Víkurfréttir - 18.07.1985, Blaðsíða 11
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 18. júlí 1985 11
Eru siglingar Rainbow
Navigation „svínarí“?
Mikið hefur verið skrifað og
talað um siglingar bandaríska
skipafélagsins Rainbow Navi-
gation Inc. til íslands og flutn-
inga þess á vörum varnar-
liðsins. Islensku skipafélögin
kvarta sáran yfir tekjumissi og
ósanngjarnri samkeppni og
hefur lítið komist að, annað en
sjónarmið þeirra. Nú er svo
komið að einstakir þingmenn
og jafnvel utanríkisráðu-
neytið eru farnir að hóta laga-
setningum til að stöðva
þennan „ósóma“.
Núverandi ástand er farið
að valda þeim sem betur vita,
miklum áhyggjum. Því aðrir
og veigameiri hagsmunir Is-
lands geta dregist inn í þessa
mynd, með litlum fyrirvara.
Staðreyndin er nefnilega, að sú
sviðsetning sem íslensku
útgerðirnar hafa dregið upp af
þessu máli, segir ekki nema
helminginn af sannleikanum.
Tilkomu Ranbow Navigation
Inc., má rekja til óeðlilegrar
verðlagningar á flutningum
íslensku útgerðanna. Það sem
gerir málið öllu alvarlegra er
að vissir þingmenn og
utanríkisráðuneytið kingja
hálfum sannleikanum
ómeltum og ana út á svið sem
þeir hafa takmarkað vit á, með
hótunum sem geta skaðað
miklu veigameiri hagsmuni
landsins og jafnvel skaðað
hagsmuni útgerðanna sjálfra,
þegar til lengri tíma er litið.
Nauðsynlegt er að skoða
þetta mál yfir lengra tímabil,
til að sjá hvað hefur raun-
verulega gerst. í upphafi voru
flutningar fyrir varnarliðið á
vegum bandaríska skipafél-
agsins Moore-McCormack í
skjóli innlendra aðila. Þetta
bandaríska félag hætti síðan
þessum siglingum bæði vegna
þess að skip þess voru óhentug
til þessara siglinga og vegur
félagsins hnignaði almennt.
Tók Eimskipafélagið þá við
flutningum fyrir varnarliðið.
Flutningsgjöld Eimskipafél-
agsins í siglingum til Ameríku
urðu fljótt verulega hærri en
viðgekkst í Atlantshafssigling-
um, fyrst og fremst vegna
þeirrar miklu tækniþróunar
sem varð með gámavæðing-
unni, en þessi þróun barst
hingað mikið seinna. Einnig
olli skortur á samkeppni hin-
um háu flutningsgjöldum
Eimskipafélagsins, enda lækk-
aði það ekki flutningsgjöldin
þegar félagið byrjaði með
gámaskip á þessari siglinga-
leið.
A seinni hluta síðasta árs
byrjaði svo skipafélagið Bif-
röst hf. siglingar til Banda-
ríkjanna, með flutninga fyrir
varnarliðið sérstaklega í huga.
Flutningsgjöldin fyrir varnar-
liðið voru svo há, að þótt m/s
„Bifröst'* hafi verið allskostar
óhentugt skip til þessara sigl-
inga, þá var samt hægt að
hagnast á siglingunum.
Gjaldið fyrir flutninga á 20
feta þurrgámi með hervöru til
íslands frá Bandaríkjunum
var á þessum tíma meira en
þrisvar sinnum hærra en fyrir
slíkan gám í Atlantshafssigl-
ingum alla leið frá meginlandi
Evrópu til sömu hafna í
Bandaríkjunum. Eimskipafél-
agið brást mjög hart við sam-
keppni Bifrastarinnar og upp-
hófst flutningagjaldastríð á
hervörunni milli skipafélag-
anna, sem stóð yfir næstu
fimm árin. Það varð ekki fyrr
en 1982 að flutningsgjöld á
hervörunni voru komin aftur
upp í þær sömu tölur í dollur-
um ogþau voru 1977,þegarað
verðstríðið byrjaði. Sjóílutn-
ingadeild hersins var ánægð
með þessa samkeppni íslensku
félaganna og naut góðs af,
enda lækkuðu flutningsgjöld
til Islands yfir 50% og nálguð-
ust þau flutningsgjöld sem
voru almennt í flutningum yfir
Atlantshafið. Bifröst hf. lifði
ekki af þetta harða verðstríð
við Eimskipafélagið og riðaði á
barmi gjaldþrots og var end-
anlega keypt af samkeppnis-
aðilanum, Eimskipafélaginu.
Strax í kjölfar þess að Bifröst
hf. hætti siglingum, þutu flutn-
ingsgjöldin fyrir hervöruna
upp í fyrra form og var
Sjóflutningadeildin augljós-
lega óhress með þessa þróun,
sem bar keim af einokun.
