Morgunblaðið - 24.11.2015, Page 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2015
SÁ BESTI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Guðmundur Hólmar Helgason, fyr-
irliði Vals, er leikmaður 14. umferðar
í Olís-deild karla í handknattleik en
hann fór fyrir Hlíðarendaliðinu sem
hafði betur gegn Gróttu, 26:24, á Sel-
tjarnarnesi á laugardaginn. Guð-
mundur Hólmar skoraði 9 mörk í
leiknum og var að venju öflugur í
varnarleik sinna manna.
„Guðmundur er bara frábær leik-
maður í alla staði. Það er alveg magn-
að hversu þroskaður leikmaður hann
er miðað við aldur,“ sagði Hlynur
Morthens, markvörður Valsmanna,
við Morgunblaðið þegar hann var
beðinn um að lýsa samherja sínum.
Er að springa út
„Gummi er mikill leiðtogi sem sést
best á því að hann er fyrirliði liðsins
og hann sinnir þessu hlutverki sínu
mjög vel. Það má segja að hann sé að
springa út sem leikmaður á þessu
tímabili. Eftir að hann samdi við
franska liðið hefur hann stigið heldur
betur á pedalann. Hann æfði rosalega
vel í sumar eins og hann gerir í raun
alltaf og Gummi er bara ótrúlega
heill og góður strákur. Hann er
svakalegur duglegur að mæta í lyft-
ingasalinn og hann lyftir meiri þyngd
en nokkur annar í liðinu. Hann gerir
allt meira en flestallir í liðinu og það
er skila þessum árangri sem hann
hefur náð,“ segir Hlynur.
Er nautsterkur
Guðmundur Hólmar er 23 ára
gamall Akureyringur sem ungur að
árum fór að spila með Akureyrarlið-
inu en hann gekk í raðir Valsmanna
fyrir tveimur árum og er spila sitt
þriðja tímabil með liðinu. Hann yfir-
gefur Val eftir tímabilið því í sumar
samdi hann við franska liðið Cesson
Rennes.
„Hann er búinn að vera í lykilhlut-
verki frá því hann fór að spila með
meistaraflokki, fyrst hjá Akureyri og
svo hjá Val. Guðmundur er ekki bara
góður sóknarmaður heldur er hann
frábær varnarmaður. Hann er naut-
sterkur og kann leikinn vel. Hann
vinnur vel í vörninni með Orra Frey
og það er virkilega gott fyrir mig að
vinna fyrir aftan þá,“ segir Hlynur
Morthens.
Guðmundur Hólmar hlaut eldsk-
írnina með íslenska landsliðinu á
Gullmótinu í Noregi á dögunum og
óhætt er að segja að hann hafi
stimplað sig vel inn með því. Hlynur
segir að það hafi ekki komið sér á
óvart að Guðmundur hafi fengið tæki-
færi með landsliðinu.
Á eftir að spila marga landsleiki
„Það var virkilega gaman að sjá
hvað hann stóð sig vel í þessum leikj-
um. Hann sýndi það að hann er klár í
hvað sem er. Hann átti svo sannar-
lega skilið að fá tækifærið og hann
nýtti það heldur betur vel. Ég held að
það sé alveg klárt mál að hann á eftir
að spila marga landsleiki í framtíð-
inni. Ég vona það alla vega. Hann
hefur alla vega burðina til þess. Það
verður gaman að fylgjast með honum
í atvinnumennskunni. Hann hefur
styrk og burði til vera í henni. Hann
mætti vera aðeins hávaxnari eins og
margir aðrir íslenskir handboltamenn
en hann hefur klárlega líkamlegan
styrk til að berjast við þessa gaura.
Hann hefur góðan leikskilning og
hann getur farið eins langt og hann
vill. Hann er með hausinn í lagi sem
spilar stóra rullu í þessum bransa,“
sagði Hlynur.
Getur náð
eins langt
og hann vill
Morgunblaðið/Eva Björk
Fyrirliði Guðmundur Hólmar Helgason er leiðtogi í Valsliðinu og hann gerist
atvinnumaður hjá Cesson Rennes í Frakklandi næsta sumar.
Guðmundur Hólmar mjög þroskaður
miðað við aldur, segir markvörður Vals
Handbolti: Bestur í 14. umferð
Neymar og Luis Suárez eru búnir að skora í sameiningu 23
af 29 mörkum Spánar- og Evrópumeistara Barcelona í
spænsku deildinni á tímabilinu. Neymar er markahæsti leik-
maður deildarinnar með 12 mörk og fast á hæla hans kemur
Suárez með 11.
Lionel Messi, sem lék sinn fyrsta leik í tvo mánuði í stór-
sigrinum á móti Real Madrid á laugardagskvöldið, hefur
skorað 3 mörk í deildinni á tímabilinu en á öllu árinu 2015
hafa Messi, Suárez og Neymar skorað samtals 79 mörk í
deildinni, tíu mörkum minna en allt lið Real Madrid til sam-
ans.
