Víkurfréttir - 05.09.1985, Qupperneq 6
6 Fimmtudagur 5. september 1985
VÍKUR-fréttir
Góð auglýsing gefur góðan arð.
Auglýsið í Víkur-fréttum.
Leirnámskeið
hefst 12. sept. Innritun í síma 2238.
Erla Sigurbergsdóttir
Beitningarmenn
Óskum eftir aö ráða vana beitningamenn
við m/b Þröst KE 51, sem hefja mun línu-
veiðar um miðjan september.
Upplýsingar í síma 4666.
BRYNJÓLFUR HF.
Njarðvík
Málningar-
þjónusta
Óskars 7644
ATVINNA - Málarar
Óska að ráða málara eða laghenta menn í
vinnu, í lengri eða skemmri tíma.
Uppl. í síma 7644.
Húsnæði óskast
Óska eftir íbúðar- og geymsluhúsnæði,
saman eða í sitt hvoru lagi. Uppl. íveitinga-
vagninum BOGARÚLLUR, Hafnargötu 25,
Keflavík.
Bráðhress
starfskraftur óskast í afgreiðslu í veitinga-
vagninum BOGARÚLLUR, Hafnargötu 25,
Keflavík. Bílpróf nauðsynlegt. Uppl. á
staðnum.
Slökkvitækja-
þjónusta
Suðurnesja
Kolsýruhleðsla - Dufthleðsla
Viðhald og viðgerðir á flestum
tegundum slökkvitækja
Reykskynjarar - Rafhlöður
Brunaslöngur - Slökkvitæki
Uppsetning ef óskað er.
Viðurkennd eftirlitsþjónusta
handslökkvitækja í bátum og skipum.
Slökkvitækjaþjónusta Suðurnesja
Háaleltl 33 - Ketlavik - Siml 2322
Ferðamálasamtök Suðurnesja:
Góð reynsla af fyrsta starfsárinu
- Óþrjótandi starf framundan varðandi uppbyggingu
ferðamannaiðnaðar á Suðurnesjum
Ferðamálasamtök Suð-
urnesja eru þessa dagana að
ljúka fyrsta skipulagða
starfsmisseri sínu. Af því
tilefni tókum við formann
samtakanna, Pétur Jó-
hannsson, tali sl. mánudag.
Báðum við hann að segja
okkur frá reynslunni af
þessari starfsemi og hvaða
lærdóm menn hefðu fengið
og hver yrði framtíðin.
„Þetta hefur komið
sæmilega út, þó stundum
hafi þurft að fella niður
ferðir“, sagði Pétur. „Hefur
reynslan sýnt okkur að
þátttakan fer mikið eftir
veðráttu, en þátttakan virð-
ist fara mest eftir því hvern-
ig þessar ferðir spyrjast út
manna á meðal. Ef þátt-
taka hefur verið undir 10
manns höfum við fellt við-
komandi ferðir niður.
Höfum við fengið ágætis
reynslu út úr þessu og vit-
um nú hvað má betur fara
og hvað ekki. Við vitum
það líka að mjög fljótlega
tekst að metta innanlands-
markaðinn og því verðum
við að snúa okkur að er-
lendum ferðamönnum, en
það fólk sem komið hefur í
þessar ferðir er mest af
Reykjavíkursvæðinu,
minna er um að heima-
menn komi með. Að vísu
fer það eftir hvað á boð-
stólum er, t.d. er mikill
áhugi fyrir Eldeyjarferð
sem verður á næstunni.
Næsta sumar munum við
snúa við blaðinu og skipu-
leggja móttöku á erlend-
um ferðamönnum og er nú
verið að útbúa bækling fyrir
þann markað. Munum við
því í framtíðinni verða frek-
ar ráðgefandi aðili um
ferðalög hér á svæðinu, en
látum ferðaskrifstofurnar
um sjálfar ferðirnar. Einnig
munum við skipuleggja
ferðir fyrir landann hér um
svæðið án þess að við séum
beinir þátttakendur í þeim.
Utvegum við leiðsögumenn
og ýmsa aðra þjónustu sem
þessu fylgir.
