Morgunblaðið - 15.10.2015, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 2015
✝ Katrín Árna-dóttir fæddist
í Stykkishólmi 10.
ágúst 1930. Hún
lést á Sjúkrahúsi
Akraness 7. októ-
ber 2015.
Hún var dóttir
hjónanna Guð-
bjargar Guð-
mundsdóttur og
Árna Jónssonar.
Katrín var ein
fjögurra systkina; Steinunn, f.
1927, Jón, f. 1928, d. 2000, og
Kristín Sólborg, f. 1932.
Katrín ólst upp í Stykk-
ishólmi og stundaði nám þar í
barnaskólanum. Þegar Katrín
var sextán ára flutti fjöl-
1954 giftist Katrín Sigurði
R. Guðmundsyni, f. 1930, frá
Hvanneyri, kennara og síðar
skólastjóra við Leirárskóla/
Heiðarskóla. Þau bjuggu á
Ólafsfirði, Núpi í Dýrafirði og
Leirárskóla/Heiðarskóla. Árið
1995 skildu þau og bjó Katrín
eftir það á Akranesi.
Börn þeirra eru: Guðbjörg,
f. 1951, Guðmundur, f. 1955,
kvæntur Önnu Leu Björns-
dóttur, f. 1957, Haukur, f.
1956, kvæntur Jónínu Krist-
jánsdóttur, f. 1957, Reynir, f.
1957, Ragnhildur, f. 1963, gift
Jóni Birgi Guðmundssyni, f.
1967, og Erna, f. 1963.
Katrín eignaðist 15 barna-
börn og eru langömmubörnin
orðin 21.
Útför Katrínar fer fram frá
Akraneskirkju í dag, 15. októ-
ber 2015, kl. 14.
skyldan til Reykja-
víkur og stundaði
hún nám við Hér-
aðsskólann á Laug-
arvatni og Hús-
mæðraskólann í
Reykjavík og út-
skrifaðist þaðan
1951.
Katrín starfaði
fyrst við verslunar-
störf í Reykjavík,
síðan við ráðskonu-
störf á sumrin í Leirárskóla
síðar Heiðarskóla í Borg-
arfirði. Frá 1965 starfaði hún
sem handmenntakennari og
síðar bekkjakennari allt til árs-
ins 2000 en þá lét hún af störf-
um.
Þú gafst mér lífið, ljósið og
ástina.
Þú varst ein af mínum bestu
vinkonum og varst ávallt til
staðar fyrir mig.
Veittir mér von og gafst mér
tækifæri.
Ég var svo heppin að þú
hjálpaðir mér að ala upp börnin
mín.
Við litla fjölskyldan náðum
að skapa svo margar minningar
saman, upplifa lítil og stór æv-
intýri, skapa okkar hefðir og
njóta þess að vera saman.
Fyrir það erum við svo inni-
lega þakklát.
Elsku mamma mín, megi hið
góða vernda þig og styrkja á
þeirri ferð sem þú tekur þér nú
fyrir hendur.
Ég sakna þín sárt og geymi
þig í hjarta mínu.
„Love you – love you too“ og
ég gæti englanna minna.
Erna.
Takk fyrir allt, elsku amma
mín,
og hvíldu þig nú vel.
Þegar raunir þjaka mig
þróttur andans dvínar
þegar ég á aðeins þig
einn með sorgir mínar.
Gef mér kærleik, gef mér trú,
gef mér skilning hér og nú.
Ljúfi drottinn lýstu mér,
svo lífsins veg ég finni
láttu ætíð ljós frá þér
ljóma í sálu minni.
(Gísli á Uppsölum.)
Kveðjum þig með söknuði,
amma Kata langamma.
Árni, Kristín, Leó Þór
og Rúnar Geir.
Elsku amma Kata. Þér verð
ég ævinlega þakklát. Þakklát
fyrir allar minningarnar, heim-
sóknirnar, ferðalögin og símtöl-
in. Alla væntumþykjuna,
gleðina og hláturinn. Þú varst
toppurinn á píramídanum okk-
ar. Hvattir okkur áfram þegar
vel gekk og réttir okkur hjálp-
arhönd þegar á þurfti að halda.
