Morgunblaðið - 24.11.2015, Síða 1
ÍÞRÓTTIR
Best Thea Imani Sturludóttir úr Fylki er leikmaður 13. umferðar í handboltanum. Íslandsmeistari í spjótkasti
og kringlukasti. Hættir vonandi í frjálsum, segir Guðríður. Næsta skref að fara utan og spila. 4
Íþróttir
mbl.is
skekið hafa sambandið. Í kjörinu í
sumar kusu Geir og flestir evrópskir
formenn Ali prins, en Geir segist
ekkert hafa ákveðið um hver verði
fyrir valinu í febrúar:
Mjög slæm staða
fyrir fótboltann
„Þetta er allt annar leikur núna.
Það eru mun fleiri frambjóðendur
núna og það var mjög áhugavert að
heyra þeirra málflutning, hjá þeim
öllum. Það er mikið eftir af þessu
kapphlaupi. Við formennirnir á
Norðurlöndunum höfum ekki tekið
neina ákvörðun, aðra en þá að reyna
að vera samstiga í kjörinu,“ sagði
Geir við Morgunblaðið í gær.
Blatter og Michel Platini, forseti
UEFA, eru nú báðir í 90 daga banni
vegna rannsóknar á 270 milljóna
króna greiðslu FIFA til Platinis, fyr-
ir ráðgjafarstörf sem hann á að hafa
unnið níu árum fyrir útborgun. Plat-
ini hafði þótt líklegur til að taka við
af Blatter sem forseti FIFA.
„Þetta er mjög slæm stað fyrir
fótboltann, að bæði forseti FIFA og
UEFA séu í bráðabirgðabanni. En
eins og við höfum sagt þá bíðum við
eftir því að hann [Platini] fái réttláta
málsmeðferð og úrskurð, og knatt-
spyrnuheimurinn bíður eftir þeim
úrskurði. Við höfðum engar upplýs-
ingar um þetta samkomulag, og
þetta kom öllum mjög á óvart,“ sagði
Geir. Hann útilokar ekki að Platini
komi til greina sem næsti forseti
FIFA:
„Lögmenn Platinis hittu okkur
formennina úr Evrópu á fundi í
október þar sem þeir voru fullvissir
um að hans nafn yrði hreinsað af öll-
um ásökunum. Ég veit ekkert meira
um það, og við verðum bara að bíða
eftir úrskurði. Hér gildir hið al-
menna, að menn eru saklausir uns
sekt er sönnuð,“ sagði Geir, en
reiknað er með úrskurði fyrir jól í
máli Platinis og Blatters. Sam-
kvæmt BBC gætu þeir átt yfir höfði
sér sjö ára bann frá öllum störfum
tengdum fótbolta.
„Allt annar leikur núna“
Geir hitti FIFA-frambjóðendur í gær
Bíður niðurstöðu í máli Platinis
Morgunblaðið/Golli
Hættir Geir Þorsteinsson og kollegar hans um allan heim velja arftaka hins
þaulsetna Sepp Blatters í embætti forseti FIFA á fundi í Zurich í febrúar.
FIFA
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Geir Þorsteinsson og aðrir formenn
knattspyrnusambandanna á Norð-
urlöndunum fengu að kynnast fjór-
um af fimm frambjóðendum til for-
seta FIFA, á fundi í Danmörku í
gær. Á fundinum voru Frakkinn Je-
rome Champagne, Gianni Infantino,
framkvæmdastjóri UEFA, jórd-
anski prinsinn Ali bin Hussein og
hinn suðurafríski Tokyo Sexwale.
Fundað verður í desember með
fimmta og síðasta frambjóðandan-
um, sjeiknum Salman Bin Ibrahim
Al-Khalifa frá Barein.
Arftaki Sepps Blatters verður val-
inn á fundi FIFA hinn 24. febrúar.
Blatter hlaut endurkjör síðasta sum-
ar en ákvað svo að láta af embætti í
febrúar vegna spillingarmála sem
Axel Stefánsson er þjálfari B-
landsliðs Noregs í handknatt-
leik kvenna sem mætir A-
landsliði Íslands í tveimur vin-
áttulandsleikjum um næstu
helgi. Axel var á árum áður
markvörður Þórs á Akureyri
og síðar Vals. Hann hefur getið
sér gott orð sem þjálfari í Nor-
egi. Undir hans stjórn hafa
yngri kvennalið Noregs m.a.
orðið Evrópumeistarar. Axel
hefur einnig þjálfað hjá félagsliðum. Selfyssing-
urinn Þórir Hergeirsson hefur þjálfað A-landslið
kvenna í Noregi í sex ár. iben@mbl.is
Íslendingur stýrir
B-landsliði Noregs
Axel
Stefánsson
Alfreð Finnbogason og félagar í
gríska liðinu Olympiacos geta tryggt
sér sæti í 16-liða úrslitum Meist-
aradeildar Evrópu í knattspyrnu í
kvöld takist þeim að krækja í stig
gegn Bayern München í Þýskalandi.
