Morgunblaðið - 06.10.2015, Qupperneq 1
ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 2015
BÍLAR
Reynsluakstur VW Golf Alltrack er
rennilegasti vagn, rásfastur og með
öfluga vél og rúmgott farangursrými.
Eyðslutölurnar eru þó
heldur í hærri kant-
inum og verðið er
sömuleiðis nokk-
uð hátt. »4
Alpine margmiðlunartæki með
leiðsögukerfi fyrir þá sem víða rata
Reykjavík - Raufarhöfn - Róm
Síðumúla 19 • Sími 581 1118 • nesradio.is
Í
síðustu viku var tilkynnt um val á Bíl ársins á Ís-
landi þetta árið en þetta er í þrettánda sinn sem
tilkynnt er um valið hér á landi. Bíllinn sem hlaut
Stálstýrið að þessu sinni var Volvo XC90 og var
hann vel að sigrinum kominn að mati Bandalags ís-
lenskra bílablaðamanna, eða BÍBB sem stendur að
valinu. Að vísu var keppnin mjög spennandi að þessu
sinni og stutt á eftir komu þrír Heklubílar, sem voru
Golf GTE, Audi Q7 og VW Passat. Einnig var bryddað
upp á þeirri nýbreytni að þessu sinni að velja bíl árs-
ins í flokki umhverfisvænna en til úrslita kepptu 15
bílar í alls fimm flokkum, flokki minni og stærri fólks-
bíla, flokki jeppa og jepplinga auk flokks umhverf-
isvænna bíla.
Stóð sig vel yfir heildina
Bílablaðamenn BÍBB reyndu úrslitabílana í heilan
dag á endurbyggðri Kvartmílubrautinni sem státar
nú af hringakstursbraut. Bílunum eru gefin stig eftir
frammistöðu þeirra auk upplýsinga um verð, eyðslu,
búnaðar og fjölda annarra þátta. Vinningsbíllinn
Volvo XC90 þótti standa sig vel á allflestum sviðum
og þar með talið í verði þegar horft er til samkeppn-
isaðila. Einnig státar hann af nýrri nálgun í innri
hönnun og umhverfi bílstjórans. Það sama má segja
um vinningshafann í flokki minni fólksbíla en það var
Citroën C4 Cactus. VW Passat sem var hlutskarp-
astur í flokki stærri fólksbíla, og Mazda CX-3 sem
vann jepplingaflokkinn þóttu framúrskarandi akst-
ursbílar. Athygli vakti einnig að bíllinn sem varð í öðru
sæti yfir heildina kom úr flokki umhverfisvænna, en
VW Golf GTE vann þann flokk með nokkrum yf-
irburðum. Annars var röðin eins og hér segir:
Flokkur minni fólksbíla:
Citroën C4 Cactus
Mazda2
Skoda Fabia
Flokkur stærri fólksbíla:
VW Passat
Skoda Superb
Ford Mondeo
Flokkur jepplinga:
Mazda CX-3
Renault Kadjar
Nissan X-Trail
Flokkur jeppa:
Volvo XC90
Audi Q7
Land Rover Discovery Sport
Flokkur umhverfisvænnra bíla:
VW Golf GTE
Tesla Model S P85D
VW e-Golf
njall@mbl.is
Stálstýrið veitt í þrettánda sinn
Volvo XC90 bíll ársins á Íslandi 2016
Volvo XC90 var kynntur til sögunnar á Spáni snemma á þessu ári og vakti strax verðskuldaða athygli.
Morgunblaðið/Tryggvi Þormóð
Bílarnir fimmtán ásamt þeim sem prófuðu þá að þessu sinni en það voru frá vinstri: Róbert Róbertsson, Njáll Gunnlaugsson,
Jóhannes Reykdal, Ingvar Örn Ingvarsson, Róbert Runólfsson, Finnur Thorlacius, Guðjón Guðmundsson og Stefán Ásgrímsson.