Víkurfréttir - 13.09.1984, Blaðsíða 15
AUK hl Auglysingastola Kris
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 13. september 1984
15
Opnaðu leið
að bestu ávöxtun
sparifjár
hjá okkur
Nú þegar mörg innlánsform bjóðast sparifjár-
eigendum, getur reynst erfitt að sjá fyrirfram hvað gefi
besm ávöxtun þegar til lengri tíma er litið.
Því býður Verzlunarbankinn nú, fyrsmr banka,
nýjan reikning sem nefnist KASKO.
KASKO-reikningurinn er óbundinn sparisjóðs-
reikningur en með vaxtauppbót sem jafngildir
hæstu vöxtum sem bankinn býður hverju sinni eða
verðtryggingu sé hún hagstæðari.
KASKO-reikningurinn hefur þrjú vaxtauppbótar-
tímabil á ári: 1. janúar til 30. apríl, 1. maí til 31. ágúst og
1. september til 31. desember. Sé innistæðan látin standa
óhreyfð heilt tímabil tekur hún á sig vaxtauppbót en
sé tekið út á vaxtauppbótartímabili fellur hún niður það
tímabil, en innistæðan heldur sparisjóðsvöxmm eftir sem
áður.
Þannig gemrðu með KASKO fengið hámarksávöxt-
un á sparifé þitt en um leið er þér frjálst að taka út
innistæðuna hvenær sem er. Þægilegra gemr það ekki
verið.
KASKÓ - KÆRKOMIN TRYGGING FYRIR
BESTU ÁVÖXTUN.
VCRZtUNRRBRNKINN
Bankastræti 5 Húsi verslunarinnar, nýja miðbænum Umferðarmiðstöðinni v/Hringbraut Laugavegi 172
Grensásvegi 13 Arnarbakka 2 Vatnsnesvegi 1-1. Keflavík Þverholti, Mosfellssveit