Varðandi innanlands-
markaðinn munum við
hafa samband við ýmis
ferðafélög sem hafa innan-
landsferðalög á stefnu-
skránni, s.s. Utivist, og fá
þau í lið með okkur. En
varðandi erlendu ferða-
mennina, þá horfum við
t.d. til skemmtiferðaskip-
anna o.fl. hópa, sem koma
hingað í stuttar ferðir".
Liggur ljóst fyrir að hér
er mikið starf framundan
hjá þessum ungu samtök-
um, því ekkert annað þýðir
en að fylgja þessu fast eftir
ef einhver árangur á að
nást, þannig að ferða-
mannaiðnaður geti orðið að
veruleika á Suðurnesjum i
framtíðinni. Er því um
óþrjótandi starf að ræða og
ættu því allir þeir sem
áhuga hafa fyrir að leggja
einhvern skerf í uppbygg-
ingu þessa að koma boðum
til stjórnarmanna Ferða-
málasamtaka Suðurnesja.
epj-
Til styrktar Þroskahjálp
Þessar tvær ungu dömur héldu hlutaveltu að Elliðavöllum 17 og
gáfu ágóðann til styrktar Þroskahjálp á Suðurnesjum. Þær heita
Olga Sif Guðgeirsdóttir og Gunnur Magnúsdóttir.
l-X-2 l-X-2
„Hef haldið með Chelsea í 20 ár“
„Ég er búinn að halda með Chelsea síðan 1964, eitthvað
svoleiðis. Þetta eru orðin rúm 20 ár og sannarlega gleðilegt
að liðið skuli vera komið í 1. deildina á ný“. Svo mælir
hinn gallharði Chelsea-aðdáandi, Omar Jóhannsson,
Garðmaður með meiru, þótt heima eigi í Keflavíkinni.
„Ég tippa nú ekki mikið en fylgist samt mikið með.
Þetta er eiginlega eins og hjá honum Ragga vini mínum.
Ég fylli út seðil þegar ég man. Unnið? Jú, bíddu við, ein-
hvern tíma vann ég nokkra „fimmhundruðkalla".
„Það er greinilegt að deildin verðurjöfn ogskemmtileg.
Man. Utd. fer að springa á limminu en ég spái þeim þó
sigri um helgina. Liverpool-liðin eiga eftir að koma meira
inn í baráttuna. Eins Lundúna-liðin Tottenham og Arsen-
al, sérstaklega það fyrrnefnda. En þetta sýnir að ekki er
nóg að hafa liðin stjörnum prýdd, liðsheildin skiptir
miklu. Mitt lið? Þeir eiga eftir að spjara sig. Ég spái þeim
5.-6. sæti. Númer eitt að þeir verði fyrir ofan Sheffield
Wed. Við komum nefnilega upp með þeim í hitteðfyrra og
vorum stigi fyrir ofan. En, heyrðu, Páll, hvað meinarðu?
Er liðið mitt ekki á seðlinum?"
Heildarspá Ómars:
Leikir 7. sept.:
Birmingh. - Aston Villa 1
Coventry - Arsenal . . X
Liverpool - Watford . 1
Man. Utd. - Oxf. Utd. 1
Q.P.R. - Everton .... X
Sheff. Utd. - West Ham 1
South’pton - Man. City 2
Tottenh. - Newcastle . X
W.B.A. - Ipswich .... 1
Charlston - Cr. Palace 1
Fulham - Portsmouth X
Shrewsbury - Leeds .. 2
Formaðurinn í forystu - náði 7 réttum
Formaður ÍBK, Ragnar Margeirsson, gerði það heldur
betur gott á síðasta seðli. 7 réttir lágu og forystan er hans. I
fyrra dugðu 7 réttir í úrslitin. Nú er aðsjáhvaðfélagi hans,
Ómar Jóhannsson, gerir.
P.S. Getraunaáhugamenn! Ég er kominn með all
nokkur nöfn manna sem vilja vera með í leiknum hér. En
það er nógplássfyrir fleiri, leikirnir skipta tugum. Hringið
eða skriftð, - til mikils er að vinna. - pket.