Víkurfréttir - 18.07.1985, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur 18. júlí 1985
VÍKim-fréttir
VÍKUK
pttUi
„Ég sé að ég get gert ýmislegt“
segir nýútskrifaður „dekoratör64
Útgefandi: Víkur-fréttir hf.
Afgreiðsla, ritstjórn og augiýsingar:
Hafnargötu 32, II. hæö - Sími 4717 - Box 125 - 230 Keflavik
RitstJ. og ábyrgóarmenn: Blaóamaöur:
Emil Páll Jónsson, hs. 2677 Eiríkur Hermannss., hs. 7048
Páll Ketilsson, hs. 3707
Auglýsingastjóri:
Páll Ketilsson
Upplag: 4000 eintök, sem dreift er ókeypis um öll Suöurnes
hvern fimmtudag.
Eftirprentun, hljóöritun, notkun Ijósmynda og annaö,
er óheimilt nema heimildar sé getiö.
Setning, filmuvinna og prentun: GRÁGÁS HF., Kefiavík
íris Þrastardóttir er 23
ára Keflvíkingur sem
nýlega lauk námi við
Dupont dekoratörfag-
skolen í Kaupmannahöfn.
Á danskri tungu kallast
starfsheiti írisar dekoratör,
en það þýðir á venjulegu
mannamáli að hún er
sérhæfð í að gera hverslags
útstillingar og skreytingar
fyrir verslanir og annað
slíkt. Eg spurði Iris í hverju
námið væri fólgið?
<b' .b?-
ov^ \ Puma
^ Barnastærðir kr. 1.950 Fullorðinsstærðir kr. 2.226
Hringbraut 96 - Sími 4206
Fasteignaþjónusta Suöurnesja
KEFLAVÍK:
2ja herb. nýleg íbúð við Heiðarból ................ 1.250.000
3ja herb. neðri hæð við Hátún ..................... 1.350.000
3ja herb. neðri hæð við Hringbr. 61 m/bílskúr ,,laus“ .. 1.500.000
4ra til 5 herb. íbúð við Hringbr. 136 m/bílskúr .......... 2.000.000
5 herb. miðhæð við Hólabraut m/bílskúr ........... 1.500.000
Raðhús á tveim hæðum við Mávabraut, gott hús ..... 1.950.000
137 ferm. gott endaraðhús við Birkiteig m/bílskúr. 3.500.000
Faxabraut 41c:
Gott raðhús með bíl-
skúr, skipti á ódýrari
eign möguleg.
2.500.000
Mávabraut 5e:
Gott raðhús á tveim
hæðum.
1.950.000
Vesturgata 2, n.h.:
3ja herb íbúð með bíl-
skúr, skipti möguleg.
1.900.000
NJARÐVÍK:
Einbýlishús við Háseylu með bílskúr, skipti möguleg á
ódýrari eign ..................................... 3.400.000
3ja og 4ra herb. íbúðir við Hjallaveg og Fífumóa.
Fasteignaþjónusta Suðurnesja
Hafnargötu 31, II. hæö - Keflavfk - Simar 3441, 3722
„Þetta er 10 mánaða
skóli og fyrst var aðallega
unnið með hverslags plak-
atgerð og silkiþrykk en
síðan var farið meira út í
útstillingar og tekin próf í
öllu saman“.
Geturðu sagt okkur meira
um þennan skóla?
„Já, skólinn hefur starf-
að í 25 ár og á þeim tíma
hafa útskrifast þaðan 25
íslendingar. Hann tekur
við um 30 nemendum á ári
og af þeim 30 sem byrjuðu
með mér útskrifuðust 26.
Þar voru Danir í miklum
meirihluta, en nokkrir
Norðmenn og við vorum
þrjú frá Islandi".
Hvernig gekk þér í skól-
anum?
„Bara mjög vel. Ég kom
sjálfri mér mest á óvart. Ég
náði því að verða hæst í
lokaverkefninu. Það er 4ra
daga törn í að setja upp út-
stillingu og auglýsingar
með öllu. Verkefni að eigin
vali. Við vorum tvær sem
fengum 10 og það var ágæt
tilfinning. Sérstaklega
þegar maður býst ekki við
því. En þegar aðaleinkun
var reiknuð út var ég þriðja
og ég var mjög ánægð með
það“.
Hvað tekur svo við hjá þér
núna? Ertu byrjuð að vinna
við útstillingar?
Hugmynd írisar að útstillingu á vefnaðarvöru.
skipuleggja þetta frekar, fá
nokkur tonn af gömlu
krónunni, dreifa henni
þarna um og selja svo
Varnarliðsmönnum að-
gang að öllu saman?
pket.
Hætta að mal-
bika sjálfir
Keflavíkurbær hefur
auglýst eftir tilboðum í út-
lagningavél fyrir malbik,
valtara og tjörupott. Er
ástæðan sú að framvegis
taka verktakar að sér lagn-
ingu olíumalar og malbiks
á götur bæjarins en ekki
starfsmenn Keflavíkur-
bæjar eins og hingað til.
Gullnáma
undir Stapa?
Það er glampi í augum
margra varnarliðsmanna
um þessar mundir. Þeir
hafa hópast í fjöruna undir
Stapa í leit að gulli og græn-
um skógum, aðallega gulli.
Síðustu fréttir herma að
það sé farið að skipuleggja
rútuferðir út á Stapa. Varn-
arliðsmennirnir grafa
þarna upp gömlu íslensku
myntina í kílóavís, sem er
algerlega verðlaus. Þar var
henni sturtað fjöruna í ein-
hverju magni ásamt öðru
rusli þegar hún datt úr
gildi.
Væri ekki athugandi
fyrir Suðurnesjamenn að
íris Þrastardóttir. “Ég vil ekki
vera ein á myndinni".
„Já, ég tók að mér verk
fyrir hárgreiðslustofuna
Élegans og svo hef ég verið
að dútla upp í Fríhöfn.
Annars vonast ég til að fá
eitthvað að gera við fagið
sem fyrst. Þegar maður
lítur í búðargluggana
hérna heima, þá sýnast mér
vera næg verkefni. Ég sé að
ég get gert ýmislegt og vona
að ég fái nóg að gera sem
fyrst“. - ehe.
epj.