Víkurfréttir - 18.07.1985, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 18. júlí 1985
VíKUR-fréttir
Knattspyrna 3. deild:
Öruggur sigur Grindvíkinga
UMFG - Stjarnan 4:0
Grindvíkingar fengu
Stjörnuna í heimsókn á
föstudagskvöld í norðan
hvassviðri og kulda. Leik-
urinn var afar mikilvægur
fyrir bæði liðin, sem mega
helst ekki tapa stigum, ætli
þau að ná í rassinn á Sel-
fyssingum sem nú tróna á
toppnum í riðlinum. Stjarn-
an lék undan vindi í fyrri
hálfleik og áttu leikmenn
erfitt með að hemja knött-
inn í rokinu. UMFG átti í
vök að verjast framan af og
reyndar tókst gestunum
fljótlega að koma tuðrunni
í markið, en það var dæmt
af vegna rangstöðu.
Skyndisóknir heima-
manna voru ávallt nokkuð
beittar og úr einni þeirra
Símon Alfreðs í baráttu við Jóhannes Sveinbjörnsson, fyrirliða Stjörnunnar.
Suðurgötu 4a - Keflavik
Skrifstofutími:
mánudaga og fimmtudaga
frá kl. 20-22.
Stangaveiðifólk
Suðurnesjum
Við bjóðum ykkur laxveiðileyfi á bestatíma
sumarsins í LANGÁ (Jarðlangsstaða-
svæði).
Einnig eru örfá leyfi laus í ágúst í Reykja-
dalsá og Hallá.
Einnig bjóðum við silungsveiðileyfi í Heið-
arvatni í Mýrdal með dvalaraðstöðu í nýju
og fullkomnu veiðihúsi.
Stangaveiðifélag Keflavíkur
ÚTBOÐ
Sökklar sundmið-
stöðvar í Keflavík
Hér með er óskað eftir tilboðum í smíði
sökkla fyrir væntanlega sundmiðstöð í
Keflavík.
Útboðsgögn verða afhent frá og með
mánudeginum 22. júlí n.k. gegn 5000 kr.
skilatryggingu, í afgreiðslu tæknideildar
Keflavíkurbæjar.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu bæjar-
tæknifræðings, Hafnargötu 32, Keflavík,
miðvikudaginn 31. júlí n.k. kl. 11.00, að við-
stöddum þeim bjóðendum sem þess óska
og þar kunna að mæta.
Bæjartæknifræðingurinn í Keflavík
Klippurnar mikið
á lofti
Að undanförnu hefur
lögreglan verið iðin við að
klippa númer af óskoðuð-
um bílum, og hafa margir
orðið illa fyrir barðinu, ef
þeir hafa ekki verið búnir
að láta skoða, og því er viss-
ara að drífa sig með bílinn í
skoðun ef bíleigendur hafa
trassað það, svo þeir lendi
ekki í klippunum.
Meðal þeirra bíla sem
klippt hefur verið af, er einn
af slökkvibílum Bruna-
varna Suðurnesja. Þó það
sé ekki af trassaskap, þá
lenti bíllinn í klippum lög-
reglunnar. Þannig er mál
með vexti að öryggistæki
eins og t.d. slökkvibílarnir í
Keflavík og Sandgerði, eru
undir góðu eftirliti og því
hafa bifreiðaeftirlitsmenn
óskað eftir því að þessir bíl-
ar kæmu ekki til skoðunar á
sama tíma og aðrir bílar,
heldur færu eftirlitsmenn-
irnir á slökkvistöðvarnar
og skoðuðu bílana þar.
Enda er á báðum þessum
stöðvum um að ræða bíla
sem fara í mesta falli út úr
stöðinni svona 20-30
sinnum á ári.
Nú í ár voru eftirlits-
mennirnir ekki búnir að
heimsækja slökkvistöðv-
arnar og því var klippt af
bílnum eins og hverjum
öðrum sem sést til og ekki
hafa verið færðir til skoð-
unar á réttum tíma. Dugði
það til þess að eftirlitsmenn
bifreiðaeftirlitsins komu
þegar og skoðuðu þau tæki
sem óskoðuð voru. - epj.
Auglýsingasíminn
er 4717
skoraði Hjálmar Hall-
grímsson með fljúgandi
skalla eftir góðan undir-
búning Símonar. Staðan í
hálfleik 1:0.
I seinni hálfleik komu
Stjörnumenn ákveðnir til
leiks og fengu gullið tæki-
færi til að jafna strax, en
hörkuskalli smaug framhjá
stöng. Grindvíkingar vörð-
ust vel og tókst að ná und-
irtökunum. Það var svo
Guðlaugur Jónsson sem
gerði út um leikinn með
tveimur glæsimörkum á
jafn mörgum mínútum.
Hörkuskot af löngu færi
rataði rétta leið og skömmu
seinna var Gulli óvaldaður
á markteigshorni og hanir-
aði tuðrunni í þaknetið.
Raunar fékk Guðlaugur
opið færi á að skora
þrennu, en „tókst“ að
koma boltanum yfir.
Undir lok leiksins átti
Helgi Bogason langa send-
ingu/skot að marki, sem
markvörður hélt ekki og
hinn markheppni Símon
Alfreðsson hegndi honum
með potmarki. Eitthvaðfór
þetta í taugarnar á mark-
verði og æstist hann allur.
Hann róaðist svo þegar
Haukur dómari sýndi hon-
um gula spjaldið. Annars
fengu þeir Albert og Sig-
urður í UMFG líka spjöld,
en það var fyrir að hitta
ekki boltann heldur and-
stæðing, eða þannig. Sem
sagt: UMFG á ennþá
nokkra möguleika á sigri í
riðlinum. Áfram UMFG!
ehe.
Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur:
Öruggt hjá Geira
Verðlaunahafar úr Meistaramóti G.G.
Golfldúbbur Grindavík-
ur hélt meistaramót sitt á
sama tíma og G.S. Þar var
leikið í 3 flokkum, opnum
flokki með og án forgjafar,
kvenna- ogunglingaflokki.
Si gurgeir Guðjónsson varð
öruggur meistari klúbbs-
ins og gerði gott betur, því
hann vann sig upp í meist-
araflokk. Geiri er því fyrsti
m eist arfl okksm aður klú b bs-
ins, en örugglega ekki sá
síðasti.
Úrslit urðu annars þessi:
An fbrgj.:
Sigurgeir Guðjónsson . 309
Guðmundur Bragason 332
Jakob Eyfjörð ......... 347
Með förgj.:
Sveinbjörn Bjarnason . 271
Birgir Ingvason ....... 290
Bragi Ingvason ........ 291
Kvennall. - 36 holur m/forgj.:
Bylgja Guðmundsdóttir 203
Kristjana Eiðsdóttir ... 210
Berglind Demusdóttir . 217
Ungl.fl. - 36 holur m/lbrgj.:
Guðm. Ö. Guðjónss. .. 138
Gunnlaugur Sævarsson 158
Jón L. Jóhannesson . . 158
Þátttakendur voru 25.
pket.
Verslunin KÓSÝ
auglýsin
Vorum að fá mikið úrval af pappaplöntum
á mjög góðu verði.
Einnig mikið úrval af fallegum gjafavörum.
Furuskreytingar í miklu úrvali,
verð frá 195 kr.
Munið símaþjónustuna okkar eftir lokun:
4722 - 4938 - 4343.
- Gjörið svo vel að líta inn. -
Verslunin KÓSÝ
Hafnargötu 6 - Keflavik