Morgunblaðið - 15.10.2015, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 15.10.2015, Blaðsíða 11
„Markmið at- ferlisgrein- ingar í hönn- unarferlinu er að sýna hvernig notandinn hegðar sér þegar hann er kominn inn í sýndarveru- leikann.“ Morgunblaðið/Eva Björk sé að tala um óþrjótandi möguleika, þá er sýndarveruleiki tækni sem sannarlega gæti staðið undir þeim væntingum,“ segja þeir með sann- færingarkrafti og blik í augum. „Í samanburði við skjátækni hefur sýndarveruleiki mun öflugri áhrif á upplifun notenda og getur aukinheldur skapað kenndir sem fólk finnur aðeins í raunveruleik- anum, jafnvel ekki einu sinni þar því upplifunin getur verið eins og að fljóta um í þyngdarleysi – hug- myndin er að fólk geti á endanum upplifað hvað sem er, hvenær sem er. Þótt mörgum tæknilegum spurn- ingum sé enn ósvarað, er ljóst að sú framtíð er innan seilingar. Skemmt- anaiðnaðurinn hefur tekið við sér og í Hollywood er byrjað að gera til- raunir með því að segja sögur þar sem áhorfandinn er hluti af atburða- rásinni; hann er inni í bíómyndinni og á sér ekki undankomu auðið – nema hann taki af sér gleraugun. Sá möguleiki er líka fyrir hendi að hann geti verið ein persónan í myndinni.“ Spurning um útfærslu En burtséð frá skemmtanagild- inu segja þeir að kennsla geti orðið með allt öðru sniði en nú er, bæði í skólum og hvað varðar að læra ým- islegt hagnýtt, svo sem eins og að gera við bílinn sinn, skyndihjálp og hvaðeina, líka að framkvæma flókn- ar skurðaðgerðir. „Þú setur á þig gleraugun, sérð bílinn fyrir framan þig og þér er leiðbeint áfram, hérna er ventillinn, hérna áttu að skrúfa dekkið af og svo framvegis. Þú ferð eftir leiðbein- ingum í sýndarveruleikanum og get- ur að því búnu gert við bílinn án þess að fara á námskeið úti í bæ. Þetta er eitt dæmi um möguleika, bara spurning um út- færslu. Enginn miðill er betur til þess fall- inn að miðla reynslu en sýndarveruleikinn. Á þessum tímapunkti er stóra spurningin hversu langan tíma tekur að fullkomna tæknina.“ Sem kennsluefni í skól- um nefna þeir að hægt verði að fara með nemendur aftur í tím- ann á tiltekna staði í fornöld eða á miðöldum, kafa með þeim í undir- djúpin og ferðast til framandi landa í nútímanum. Einnig verði hægt að hverfa á vit minninganna og endur- upplifa atburði, til dæmis afmæli barnsins síns að því tilskildu að 360 gráðu myndavél hafi verið notuð til að mynda viðburðinn. Möguleik- arnir varðandi hvað er hægt að upp- lifa einskorðast aðeins af því hvers konar hugbúnað og tækni fyrirtæki á borð við Aldin Dynamics út um all- an heim munu þróa og framleiða í framtíðinni. Í viðræðum við fjárfesta Gunnar og Hrafn vinna að því að efla teymi sitt, en auk þeirra er tölvunarfræðingur í föstu starfi hjá fyrirtækinu, nokkrir í hlutastarfi og allmargir í lausamennsku, m.a. lista- menn, hönnuðir og tæknifólk. Þeir hanna hugbúnaðinn frá grunni, út- færa hvert smáatriði í þaula sem og útlit persónanna í leikjunum. Hluti af áformum þeirra er að fá sterka bakhjarla og ráðgjafa um borð sem geta stutt við vöxt félagsins og eru þeir í viðræðum við nýja fjárfesta bæði innan lands og utan. „Við þróun sýndarveruleika þarf að taka tillit til margra þátta og þá sérstaklega fjölbreyttrar hegð- unar notandans. Og þá komum við aftur að mikilvægi atferlisgreining- arinnar sem við erum að þróa og mun nýtast öllum þeim sem hyggj- ast framleiða forrit fyrir sýndar- veruleika. Sú tækni er mjög öflug og nýtist við gæðastjórnun og á þann hátt að sýndarveruleikinn getur brugðist raunverulegar en ella við nærveru notenda.“ Þeir segja mikil tækifæri á næstu mánuðum til að ná forskoti á þessu sviði, enda séu tækniframfar- irnar svo stórstígar að undrum sæti. „Það var enda engin tilviljun að Facebook, sem státar af meira en milljarði notenda, hafði hraðar hendur og keypti Oculus. Sýndar- veruleikinn er miðill sem opnar nýj- ar víddir í hönnun skemmti- og kennsluefnis. Samfélags- og sam- skiptamiðlarnir eru þar ekki und- anskildir,“ segja frumkvöðlarnir Gunnar Steinn og Hrafn Þorri, sem telja fátt geta komið í veg fyrir að sýndarveruleikinn haldi innreið sína í raunveruleikann. Frumkvöðlar Gunnar Steinn Valgarðsson og Hrafn Þorri Þórisson, stofnendur Aldin Dynamics, eru sannfærðir um að þótt enn sé langt í land verði sýndarveruleikinn ein mesta tæknibylting allra tíma. Hendur Oculus gerir fólki kleift að sjá sýndarveröld og nota hendurnar innan hennar með stýripinnum. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 2015 ÁBYRGÐAR- OG ÞJÓNUSTUAÐILAR: Optical Studio Smáralind og Optical Studio Keflavík OPTICAL STUDIO FRÍHÖFN LEIFSSTÖÐ Allt að 50% ódýrari en sambærileg vara á meginlandi Evrópu* KAUPAUKI Með öllum margskiptum glerjum* fylgir annað par FRÍTT með í sama styrkleika. Tilvalið sem sólgleraugu eða aukagleraugu. *Margskipt gler á við Varilux, Multifocal, Progressive og tvískipt gler. GLERAUGU Á HAGSTÆÐARA VERÐI * Lindberg-umgjörð m/ Hoya Progressive glerjum, 1.6 Index.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.