Neymar og Suárez hafa skorað saman 20 af síðasta 21
mark Barcelona í deildinni en Andrés Iniesta varð fyrsti leikmaður liðsins í háa
herrars tíð fyrir utan Neymar og Suárez sem kemst á markalistann en hann
skoraði þriðja markið í 4:0 sigrinum á móti Real Madrid. Þetta var fyrsta deild-
armark Iniesta frá því í marsmánuði í fyrra. gummih@mbl.is
Neymar og Suárez skæðir
Neymar
da Silva
Florentino Pérez, forseti Real Madrid, blés til blaðamanna-
fundar í gær þar sem hann tilkynnti miklum fjölda gesta að
knattspyrnustjórinn Rafael Benítez nyti fyllsta trausts.
Spænskir fjölmiðlar hafa verið fullir af fréttum síðustu
daga um hugsanlegan brottrekstur Benítez, eftir tapið
slæma gegn Barcelona í El Clásico á laugardag, og blaðið
Marca fullyrti til að mynda að leikmenn, með Cristiano
Ronaldo fremstan í flokki, væru mótfallnir veru Benítez hjá
félaginu. Pérez blés á slíkt tal í gær:
„Við berum fullkomið traust til Rafa. Hann er rétt að
hefja störf. Gefið honum vinnufrið. Hann mun ná sínum
markmiðum,“ sagði Pérez.
Carlo Ancelotti var látinn fara frá Real í sumar, en hann segist alveg opinn
fyrir því að snúa aftur til félagsins. Pérez var spurður út í orðróm þess efnis
að Ancelotti myndi snúa aftur næsta sumar en neitaði því. „Maður veit aldrei
hvað gerist eftir sex mánuði,“ bætti hann þó við. sindris@mbl.is
Benítez nýtur enn stuðnings
Rafa
Benítez
England
Crystal Palace – Sunderland................... 0:1
Staðan:
Leicester 13 8 4 1 28:20 28
Manch.Utd 13 8 3 2 19:9 27
Manch.City 13 8 2 3 27:13 26
Arsenal 13 8 2 3 23:11 26
Tottenham 13 6 6 1 24:11 24
West Ham 13 6 3 4 24:20 21
Everton 13 5 5 3 24:16 20
Southampton 13 5 5 3 19:14 20
Liverpool 13 5 5 3 17:15 20
Crystal Palace 13 6 1 6 14:13 19
Stoke 13 5 4 4 11:12 19
WBA 13 5 2 6 12:17 17
Watford 13 4 4 5 12:14 16
Swansea 13 3 5 5 14:18 14
Chelsea 13 4 2 7 17:23 14
Norwich 13 3 3 7 16:24 12
Newcastle 13 2 4 7 13:25 10
Sunderland 13 2 3 8 14:26 9
Bournemouth 13 2 3 8 14:27 9
Aston Villa 13 1 2 10 10:24 5
Þýskaland
B-deild:
Nürnberg – Braunschweig .................... 2:1
Rúrik Gíslason hjá Nürnberg er frá
keppni vegna meiðsla.
Holland
B-deild:
Jong PSV – Jong Ajax............................. 3:3
Hjörtur Hermannsson kom inn á sem
varamaður hjá PSV á 81. mínútu, Albert
Guðmundsson var ekki í leikmannahópni
liðsins.
Spánn
Getafe – Rayo Vallecano.......................... 1:1
Staðan:
Barcelona 12 10 0 2 29:12 30
Real Madrid 12 7 3 2 26:11 24
Atlético Madrid 11 7 2 2 15:6 23
Villarreal 12 6 3 3 16:12 21
Celta Vigo 12 6 3 3 22:20 21
Eibar 11 5 5 1 17:10 20
Valencia 11 5 3 3 17:9 18
Dep. La Coruna 12 4 6 2 18:13 18
Athletic Bilbao 12 5 2 5 18:16 17
Espanyol 12 5 1 6 14:23 16
Sevilla 12 4 3 5 17:18 15
Rayo Vallecano 12 4 2 6 14:20 14
Real Betis 11 4 2 5 11:17 14
Real Sociedad 12 3 3 6 14:14 12
Sporting Gijon 12 3 3 6 11:18 12
Getafe 12 3 2 7 12:19 11
Granada 12 2 4 6 13:20 10
Las Palmas 12 2 4 6 10:17 10
Levante 12 2 4 6 10:23 10
Málaga 12 2 3 7 5:11 9
Bandaríkin
Undanúrslit, fyrri leikir:
Columbus Crew – New York RB ........... 2:0
Kristinn Steindórsson var ekki í hópi
Columbus vegna meiðsla.
Portland Timbers – Dallas ...................... 3:1
KNATTSPYRNA
Olís-deild karla
ÍBV – Afturelding ............................. frestað
Danmörk
Ribe-Esbjerg – SönderjyskE ............. 22:27
Árni Steinn Steinþórsson skoraði eitt
mark fyrir SönderjyskE. Daníel Freyr
Andrésson ver mark liðsins.
