Morgunblaðið - 15.10.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 2015
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Verðbólguálag á óverðtryggðum ríkis-
bréfum til fimm ára hefur lækkað mik-
ið að undanförnu. Það var þannig 4,7%
um miðjan júní en
er nú komið undir
3%.
Verðbólguálagið
endurspeglar
verðbólguvænting-
ar markaðarins.
Fari það lækkandi
eru taldar auknar
líkur á verðstöðug-
leika.
Páll Harðarson,
forstjóri Kauphall-
arinnar, segir álagið hafa farið lækk-
andi á síðari hluta síðasta árs og verið
komið niður í 2,5% á 5 ára bréfum um
miðjan desember 2014. Álagið hafi síð-
an farið hækkandi frá áramótum og
náð hámarki í júní, áður en það lækk-
aði á ný. Telur Páll ekki ósennilegt að
óvissa í kjaramálum sl. vor hafi haft
áhrif á væntingar markaðarins.
Uppsveifla á markaði
Eins og fram kom í Morgunblaðinu
á þriðjudaginn var hefur Úrvalsvísi-
tala Kauphallarinnar hækkað um 21%
síðan ríkisstjórnin kynnti áætlun um
afnám hafta 8. júní. Er íslenski hluta-
bréfamarkaðurinn nú í lengsta sam-
fellda hækkunarferlinu síðan Úrvals-
vísitalan var endurreist árið 2009.
Páll segir að líta megi á lækkað
verðbólguálag sem vísbendingu um
að bjartsýni á markaði hafi aukist eft-
ir að afnámsáætlunin var kynnt. Þá
hafi það áhrif að innflutt verðbólga sé
nú lítil, að hrun hafi orðið í olíuverði
síðsumars og að sáralítil verðbólga sé
í mörgum viðskiptalöndum.
Þá leiðir hann líkur að því að mark-
aðurinn telji nú að gengi krónu geti
haldist nokkuð sterkt og innflutning-
ur aukist, án þess að það komi fram í
neikvæðum jöfnuði á utanríkisvið-
skiptum. Vísar hann þar til þess að í
gegnum tíðina hefur gengi krónu
jafnan gefið eftir í kjölfar uppsveiflna.
Nú sé ferðaþjónustan hins vegar að
skapa svo mikinn gjaldeyri að aukinn
innflutningur þurfi ekki að leiða til
neikvæðs viðskiptajöfnuðar.
Páll bendir líka á að eign erlendra
aðila í óverðtryggðum íslenskum
ríkisbréfum hafi aukist úr 149,6 millj-
örðum í lok maí í 183,9 milljarða í
september, eða um 34,3 milljarða.
Þetta innstreymi vitni um aukna
trú erlendra fjárfesta á íslensku efna-
hagslífi eftir að áætlunin var kynnt.
„Maður hefur fundið það í samtöl-
um við erlenda aðila að óljósar áætl-
anir um afnám hafta hafa latt marga
til fjárfestinga hér á landi. Það kemur
að mínu mati ekki á óvart að áhugi er-
lendra fjárfesta skuli hafa aukist eftir
að við fengum skýra áætlun um af-
námið,“ segir Páll.
Hann telur að áhrif þessa aukna
innstreymis erlends gjaldeyris á
gengið muni að miklu leyti ráðast af
mótvægisaðgerðum Seðlabankans.
Verðbólguálag
minnkar hratt
Verðbólguálag á óverðtryggð ríkisbréf
4,12%
3,86%
2,92%
Heimild: Kauphöll Íslands
2.1
. 20
14
2.5
. 20
14
2.9
. 20
14
2.1
. 20
15
2.5
. 20
15
2.9
. 20
15
2.3
. 20
14
2.7
. 20
14
2.1
1. 2
014
2.3
. 20
15
2.7
. 20
15
2.2
. 20
14
2.6
. 20
14
2.1
0.
20
14
2.2
. 20
15
2.6
. 20
15
2.1
0.
20
15
2.4
. 20
14
2.8
. 20
14
2.1
2. 2
014
2.4
. 20
15
2.8
. 20
15
5 %
4 %
3 %
2 %
1 %
0 %
5 ára
10 ára
3,04%
2,44%
Páll
Harðarson
Þykir til vitnis um aukna bjartsýni
Um 400 börn bíða eftir ADHD-
greiningu hjá þroska- og hegð-
unarstöðinni (ÞHS) og yfir 600 full-
orðnir bíða eftir greiningu hjá Land-
spítalanum. „Ástandið hefur aldrei
verið jafnslæmt,“ segir Þröstur
Emilsson, framkvæmdarstjóri
ADHD-samtakanna. „Það er ekkert í
kortunum til þess að snúa þessari
þróun við því 2011 fannst fólki mikið
að 200 börn biðu eftir greiningu.“
Þröstur segir að það sé einfalt að
minnka biðlista en til þess þurfi pen-
inga. Hann hefur ritað þingmönnum
bréf þar sem kemur fram að níu sál-
fræðingar og tveir sérfræðilæknar
annist um 300 mál hjá ÞHS á ári.
Nokkrar stöðurnar eru tímabundnar
og mun ÞHS missa tvo sálfræðinga
um áramót og þann þriðja í árslok
2016.
„Það þarf áætlun til að éta niður
biðlistana og ég hef teiknað þetta upp
fyrir þá þingmenn sem ég hef talað
við. Miðað við 400 börn á biðlista gæt-
um við sett 50 milljónir aukalega á
ári. Þá væri hægt að ráða fimm til sex
manns í sérstakt átaksteymi og það
gæti tekið allt að 200 börn umfram
það sem nú er gert. Það þýddi að við
gætum eytt biðlistum hjá ÞHS á
tveimur til þremur árum. Þetta eru
miklir peningar en ekki í stóra sam-
henginu.“
Þröstur segir að fullorðnir bíði oft í
18-24 mánuði til að fá greiningu.
„Kerfið á ekki að segja: Við viljum
hjálpa en það tekur allt að tveimur
árum.“ Hann vonast til að málið verði
tekið fyrir á Alþingi þar sem stefnan
verði sett á að útrýma biðlistum. „Það
er ávinningur fyrir samfélagið allt.“
Vilja fé til að eyða biðlistum
Þúsund einstaklingar bíða eftir ADHD-greiningu
Kringlunni 4c – Sími 568 4900
Vetrarkápur
Fylgist með okkur á faceboock
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 - fös: 12-16.
MC Planet - 3322 frönsk hönnun
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Full búð
af glæsilegum
nærfatnaði og
náttfatnaði
Skógarmítill fannst í síðustu viku á
Eyrinni á Ísafirði. Mítillinn var full-
þroskuð kerling og hún var föst á
hálsinum á ketti, að því er greint er
frá á vef Náttúrustofu Vestfjarða.
Skógarmítill er blóðsuga sem sest á
spendýr; kindur, ketti, hunda og
menn og er varasamur því hann
getur borið alvarlega sýkla í fórn-
arlömb sín, segir á nave.is
Þetta er ekki fyrsta skipti sem
skógarmítill finnst á Vestfjörðum
en hann er fágætur ennþá. Mælt er
með því að eigendur katta og
hunda leiti á dýrum sínum eftir
mítlum og ef mítill finnst sé komið
með þá til Náttúrustofunnar.
Skógarmítill Hann getur borið al-
varlega sýkla í fórnarlömb sín.
Skógarmítill
fannst á ketti
á Ísafirði