Morgunblaðið - 06.10.2015, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 2015
4 BÍLAR
S
jöunda kynslóð VW Golf
er bíll sem hefur unnið til
fjölda verðlauna og nýj-
asta viðbótin þar er lang-
bakur með fjórhjóladrifi sem kall-
ast Alltrack. Sá bíll er eins og
hefðbundinn langbakur með 20
mm meiri veghæð og er hannaður
fyrir Norður-Evrópu og þá auðvit-
að Ísland líka. VW dísilbílar eru
ekki hátt skrifaðir þessa stundina
og því var það ákveðinn léttir fyrir
blaðamann Morgunblaðsins að
prófunarbíllinn var með bensínvél,
180 hestafla rokki og DSG sjálf-
skiptingu. Eða var það reyndin?
Rúmgóður og vel búinn
Að innan er VW Golf Alltrack
nánast alveg eins og Golf Variant
og búnaðarlistinn því sá sami. Má
þar nefna tvískipta miðstöð og
Xenon aðalljós. Að utan lítur hann
aðeins öðruvísi út með aðeins
meiri veghæð sinni, og auk þess
er búið að setja á hann meiri
plasthlífar við hjólboga, stuðara
og sílsa. Golf Variant þykir rúm-
góður bíll fyrir sinn flokk og ekkert
sem kemur á óvart þegar innra
rými Golf Alltrack er skoðað. Sæt-
in eru mátulega rúmgóð þótt set-
an mætti vera aðeins lengri í fram-
sætum, en aftursæti eru vel
ásættanleg fyrir þrjá fullorðna og
sem bónus er gott höfuðrými sem
kemur þeim hávaxnari á óvart.
Farangursrýmið er með besta
móti eða 605 lítrar og er stækk-
anlegt í 1.620 lítra og rúmar þess
vegna tvö golfsett án þess að fella
niður sæti.
Skemmtilega rásfastur
Í akstri virkar bíllinn mjög
skemmtilegur og munar þar mest
um öfluga vél og fjórhjóladrifið.
Þegar vélin er komin á snúning er
hann fljótur að éta upp kílómetra-
tölurnar og upptakið er alveg með
ágætum eða 7,8 sekúndur í
hundraðið. Gallinn er hins vegar
sá að DSG skiptingin er gjörn á að
hika aðeins þegar stigið er snöggt
á gjöfina, og það er eins og það
ágerist með öflugri vélum og verði
greinilegra eins og í þessum bíl.
Veggrip er allgott í öllum eðlileg-
um akstri en undirstýring verður
áberandi þegar lagt er mikið á
stýrið. Golf Alltrack notar Haldex
kúplingu til að stjórna átaki fjór-
hjóladrifsins en venjulega keyrir
bíllinn bara í framdrifinu til að
halda niðri eyðslu. Þegar kerfið
skynjar að bíllinn sé að fara að
missa grip á einhverju hjóli tekur
fjórhjóladrifið við. Hægt er að
stilla bílinn á sérstakt Off Road
Mode en það endurstillir bæði
bensíngjöf og ABS hemlalæsivörn
fyrir akstur á lausu undirlagi. Sem
hluti af því er brekkuviðnám sem
hjálpar bílnum niður erfiðari
brekkur. Fjöðrunin ásamt aukinni
veghæð gerir sitt fyrir góðan og
öruggan akstur á mölinni.
Eyðsla í engu
samræmi við uppgefið
Eins og fjallað hefur verið all-
ítarlega um er mengunarsvindl
VW nú á allra vitorði. Þar snerist
svindlið um að ná niður meng-
unartölum en ásamt því hafði
svindlið áhrif á eyðslutölur
bílanna. Þeir sem skrifa reglulega
um bíla og aðrir sem fylgjast vel
með hafa tekið eftir að uppgefnar
eyðslutölur nýrra bíla eru í engu
samræmi við rauneyðslu og mun-
ar það oft ansi miklu.
Þess vegna hefur þá grunað
lengi að prófin sem eiga að reikna
út mengun og eyðslu bílanna séu
út úr kú og alls ekki nógu góð í að
líkja eftir eðlilegum akstri. Sú er
bersýnilega raunin í Golf Allrad
sem á að eyða 6,5 lítrum á hundr-
aðið samkvæmt þessum opinberu
tölum, en raunin var að eyðslan
hékk í kringum 13 lítra á hundr-
aðið í innanbæjarakstri þar sem
uppgefin eyðsla á að vera 8,1 lítri.
Breytti það litlu þótt reynt væri að
keyra bílinn sparlega í Eco-
stillingu.
Mun líklegra er að hægt sé að
ná niður eyðslunni í Alltrack með
tveggja lítra dísilvélinni.
Dýr miðað við jeppling
Beinir keppinautar VW Golf Allt-
rack eru fáir ef einhverjir hér á
landi og er það helst Skoda Ok-
tavia Scout sem keppir við hann
þótt stærri sé. Sá bíll kostar
6.110.000 kr sem er ekki mikið yf-
ir grunnverði Golf Alltrack sem
byrjar í 5.490.000 kr. Reyndar er
þetta sama grunnverð og á jepp-
lingnum Hyundai Tucson sem
dæmi en Morgunblaðið reynsluók
honum fyrir skömmu. Líklegt má
því telja að þótt Golf Alltrack sé að
mörgu leyti hinn skemmtilegasti
bíll muni verðið þýða að hann eigi
erfitt uppdráttar hérlendis.
njall@mbl.is
Njáll Gunnlaugsson reynsluekur VW Golf Alltrack
VW Golf Alltrack er rennilegasti vagn eins og sjá má og skemmtilegur í akstri. Hann hefur meiri veghæð en hefðbundinn Golf langbakur og meiri plasthlífar á ytra byrði.
Góður vagn
en geldur
fyrir eyðsluna
VWGolf Alltrack Árgerð 2016
• 1,8 lítrabensínvél
• 180hestöfl/280Nm
•6þr.DSGsjálfskipting
• 17 tommuálfelgur
• Eiginþyngdkg: 1.540
• Farangursrými: 605 lítrar
• 0-100km/sek: 7,8 ssk
•Hámark: 217km/klst
• fjórhjóladrif
•Verð frá: 5.490.000kr
• 6,5L/100km íbl akstri
• Umboð:Hekla
•Mengunargildi:
153gCO2/km
Kostir: Öflug vél, rúmgott skott, rásfesta
Gallar: Eyðsla, verð
Að innan er Alltrack útgáfan alveg eins og venjulegur Variant en mun-
urinn á þeim eru stillingar fyrir fjórhjóladrif og þess háttar.
Rými í aftursætum er allgott og
munar talsvert um gott höfuðrými
fyrir þá hávaxnari.