Morgunblaðið - 06.10.2015, Blaðsíða 6
E
ins og komið var að í Bílablaði Morgunblaðsins þann 22. október
sl. er heldur meiri völlur á bílaframleiðendum þessi misserin en
verið hefur um alllanga hríð. Liðin er sú tíð að framleiðendur
keppi einvörðungu á grundvelli verðs, eldsneytiseyðslu og hag-
kvæmni og lúxusinn síðan 2007 er snúinn aftur og í þetta sinn með liðs-
auka. Vissulega er horft í tölur um t.d. eldsneytiseyðslu og kolefnis-
útblástur, nema hvað, en það er ljóst að framleiðendur telja kaupendur í
auknum mæli horfa á aðra hluti líka, og þá meinum við hestöfl, tog, auka-
búnað og verð; til hvers að aka um á rándýrum bíl ef enginn annar veit
hvað bíllinn kostar?
Hér skal skautað yfir nokkra í viðbót af þeim glæsivögnum sem fyrir
augu bar á sýningunni.
Veyron er dauður – lengi lifi Vision
Best að byrja bara á því allra geggjaðasta. Franski ofurbílaframleiðand-
inn Bugatti svipti nýverið hulunni af Bugatti Veyron Finale og setti þar
með punkt við framleiðslu þessa magnaða bíls sem toppað hefur lista
hraðskreiðra ofurbíla síðan hann kom á markaðinn árið 2005. Bíla-
áhugamenn og vongóðir milljarðamæringar geta jafnað sig á fráhvörf-
unum því Bugatti kynnti loks áþreifanlegan hugmyndabíl sem felur í sér
einhverja vísbendingu um arftaka Veyron. Hugmyndabíllinn nefnist Bu-
gatti Vision Gran Turismo og er í meira lagi óárennilegt skrímsli, alsett
vindskeiðum og loftinntökum. Ekki fór mikið fyrir tölfræði varðandi bílinn
en þegar hefur kvisast út að arftakinn, kominn á götuna að líkindum árið
2017, muni heita Bugatti Chiron og verða með sömu W-16 vélinni og Vey-
ron, og einnig fjórhjóladrifinn eins og forverinn. En hestaflafjöldinn fer úr
„aðeins“ 1.000 og upp í 1.500. 2017 verður eitthvað.
Rafmagnað útspil frá Benz
Eins og venjulega var Mercedes-Benz með talsvert fyrirferðarmikla
nærveru á sýningunni og lagði að vanda undir sig Festhalle-bygginguna,
nánast eins og hún lagði sig. Þar gat að líta, á þremur hæðum, heilan hell-
ing af draumabílum af ýmsum gerðum og rak hver girndargripurinn ann-
an. Hvort sem það er G-lander jeppinn, S-Class Coupé eða hinn tæplega 6
metra langi S 600 Maybach Pullmann sem fær fólk til að kikna, þá sáu
kynningarstjórar Daimler A.G. til þess að eitthvað var á pöllunum fyrir alla.
Það var þó hugmyndabíllinn Mercedes-Benz Concept IAA sem vakti hvað
mesta athygli enda afar framúrstefnulegur bíll að sjá en með merkilega
„raunverulega innréttingu“ sem fær mann til að hugsa um hversu langt
Seinni samantektin frá alþjóðlegu bílasýningunni í Frankfurt
Porsche 918 Spyder var til sýnis fyrir
góðmennsku Porsche enda ekki bara
ótrúlega fallegur heldur líka ófáanlegur
því hann er farinn úr framleiðslu.
Enn af unaði
og munaði í
Frankfurt
Hugmyndabíll-
inn Jaguar C-X75
fer því miður ekki í
almenna framleiðslu,
um það hefur þegar verið
tekin ákvörðun. En hann mun
engu að síður sjást í Bond-
myndinni SPECTRE sem frum-
sýnd verður innan skamms.
Bentley Muls-
anne Speed var
hugsaður fyrir
auðjöfra með val-
kvíða milli hraða og
munaðar – hann skart-
ar hvoru tveggja. 530
hestöfl, 6,75 lítra V8 vél
með tvöfaldri túrbínu
gerir fólki kleift að upp-
lifa hvort tveggja í senn.
Rolls-Royce Dawn var með tölu-
vert af fermetrum í Frankfurt til
að njóta sviðsljóssins sem best.
Framleiðandinn kallar hann
enda kynþokkafyllsta bíl sinn
frá upphafi.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 2015
6 BÍLAR