Sjóflutningadeildin var því
mjög ánægð þegar Hafskip hf.
hóf siglingar til Bandaríkj-
anna 1980 og átti nú von á að
samkeppnin myndi leiða af sér
sanngjörn flutningsgjöld á
hervörunni. En strax kom í
ljós, að ekki var um neina sam-
keppni að ræða, því Hafskip
notaði nákvæmlega sömu
flutningsgjöld og Eimskipa-
félagið fyrir hervöruna og allar
breytingar á töxtum voru
gerðar sameiginlega af báðum
félögunum. Eimskipafélagið
fjölgaði skipum á siglingaleið-
inni og varð mikið yfirfram-
boð í rými. Þrátt fyrir yfir-
framboð í rými, voru flutn-
ingsgjöldin svo há, að sigling-
ar skipanna báru sig, þótt þau
sigldu sum hver hálftóm mest
af tímanum. Þessi þróun olli
eðlilega mikilli gremju hjá Sjó-
flutningadeild hersins, því hér
var augljóslega um einokun að
ræða. Þó keyrði um þverbak á
árunum 1983 og 1984, þegar
bæði Eimskipafélagið og Haf-
skip hófu flutninga á gámum
yfir Atlantshafið, um Island.
Þá var svo komið að Sjóflutn-
ingadeildin borgði 3.600
dollara fyrir 20 feta gám frá
Bandaríkjunum til íslands, á
meðan um borð í sama skipi
voru samsvarandi gámar frá
Bandaríkjunum, með umskip-
un á íslandi og áfram til
Evrópu fyrir 1000 dollara.
Það var síðan í kjölfar
þeirrar einokunar og ótrúlega
háu flutningsgjalda sem Eim-
skipafélgið og Hafskip kröfð-
ust fyrir flutningana til íslands
og mikillar óánægju Sjóflutn-
ingadeildarinnar sem spurðist
út, að aðilar í Bandaríkjunum
sáu sér leik á borði að stofna
útgerð um þessa flutninga sem
skilaði hagnaði vegna hinna
háu flutningsgjalda. Þessir
aðilar stofnuðu Rainbow
Navigation Inc. og fengu til
þess aðstoð frá verkalýðsfélög-
um sjómanna og einnig
sérsamninga um laun sjó-
mannanna, sem eru verulega
undir gildandi samningum.
Verkalýðsfélögin töldu sig
tilneydda til slíkra tilslakana
til að létta eitthvað á því at-
vinnuleysi sem ríkir hjá með-
limum þeirra.
Þótt Rainbow Hope sé lítið
skip er samt hægt að reka það
með hagnaði vegna hinna háu
flutningsgjalda. Þegar
Rainbow hóf siglingar sínar,
var það gert á nákvæmlega
sömu töxtum og Eimskipafél-
agið og Hafskip nota og ekki
um undirboð að ræða, né að
þeir notuðu sér lagalegan for-
gang á flutningum með hærri
flutningsgjöldum. Nú er svo
komið að Rainbow annast
u.þ.b. 60% af herflutning-
unum, en Eimskipafélagið og
Hafskip um 40% saman. Þótt
Eimskipafélagið og Hafskip
hafi lækkað og síðan hækkað
aftur flutningsgjöldin í fyrra
horf, þá veit Sjófiutninga-
deildin af biturri reynslu að
slíkt eru einungis viðbrögð til
að koma á fót fyrri einokun og
getur enginn álasað þeim það.
í ljósi fyrrgreinds, er aug-
ljóst að Rainbow Navigation
Inc. hefði aldrei orðið til, ef
ekki hefði komið til óstjórnleg
græðgi og vafasamir viðskipta-
hættir íslensku útgerðanna í
gegnum einokun og meira en
þrefalt hærri flutningsgjöld en
almennt gerðust á svipuðum
siglingaleiðum. Það skýtur
líka skökku við þegar stjórn-
völd hérlendis taka að sér að
verja slíka „aronsku" með
kjafti og klóm og ef
„aronskan" á að verða ofaná
og sjálfsvirðing íslendinga til
sölu, þá er erfitt að sjá hvers
vegna einstakir aðilar eins og
þessar útgerðir eiga að njóta
hennar, umfram aðra.
Allar yfirlýsingar utanríkis-
ráðuneytisins og svör banda-
ríska utanríkisráðuneytisins
um mál þetta bera keim af
miklu kunnáttuleysi og barna-
skap. Umtalaðar breytingar á
bandarískum lögum til að
fyrirbyggja sérréttindi
Rainbow Navigation Inc. eru
út í hött, því siglingar þess-
arar útgerðar eru örlítið brot
af miklu stærra dæmi.