HANDBOLTI
Danmörk
Svendborg – Næstved..........................62:77
Axel Kárason leikur með Svenborg
Rabbits. Tölfræði leiksins lá ekki fyrir í
gærkvöldi.
NBA-deildin
LA Clippers – Toronto......................... 80:91
Brooklyn – Boston............................ 111:101
New Orleans – Phoenix.................... 122:116
Oklahoma City – Dallas ................... 117:114
Denver – Golden State..................... 105:118
LA Lakers – Portland........................ 93:107
Staðan í Austurdeild:
Cleveland 10/3, Miami 8/4, Chicago 8/4, In-
diana 8/5, Toronto 9/6, Atlanta 9/6, Wash-
ington 6/4, New York 8/6, Detroit 7/6, Bost-
on 7/6, Charlotte 7/6, Orlando 6/7,
Milwaukee 5/8, Brooklyn 3/11, Philadelphia
0/14.
Staðan í Vesturdeild:
Golden State 15/0, San Antonio 10/3, Dallas
9/5, Oklahoma City 8/6, Phoenix 7/6, Utah
6/6, Memphis 7/7, LA Clippers 6/7, Denver
6/8, Portland 6/9, Minnesota 5/8, Houston
5/9, Sacramento 5/9, New Orleans 3/11, LA
Lakers 2/11.
KÖRFUBOLTI
Hverjar eru líkurnar á að Los Angel-
es Lakers taki upp á því að vinna Gol-
den State Warriors í NBA-deildinni í
körfuknattleik í nótt og komi í veg fyr-
ir að ríkjandi meistarar deildarinnar
setji nýtt og glæsilegt met í sigur-
leikjum?
Lengst af hefðu flestir búist við
öruggum sigri gamla stórveldisins La-
kers í viðureign þessara Kaliforníuliða
enda hefur það sextán sinnum orðið
NBA-meistari og á sér glæsta sögu. Í
þetta sinn er þó varla nokkur maður
tilbúinn til að veðja háum fjárhæðum
á sigur Lakers.
Golden State, sem er frá Oakland,
400 þúsund manna hafnarborg við
San Francisco-flóann, varð meistari í
fyrsta sinn í fjörutíu ár síðasta vor og
byrjun liðsins á nýju tímabili er stór-
glæsileg. Golden State vann í fyrri-
nótt sinn fimmtánda sigur í jafn-
mörgum leikjum, lagði þá Denver
Nuggets á útivelli, 118:105, og ekkert
meistaralið NBA frá upphafi hefur
byrjað titilvörn jafn vel. Boston Cel-
tics átti það met, frá 1957-1958, en það
féll með sigrinum á Denver.
Tvö hafa unnið fyrstu fimmtán
Þá jafnaði Golden State metið í
bestu byrjun í deildinni. Tvö lið hafa
áður unnið fyrstu fimmtán leiki sína.
Washington Capitols lék þann leik
fyrst allra tímabilið 1948-1949 og
Houston Rockets jafnaði það tímabilið
1993-1994. Sextándi sigurleikurinn
blasir við Golden State sem fær La-
kers í heimsókn í nótt. Hjá Lakers
hvorki gengur né rekur því liðið tap-
aði í fyrrinótt í ellefta skipti í fyrstu
þrettán leikjum sínum og situr á botn-
inum í Vesturdeild NBA.
„Þetta yrði flott afrek og myndi
sýna hversu magnað þetta lið okkar
er,“ sagði Klay Thompson eftir sig-
urinn í Denver en hann var stigahæst-
ur í liði Golden State með 21 stig.
Stephen Curry var hvíldur allan
fjórða leikhlutann og hann skoraði því
bara 19 stig, hans lægsta skor á tíma-
bilinu til þessa. Þeir Thompson og
Curry hafa verið fremstir í flokki í liði
Golden State en Curry hefur skorað
hvorki meira né minna en 32,7 stig að
meðaltali í leik til þessa. Thompson
kemur næstur með 16,6.
Þjálfarinn ekki á bekknum
Golden State er ekki einu sinni með
þjálfara sinn, Steve Kerr, á bekknum
um þessar mundir en hann gekkst
undir uppskurð á baki í haust. Kerr
varð á síðasta tímabili fyrstur í 33 ár
til að vinna NBA-titil á sínu fyrsta ári
sem þjálfari. Aðstoðarþjálfarinn Luke
Walton sér um að stjórna liðinu á
meðan. Kerr er þó til staðar á æfing-
um liðsins og ræðir við leikmenn í
hálfleik en reiknað er með að hann
geti hafið störf af fullum krafti á ný
eftir áramótin. vs@mbl.is
Aðeins ein lítil hindrun eftir
Golden State þarf bara að vinna Lakers til að ná bestu byrjun í sögu NBA
Fimmtán sigrar þegar í höfn og besta byrjun ríkjandi meistara í deildinni
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót karla:
Laugardalur: SR – Esja....................... 19.45
Egilshöll: Björninn – SA...................... 19.45
Í KVÖLD!