Fréttabréf - 01.09.1992, Blaðsíða 10

Fréttabréf - 01.09.1992, Blaðsíða 10
Reykjavíkurangi hélt félagsfund miðvikudagskvöldið 2. september. Fagur hópur vaskra kvenna var þar saman kominn og lagði á ráðin um starfið á komandi missirum. Tilkynnt var, að Margrét Sæmundsdóttir hefur tekið að sér að verða varakona Guðrúnar Ögmundsdóttur næstu tvö árin í borgarstjóm. Henni var fagnað með lófaklappi og góðum óskum um leið og lagt var á ráðin, hvernig við gætum staðið að útskiptunum sjálfum með glæsibrag. Ákveðið hafði verið, að Elín G. Ólafsdóttir sæti sinn síðasta borgarstjórnarfund þann 17. september, sem er fyrsti fundur að loknum sumarleyfum. Á þann fund er ráðgert, að við kvennalistakonur fjölmennum á pallana við fundarsetningu kl. 17.00. Það er þó bara byrjunin! Því síðan er ætlunin að safnast saman að Laugavegi 17 daginn eftir, föstudaginn 18. septemberkl. 17.00, og þakka Elínu samstarfið og málfiutning fyrir Kvennalistann og allar konur. Eitt er svo að þakka Elínu frábær störf, annað er að taka á móti Guðrúnu til starfa. í því skyni er ætlunin að mæta aftur á palla borgarsljórnar hálfum mánuði síðar eða þann 1. október og bjóða þessa nýju valkyrju velkomna til starfa. Við höfum því ærin tækifæri til að dusta af okkur sumarslenið, halda í miðbæ- inn og mynda glæstan hóp baráttukvenna á pöllum borgar- stjórnar. Einnig var rætt lítillega um útskiptingar í nefndum. Þar kom fram, að Kristín Blöndal, fóstra og myndlistarkona, verður aðalkona í sijórn Dagvistar barna og Hólmfríður Garðarsdöttir varakona hennar, en Kristín Árnadóttir verður varakona í stjóm Sorpu. Þeim er óskað alls hins besta fyrir veturinn. Sagt var frá því, að kannaðir hafa verið möguieikar á því að taka Hótel Vík á leigu fyrir starfsemi Kvennalistans, og var mikill áhugi á því máli. Málefni landsfundar voru mikið rædd. Það er Reykjavík- urangi, sem ber ábyrgð á því að standa veglega að landsfundi nú haustið 1992. Mokkrar konur gáfu kost á sér til undirbún- ings og munu nú hella sér í verkið ásamt framkvæmdanefnd angans. Ýmsar tillögur komu fram um húsnæði og aðbúnað, nokkrar um málefni og áherslumál, og í kjölfarið var ákveðið að hittast á fundatíma framkvæmdanefndar á mánudögum kl. 10

x

Fréttabréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1209

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.