Víkurfréttir - 05.04.1984, Blaðsíða 20
20 Fimmtudagur 5. apríl 1984
VÍKUR-fréttir
Skeytamóttakan
er opin alla daganasem fermt
er í Keflavík og Njarðvík, í
símum 1000 og 1022.
Póstur og Sími, Keflavík
Hagur Hitaveitunnar batnar
Auglýsing
Sjálfsbjörg, Suðurnesjum, heldur aðalfund
í húsi aldraðra, Suðurgötu 12, sunnudag-
inn 8. apríl n.k. kl. 2 eftir hádegi.
Venjuleg aðalfundarstörf og kaffiveitingar.
Félagar, mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin
Dansleikur í Garðinum
föstudaginn 6. apríl n.k. frá kl. 23 - 03.
Hljómsveitin GOÐGÁ leikur fyrir dansi.
Sýndir verða Free Style dansar.
Mætið í stuðið.
VÍÐIFt
VERKSTJÓRI
Á síöasta ári varð tals-
veröur halli á rekstri Hita-
veitu Suöurnesja, eins og
reyndar hefur veriö á hverju
ári síðan rekstur hófst.
Tapiö 1983 varð kr. 97.4
milljónir og höfðu þá verið
afskrifaöar tæpar 53 millj.
kr. af gengisjöfnunarreikn-
ingi. Til samanburðar varö
tapiö 1982 kr. 78.3 milljónir,
uppfært til verðlags 31.12.
1983 kr. 121.4 milljónir.
Þannig hefur tapið á sam-
bærilegu verðlagi lækkað
um 24 milljónir kr.
Hagnaður af rekstri H.S.
án tillits til fjármagnstekna
og gjalda, varð 95.5 millj. kr.
í stað 3.4 milij. árið áður.
Rekstrartekjur fyrirtækisins
á síðasta ári urðu kr. 205.7
milljónir, sem er mikil aukn-
ing miðað við árið á undan
þegar tekjurnar urðu kr.
62.5 milljónir. Tekjur af
vatnssölu uröu kr. 176 millj.,
þar af til Varnarliðsins
53.4%, raforkusala 29.3
millj. og aðrar tekjur 369
þúsund.
Rekstrargjöld eru 110.1
milljón kr. Reksturorkuvers
kostaði kr. 29.3 millj., að-
veitu- og dreifikerfa kr. 2.7
millj. og húskerfi kr. 857
þúsund. Skrifstofu- og
stjórnunarkostnaöur var kr.
7.8 milljónir og afskriftir
69.3 millj. kr. Rekstrarhagn-
aður án fjármunatekna og
fjármunagjalda 95.5 millj.
kr.
Fjármuntekjur og gjöld.
Vaxtatekjur kr. 7 millj.,
vaxtagjöld, verðbætur og
gengismunur kr. 659 millj.
og reiknaðar tekjur vegna
verölagsbreytinga kr. 459.2
millj. Tap ársins kr. 97.4
milljónir.
Eignir Hitaveitunnar voru
einn milljarður þrjú hundr-
uð sextíu og sex milljónir kr.
þann 31. des. 1983. Veltu-
fjármunir eru kr. 53 millj. og
fastafjármunir kr. 1 milljarð-
ur 313 milljónir. Skuldir og
eigið fé eru samtals 1 millj-
arður 366 milljónir kr.
Skammtímaskuldir eru kr.
52.8 milljónir, langtíma-
skuldir kr. 1 milljarður 328
Óskum eftir aö ráöa verkstjóra til starfa. Upplýsingar veittar á
skrifstofu félagsins, Tjarnargötu 3, Keflavík.
SUÐURNESJAVERKTAKAR HF.
ER FLUTTUR
UM SET,
AÐ TJARNAR-
GÖTU 9
(stóra bílastæðiö við
skrúðgarðinn).
^PUlSUVftGNINNj^
- Verið velkomin -
milljónir. Gengisjöfnunar-
reikningur kr. 105.9 millj. og
eigið fé kr. 122 milljónir.
Heildarstofnkostnaður
H.S. hefur verið afskrifaður
um 19% eða um 321.2
milljónir kr., af 1.615.2 mill-
jónum kr. .