Nærvera þín var einstök, nota-
leg og hlý. Þú kenndir okkur að
sýna hjálpsemi, koma hreint
fram og standa með sjálfum
okkur.
Þú varst draumkennd í hugs-
un, sögukona af guðs náð og
rómantísk með eindæmum. Þú
varst glóandi falleg, alla þína
tíð. Þú varst stolt af afkomend-
um þínum og barst hag hvers
og eins okkar fyrir brjósti. Við
munum gá hvert að öðru og
hlýja okkur við góðar minning-
ar. Minningunni um ömmu
Kötu langömmu verður haldið á
lofti um ókomna tíð. Orðin sem
þú lést falla til okkar eins og
falleg laufblöð að hausti til, þau
munum við geyma í hjörtum
okkar að eilífu.
Draumadís með dökka lokka,
dansandi um Hólminn fór.
Passaði börn og prjónaði sokka,
pældi í lífinu er yrði hún stór.
Katrín hét stúlkan oft kölluð Kata,
kennslukona síðar varð.
Von hennar og viska vel vildi rata,
vingjarnlega í barnanna garð.
Móðurhlutverkinu unni hún mest,
minningabankinn fylltist.
Átti hún þá ósk að þeim liði
sem best,
og að enginn úr sporunum villtist.
Hlýlegt fas og faðmlög þétt,
fallega gaf hún frá sér.
Þá barnabörnin svöruðu létt:
„Amma – það er gott að vera
hjá þér.“
Takk fyrir allt, amma mín, ég
elska þig af öllu hjarta.
Þín
Tinna Björg.
Margar af mínum æskuminn-
ingum tengjast ömmu Kötu. Ég
dvaldi einn vetur hjá ömmu og
afa „upp í skóla“ í Leirársveit-
inni á meðan móðir mín lauk
námi og eftir að ég og foreldrar
mínir fluttum á svæðið var mik-
ill samgangur. Þar var ævin-
týralegt að vera sem barn og
amma hélt utan um þá umgjörð.
Á þessum tíma var á heimilinu
tíkin Snót og þegar henni var
lógað var ég heldur ósátt.
Áttum við amma langt samtal
um það hvers vegna hún þurfti
að deyja og með lagni sinni náði
hún að sannfæra mig um að
þetta hefði verið besta niður-
staðan þar sem Snót var orðin
mjög lasin. Ég geymi þá minn-
ingu líka í huga mér þegar ég,
u.þ.b. 5 ára gömul, spurði ömmu
hálfönug í einni Reykjavíkur-
ferðinni þegar við gengum nið-
ur Laugaveginn: „Amma, af
hverju heldur þú svona fast í
höndina mína?“ og amma svar-
aði:
„Svo þú leiðist ekki frá mér
og týnist.“ Þarna skynjaði ég,
barnið, hugsanir ömmu minnar.
Ömmu þótti gott að hlusta á
tónlist. Hún hélt mikið upp á
Roger Whittaker sem ég lærði
að meta í stofunni hjá henni þar
sem hún setti plötuna hans oft á
fóninn á áttunda áratugnum og
söng með heimilisstörfunum á
meðan ég beið hugfangin eftir
blísturslaginu fræga. Góðar
máltíðir, hlýlegt og notalegt
umhverfi er það sem ég minnist
frá þessum tíma hjá ömmu og
afa. Amma var mikil hannyrða-
kona og saumaði og prjónaði föt
á börnin og barnabörnin.
Skemmtilegast var að fá að
vera í eins fötum og tvíburarnir,
frænkur mínar, sem voru alltaf
svo elegant.
Það var amma líka, enda fag-
urkeri fram í fingurgóma.
Ömmu þótt mjög vænt um
æskuslóðir sínar Stykkishólm
og Snæfellsnesið þar sem hún
ólst upp fram á unglingsár.