Svo gæti reyndar farið að bæði lið
tryggðu sér sæti í 16-liða úrslit-
unum, en sú yrði raunin ef hin liðin í
riðlinum, Dinamo Zagreb og Arsen-
al, gerðu jafntefli í Lundúnum. Bay-
ern og Olympiacos eru bæði með níu
stig, en Dinamo og Arsenal aðeins
þrjú, þegar tvær umferðir eru eftir.
Arsenal sækir Alfreð og félaga heim
í lokaumferð riðlakeppninnar og
leikmenn liðsins hafa ekki gefið upp
alla von:
„Þetta er búið að vera erfitt hjá
okkur, bæði hvað varðar úrslit og
frammistöðu, en við eigum enn von
og við tökum hana alvarlega. Höfum
í huga að við unnum eitt besta lið
Evrópu á heimavelli og nýtum sjálfs-
traustið þaðan til að standa okkur,“
sagði Per Mertesacker, miðvörður
Arsenal.
Barcelona dugar jafntefli gegn
Roma á heimavelli til að tryggja sér
sætið í 16-liða úrslitum, og jafnframt
sigur í E-riðli.
Chelsea sækir Maccabi Tel Aviv
heim til Ísraels í G-riðli, en Chelsea
er í 2. sæti riðilsins með sjö stig,
tveimur stigum á undan Dynamo
Kiev sem sækir Porto heim. Porto er
á toppi riðilsins með 10 stig.
Í H-riðli er Zenit St. Pétursborg
frá Rússlandi þegar öruggt um að
komast áfram, en Valencia, Gent og
Lyon berjast um að fylgja liðinu.
sindris@mbl.is
Alfreð eða Bayern
Alfreð og félagar gætu skilið Arsenal eftir og komið
sér í 16-liða úrslit í kvöld Nokkrir farseðlar í boði í kvöld
AFP
Mark Alfreð Finnbogason skoraði
sigurmarkið gegn Arsenal á útivelli.
Fyrirliðinn Ashley Williams
og sóknarmaðurinn André
Ayew, liðsfélagar Gylfa Þórs
Sigurðssonar hjá Swansea,
hafa lýst yfir stuðningi leik-
manna við knattspyrnustjór-
ann Garry Monk sem þykir af-
ar valtur í starfi vegna slæms
gengis liðsins í vetur.
„Allir í búningsklefanum
eru á sama máli og við viljum
standa okkur bæði fyrir hann
og okkur sjálfa,“ sagði Williams. „Hann er stór-
kostlegur stjóri. Við sáum allir hvað hann gerði
á síðustu leiktíð,“ sagði Ayew. sindris@mbl.is
Sýna stuðning við
stjóra Gylfa Þórs
Gylfi Þór
Sigurðsson
Knattspyrnumaðurinn Guð-
mundur Andri Tryggvason,
sem leikur með KR, mun æfa
með hollenska liðinu Feyen-
oord næstu daga. Guðmundur
Andri hélt til Hollands í fyrri-
nótt ásamt Henrik Bödker, að-
stoðarþjálfara KR-liðsins.
Guðmundur Andri æfði með
unglingaliði félagsins í gær og
mun æfa með liðinu út vikuna.
Guðmundur Andri, sem er
nýorðinn 16 ára, lék einn leik í Pepsi-deildinni á
síðasta tímabili og tvo í Borgunarbikarnum þar
sem hann skoraði eitt mark. sport@mbl.is
Guðmundur Andri
æfir hjá Feyenoord
Guðmundur Andri
Tryggvason
Ingólfur Óskarsson var í íslenska
landsliðinu í handknattleik sem sigraði
Spánverja, 22:13, í vináttulandsleik í
íþróttahúsinu á Keflavíkurflugvelli 24.
nóvember árið 1964.
Ingólfur fæddist 1941 og lék lengi
með Fram þar sem hann varð sjö sinn-
um Íslandsmeistari. Hann skoraði 20
mörk í leik gegn ÍR og það var lengi
markamet í efstu deild. Ingólfur var í
lykilhlutverki í landsliði Íslands, m.a. á
HM 1964 þar sem hann átti stórleik í
fræknum sigri á Svíum. Ingólfur spil-
aði einnig um skeið með Malmberget í
Svíþjóð en hann lék 29 landsleiki og
skoraði í þeim 65 mörk.
ÍÞRÓTTA-
MAÐUR-
DAGSINS
Aron Einar
Gunnarsson gat
ekki leikið með
Cardiff um
helgina vegna
meiðsla sem
hann varð fyrir í
leik Íslands og
Póllands á dög-
unum. Meiðslin
eru þó ekki al-
varleg og kvaðst
Russell Slade, stjóri Cardiff, í sam-
tali við BBC vonast til að Aron gæti
spilað gegn Burnley á laugardag.
sindris@mbl.is
Vonast eftir
Aroni fljótt
Aron Einar
Gunnarsson