Ólafur Nílsson, endur-
skoðandi, sagði áfundinum
varðandi skuldir fyrirtækis-
ins sem ser eru miklar og
sumir óttuðust, að Hitaveit-
Suðurnesja stæði miklu
betur en margar nágranna-
hitaveitur með tillit til tekna
og orkuöflunar. Sagði Ólaf-
ur heildartekjur fyrirtækis-
ins 18.7% af skuldum, af því
færu 4% í reksturskostnað,
8% í vexti og 6.7% væru eftir
sem ætti að nægja fyrir af-
borgunum miðað við eöli-
legt ástand. - emg.
Sofnaði við stýrið
og ók aftan á
Fyrir rúmri viku varð all
harður og óvenjulegur
árekstur inn á Reykjanes-
braut. Bifreið sem var á suð-
urleið og var ekið á 70 km
hraða eftir brautinni, varelt
uppi af annarri bifreið sem
síðan ók aftan á fyrri bif-
reiðinni á fullri ferð.
Talið er að bifreiðarstjóri
aftari bílsins hafi sofnað við
stýrið og því stigið fastar á
bensíngjöfina. Vaknaði
hann við það þegar hann
skall á hinn bílinn. Var það
lán í óláni að hann lenti á
öðrum bíl, þvi annars hefði
hann trúlega ekið út af veg-
inum á fullri ferð.
Meiddist sá sofandi lítil-
lega, en báðir bílarnir stór-
skemmdust og varð að fá
aðstoð kranabíls til að flytja
þá á brott. - epj.
Rakið bull
Vegna lesendabréfs frá
J.H. í síðasta blaðiu hafði
annar eigandi Veislusala
KK samband við blaðið og
sagði að efni viðkomandi
bréfs væri „rakið bull", eins
og hann orðaði það. Við-
komandi aðili hefði bent á
ákveðinn skaðvald, en síð-
an dregið orð sín til baka og
því hefði aldrei verið Ijóst
hver átti hlut að máli. - epj.
OLSEN-GÁLGINN
Framh. af 2. síðu
sem ísing getur ekki hindr-
að virkni hans, né brotsjór
eða hnútur sett hann af
stað. Sjálfsleppibúnaður-
inn er ónæmur fyrir hvers
konar hnjaski, höggum og
langvarandi titringi og verð-
ur aðeins virkur við fyrir-
fram ákveðinn þrýsting.
Hann þolir langtímaveru í
68 stiga hita og og er virkur i
30 stiga frosti.
Gúmmíbáturinn blæs sig
ekki sjálfkrafa upp við
gálgaskot en er tengdur við
skipið með taug. Kippa þarf
í ræsiband bátsins til þess
að hann blási upp, nema
þegar um sjálfvirka losun er
að ræða, þá blæs hann sig
upp og slitnar frá skipinu er
það er komið á 30 metra
dýpi. Með því að láta bát-
inn ekki blása sig upp um
leið og honum er skotið, er
komið í veg fyrir að hann
skemmist, skoli honum inn
á skipið aftur í hafróti.
Áhöfnin hefir tækifæri á að
hagræða hylkinu og koma
þvi á skársta stað til þess að
blása hann upp á.
Sótt hefur verið um einka-
leyfi á öllum búnaði
OLSENS-gálgans, svo og
honum sem heild og er
verndun i gildi í öllum þeim
löndum sem að Parísarsam-
þykktinni standa.
OLSENS-gálginn er nú
kominn um borð í 250 ís-
lensk fiskiskip og fjöldi
pantana liggja fyrir bæði
hjá vélsmiðjunni svo og hjá
umboðsmönnum úti um
land.
Hönnuður OLSENS-
gálgans er Karl Olsen jr.
Framleiðandi er Vélsmiðja
Ol. Olsen, Sjávargötu 28,
Njarðvík.
OLSENS-gálginn hefur
staðist allar prófanir sem
Siglingamálastofnun ríkis-
ins hefir óskað eftir að fram
færu, og hlotið viðurkenn-
ingu þeiriar stofnunar, til
notkunar um borð í íslensk-
um skipum.
Sekúndubroti eftir aö gálginn var kominn i kaf, skaust
gúmmibáturinn upp.