Mér þykir dýrmætt að hafa
farið með henni í ferðir um þær
slóðir og fengið að heyra sögur
úr Hólminum þar sem þær syst-
ur þóttu t.a.m. efnilegar hand-
bolta- og sundkonur. Fleiri sög-
ur hafa bæst við í kringum
ættarmót sem haldin hafa verið
síðustu árin. Alltaf hefur verið
ljúft að koma til ömmu Kötu á
Höfðagrundina. Þar höfum við
átt góðar stundir í hlýlegu um-
hverfi og úti á pallinum þar sem
yndislegt var að sóla sig og
gaman fyrir barnabörnin að
leika sér. Eftir að börnin mín
komu til sögunnar var það nið-
urstaðan að til þess að ná utan
um titil langömmunnar þyrfti
hann að vera „ammaKatalang-
amma“.
Hún hafði einstaklega gaman
af því þegar elsta barnið mitt
ávarpaði hana með þessum titli
í sífellu sem lítil stelpa og hefur
hann haldið síðan. Elsku amma
mín, þegar við hittumst síðast á
sjúkrahúsinu, eldri börnin með,
þá sýndir þú svo mikinn styrk
við að gefa af þér falleg orð til
barnanna.
Það lýsir svo huga þínum og
ég mun taka það með mér
áfram veginn. Við fjölskyldan
kveðjum þig með sorg í hjarta,
en erum endalaust þakklát fyrir
að hafa átt þig að svona lengi.
Fjóla María Lárusdóttir
og fjölskylda.
Elsku amma mín Kata.
Ég sest niður og skrifa þér
bréf eins og ég hef gert áður, í
þetta skipti fæ ég ekki svar. En
elsku amma, það er allt í lagi,
þú varst búin að kveðja mig svo
fallega og fyrir það verð ég æv-
inlega þakklát. Þakklætið færir
okkur gleði og frið og þó það sé
erfitt að sjá á eftir þér þá hlýja
minningarnar mér um hjarta-
rætur.
Amma mín Kata, þér er ég
þakklát fyrir svo margt. Ég er
þakklát fyrir stundirnar sem ég
átti með þér þegar ég var lítil
stelpa og tók upp á því að kalla
þig ömmu LaLa af því þú
söngst svo mikið.
Ég er þakklát fyrir heim-
sóknir til þín þegar ég var ung-
lingur og ég fékk að máta og
skoða skartgripi og föt sem mér
fannst miklir dýrgripir.
Ég er þakklát fyrir ísrúntana
okkar, hádegislúra í sófanum og
sameiginlegan áhuga okkar á
góðum kökum. Uppáhaldskök-
una þína mun ég baka hér í
sveitasælunni valda sunnudaga.
Ég er þakklát fyrir að þú
kenndir mér að hekla þegar ég
var komin á þrítugsaldurinn og
þeirri list mun ég viðhalda. Allt
það sem þú hefur svo unnið með
höndunum og fært okkur fjöl-
skyldunni geymi ég eins og gull.
Ég er þakklát fyrir öll fallegu
orðin sem þú valdir handa
krökkunum og okkur Bjarka á
hátíðar- og afmæliskort, þau
sýna umhyggju þína í okkar
garð.
Ég er þakklát fyrir að börnin
mín hafi bæði fengið að njóta
nærveru þinnar og væntum-
þykju og mun ég deila minn-
ingum mínum um þig með þeim.
Ég er þakklát fyrir þau skipti
sem þú heimsóttir heimili okkar
Bjarka og þykir vænt um hvað
þú gafst þér góðan tíma hjá
okkur.
Ég er þakklát fyrir allt það
sem þú hefur kennt mér með
frásögnum þínum, gjörðum þín-
um og ráðleggingum.
Umfram allt, elsku amma, er
ég þakklát fyrir að þú hafir ver-
ið hluti af lífi mínu.
Við fjölskyldan kveðjum
ömmu Kötu með kærleika og
þakklæti í hjarta.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(Vald. Briem)
Ástarkveðjur,
Katrín Rós, Bjarki
og börn.
Katrín Árnadóttir
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
TÓMAS GRÉTAR ÓLASON
verktaki,
Borgarholtsbraut 73,
Kópavogi,
lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
4. október. Útför hans fer fam frá Hvalsneskirkju
laugardaginn 17. október klukkan 14.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktar- og
minningarsjóð skáta, kt. 440169-2879, banki 313-26-44169
(sími 550-9800) eða Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð, sími
560-4100, sunnuhlid.is.
