassyni, Guðjóni Stef-
ánssyni, Guðfinni Sigur-
vinssyni og Leifi A. Isaks-
syni:
„Með tilvísun til yfirlýstr-
ar stefnu fjármálaráðherra
felur ársfundur H.S. hald-
inn 30. mars '84 stjórninni
að kanna hvort ríkisstjórnin
muni viljaseljasveitarfélög-
unum á Suðurnesjum hlut
sinn í H.S. og þá með hvaða
kjörum".
Var tillagan samþykkt
samhljóða, en Eðvald Bóas-
son gerði grein fyrir hjá-
setu sinni á þá leiö, að það
væri ekkert sem styddi það
að tillagan kæmi fram.
emg.