Bandaríkin geta bent á að
fram til siglinga Rainbow
Navigation Inc., hafi íslend-
ingar alfarið haft alla sjófiutn-
inga á milli landanna í sínum
höndum og „Rainbow Hope“
annist ekki nema u.þ.b. 15%
allra fiutninga milli landanna í
dag. Ennfremur geta
Bandaríkin bent á að fast að
helmingur siglinga milli land-
anna séu stundaðar af skipum
í þjónustu íslensku útgerð-
anna, en eru undir erlendum
fánum og ekki mönnuð íslend-
ingum.
Þjóðum sem eru í sömu að-
stöðu og íslendingar i þessum
málum, s.s. Bretar, Vestur-
Þjóðverjar, Grikkir, Tyrkir
o.s.frv., hefur aldrei dottið í
hug að setja lög sem takmarki
forgang bandarískra skipafél-
aga að bandariskri hervöru,
enda er þeim öllum ljóst að
útgerðir þeirra hafa yfirgnæf-
i andi hlutfall af fiutningum
milli lands síns og Bandaríkj-
anna. Þessi lönd eru einnig
þess meðvituð að útgerðum
þeirra er lífsnauðsyn að hafa
sem mest frelsi í siglingum,
sem er einn af hornsteinum
undir allri milliríkjaverslun og
milliríkjaverslun ein helsta
forsenda hagvaxtar í
heiminum. Einnig má benda á
að Bandaríkin eru ekki ein um
að veita skipum skráðum í
heimalandi sínu, forgang að
herfiutningum. Þetta gera
Bretar, Frakkar o.s.frv., að
ekki sé minnst á Sovétríkin.
íslendingar umfram allar
aðrar þjóðir, njóta þess að sitja
allt að því einir að sínum milíi-
landasiglingum og er það
mikill þjóðarhagur, því eru öll
viðbrögð sem stefna þessum
þjóðarhag í hættu varhuga-
verð og sem mest frelsi siglinga
mikils virði fyrir okkur.
Lagasetningar og takmark-
anir siglinga, eins og nú eru til
umræðu eru því beinlínis
hættulegar og geta boðið því
heim, að ýmsar viðskipta-
þjóðir okkar, s.s. Nigeria,
Portúgal o.fi. geti krafist hluta
fiutninga á útfiutningsvörum
okkar sem við seljum þeim, í
eigin skipum án tillits til
flutningsgjalda og eru þessir
hagsmunir einir sér stærri en
Rainbow Navigation, enda
markaðsverð afurða okkar þá í
hættu, að ekki sé minnst á
hagsmuni þeirra íslensku út-
gerða sem stunda þessar sigl-
ingar nú.
Að lokum má benda á að
allar lagalegar takmarkanir
sem við setjum á bandarískar
útgerðir, myndu mjög líklega
leiða af sér harðar mótbárur
hjá bæði almenningi og verka-
lýðsfélögum í Bandaríkjunum,
sem þarlend stjórnvöld geta
lítið haft áhrif á. Verkalýðs-
félög þar hafa áður gripið til
hafnbanna á erlend skip í
trássi við stjórnvöld, vegna
hagsmunaárekstra milli þjóða.
Einnig skal hafa í huga að sú
nefnd Bandaríkjaþings sem
fjallar um siglingar Rainbow
Navigation hefur einnig með
að gera fiskveiðar Banda-
ríkjamanna og geta umræddar
lagasetningar augljóslega haft
neikvæð áhrif á möguleg
veiði- og löndunarréttindi
íslenskra skipa í Banda-
ríkjunum, sem verið hafa til
umræðu. Bandaríkin eru
okkar veigamesti útfiutnings-
framh. á síðu 14
Áhugafólk um útiveru
og ferðamennsku
N.k. laugardag, 20. júlí, efna Ferðamálasamtök
Suðurnesja til skoðunar- og söguferðar um
Hafnir - Reykjanes - Grindavík - Bláa lóniö
Ekiö um Hafnir út á Reykjanes. Litast um á Reykjanesi,
m.a. fariö upp i vitann. Ekiö um Staöarhverfi og litast um í
laxeldisstöö. Grindavíkurkaupstaöur skoöaöur áöur en
haldiö er i skoöunarferö um Hitaveitu Suöurnesja og aö
Bláa lóninu. Fólki gefst kostur á sundspretti í lóninu. Aö-
gangur aö baöaöstööu. Þeir sem vilja geta notiö veitinga i
nýju og glæsilegu gistiheimili við lóniö.
Lagt verður upp frá bæjarskrifstofunum í Kefla-
vík stundvislega kl. 13.00 - Leiðsögumaður:
Guðrún Eyjólfsdóttir.
Verð kr. 300 fyrir fulloröna, 150 fyrir 12-15 ára.
Frítt fyrir börn í fylgd með foreldrum. Áætluö
heimkoma til Keflavíkur kl. 17.-17.30.
FERÐAMÁLASAMTÖK SUÐURNESJA
Hafnargötu 27 - Keflavík - Sími 4099