.
Margrét Tómasdóttir, Matthías G. Pétursson,
Anna Guðrún Tómasdóttir, Matthías Kjartansson,
Guðlaug Þóra Tómasdóttir, Daníel þór Ólason,
Magnea Tómasdóttir, Pétur Gauti Valgeirsson,
afa og langafabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og bróðir,
SNORRI JENS ÓLAFSSON
rafvirkjameistari,
Fosstúni 6, Selfossi,
lést á Landspítalanum 5. október
síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Selfosskirkju
laugardaginn 17. október klukkan 14.
.
Þuriður E. Haraldsdóttir,
Haraldur T. Snorrason, Elísabet Þ. Jóhannesdóttir,
Ingólfur Snorrason,
Margrét U. Snorradóttir, Ómar Bogason,
barnabörn, barnabarnabarn og systkini.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
fósturmóðir, amma og langamma,
ANNA STEINUNN EIRÍKSDÓTTIR
frá Hjarðarhaga, Skagafirði,
Lindasíðu 4,
Akureyri,
lést þriðjudaginn 6. október á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 17. október
kl. 14:00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á Sjúkrahúsið á Sauðárkróki.
.
Fróðný G. Pálmadóttir, Kristján Pétur Sigurðsson,
Sigurjón Björn Pálmason, Kolbrún Reinholdsdóttir,
María Guðbjörg Pálmadóttir,
Heiður Pálmadóttir, Roy Midtbø,
Sigríður G. Pálmadóttir, Kristján Ísak Kristjánsson,
Ester Gunnarsdóttir, Indriði Guðmundsson,
ömmu- og langömmubörn.
Elsku mamma mín, unnusta, tengda-
mamma, dóttir, systir, mágkona og frænka,
ELÍN HANNA JÓNSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
lést þann 8. október 2015. Útför hennar
fer fram frá Seljakirkju föstudaginn
16. október klukkan 15.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á vinnustað hennar,
geðdeild Landspítalans 33A. Reikningsnúmer 0162-05-263926,
kt. 260875-4509.
Jarðsett verður síðar í Svínavatnskirkjugarði.
.
Berglind Hönnudóttir, Baldur Þór Bjarnason,
Sigurður Steinar Jónsson, Jón Atli Sigurðsson,
Jón Sigurgeirsson, Ingibjörg Sigurvinsdóttir,
Hildur Lilja Jónsdóttir, Kristján Pétursson,
Jón Sigurgeir Jónsson, Tinna Halldórsdóttir,
Svala Sigríður Jónsdóttir, Svavar Birkisson,
Róbert, Petrína Inga, Halldór Snær,
Krista Guðrún, Sverrir Bjarki,
Tóbías Þorri og Rakel Emma.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, dóttir og amma,
LILJA AÐALSTEINSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur frá Neskaupstað,
lést á heimili sínu í Mosfellsbæ
mánudaginn 12. október síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
19. október klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Ljósið og Krabbameinsfélagið.
.
Einar Þórarinsson,
Þórarinn Einarsson,
Katrín Einarsdóttir, Jón Egill Sveinsson,
Karólína Einarsdóttir, Ásgeir Ástvaldsson,
Þorvaldur Einarsson, Erla Sif Ástþórsdóttir,
Auður Bjarnadóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HALLDÓRA BJÖRG PÁLSDÓTTIR,
fyrrverandi ráðskona að Bessastöðum,
Skólatúni 3, Garðabæ,
lést á Landakoti þann 9. október.
Útförin fer fram frá Bessastaðakirkju
föstudaginn 23. október klukkan 13.
.
Sigríður M. Snorradóttir, Ragnar S. Vilhjálmsson,
Andrés J. Snorrason, Ragnhildur Skúladóttir,
ömmu- og langömmubörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýndan hlýhug og
samúð við andlát og útför
GUTTORMS V. ÞORMAR,
Geitagerði í Fljótsdal.
.
Ragnheiður Þormar, Gunnlaugur Sigurðsson,
Vigfús Þormar,
Jóhanna Þormar, Hermann Ottósson,
Skeggi Þormar,
Stefán Þormar, Kristjana V. Jónatansdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.