Morgunblaðið - 24.11.2015, Qupperneq 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2015
Guðjón ValurSigurðsson
er næstmarka-
hæsti leikmaður
Barcelona í
spænsku 1. deild-
inni í handknatt-
leik á leiktíðinni.
Guðjón Valur hef-
ur skorað 49 mörk
í fyrstu 11 leikjum Börsunga en
spænsku meistararnir eru með fullt
hús stiga. Makedóníumaðurinn Kiril
Lazarov er markahæstur en örv-
henta stórskyttan hefur skorað 54
mörk.
Michael Laudrup vill ekki takavið þjálfun danska karlalands-
liðsins í knattspyrnu en Morten Ol-
sen tilkynnti eftir tap Dana á móti
Svíum í umspili um sæti á HM á dög-
unum að hann væri hættur. Laudrup
var einn þeirra sem danska knatt-
spyrnusambandið setti niður á blað
sem hugsanlegur eftirmaður Olsens
en líklegt þykir að Norðmaðurinn
Åge Hareide, þjálfari Malmö, verði
næsti landsliðsþjálfari Dana.
Tyrkneska knattspyrnuliðið Gala-tasaray hefur ráðið Mustafa De-
nizli sem nýjan þjálfara liðsins í stað
Hamza Hamzaoglu sem rekinn var
frá störfum í síðustu viku. Denizli
snýr þar með til baka eftir 23 ára hlé
en hann stýrði Galatasaray með góð-
um árangri frá 1987-89 og aftur frá
1990-92. Síðan þá hefur hann þjálfað
Fenerbahce og Besiktas og landslið
Írans og Aserbaídsjan.
Franski miðju-maðurinn
Francis Coquelin
mun ekki geta
leikið með Arsen-
al næstu þrjá
mánuðina eftir að
hafa meiðst í hné í
tapinu gegn West
Bromwich Albion
um helgina. Arsenal er einnig án
miðjumannanna Mikels Arteta og
Jacks Wilsheres vegna meiðsla, auk
þess sem Alex Oxlade-Chamberlain,
Theo Walcott og Danny Welbeck
eiga við meiðsli að stríða. Arsenal
mætir Dinamo Zagreb í Meist-
aradeild Evrópu í kvöld.
Knattspyrnusamband Íslands ogKatar hafa komist að sam-
komulagi um að leika vináttulands-
leik á milli U23 ára landsliða karla.
Leikið verður í Belek í Tyrklandi 6.
janúar næstkomandi en Ísland mun
senda leikmenn sem skipa U21 lands-
liðið. Þar sem ekki er um alþjóðlegan
leikdag að ræða er ljóst að ekki eiga
allir þeir leikmenn, sem leika með er-
lendum félagsliðum, möguleika á að
taka þátt í þessu verkefni.
Fólk folk@mbl.is
baráttu í Svíþjóð, með frábæran þjálf-
ara og búið að vera að gera frábæra
hluti í vetur, til dæmis með því að
vinna Rhein-Neckar Löwen og Kold-
ing í Meistaradeildinni, og standa vel í
Barcelona á útivelli. Ég veit hvernig
allt gengur fyrir sig þarna, og leið æð-
islega eins og fjölskyldunni allri. Þetta
er frábær staður og algjör handbolta-
bær. Það eru 5.000 manns á hverjum
einasta leik, hver sem andstæðing-
urinn er, og það er æðislegt að vera
með í slíku,“ sagði Ólafur, sem er
samt sem áður ánægður með þá
ákvörðun sína að fara til Hannover
sumarið 2014.
Sé ekki eftir því að hafa komið
„Þetta snýst að einhverju leyti um
heppni í þessum bransa. Ég sé alls
ekki eftir því að hafa komið til Hann-
over, það var hárrétt skref á sínum
tíma, en svo meiðist ég, það koma
fleiri leikmenn í hópinn og á tímabili
vorum við sex landsliðsmenn að berj-
ast um tvær stöður. Ég var að koma
upp úr meiðslum og náði aldrei alveg
að spila mig inn í liðið,“ sagði Ólafur,
en ætla má að betur verði tekið á móti
honum hjá Kristianstad þar sem hann
var algjör lykilmaður:
„Maður hugsar til þess þegar allt
gekk sem best þarna. Þá var þetta svo
ógeðslega gaman og það er það sem
maður sækist eftir; að elska að spila
leikinn og njóta þess að spila hand-
bolta,“ sagði Ólafur. En sér hann fyrir
sér að snúa aftur í þýsku 1. deildina
síðar meir?
„Ég útiloka það alls ekki. Þýska
deildin er sú sterkasta í heimi en
vissulega kemst maður í Meistara-
deildina í staðinn, sem er auðvitað
öðruvísi en samt enn sterkari. En já,
ég er ennþá ungur og maður verður
bara að sjá til hvað gerist. Ég útiloka
alls ekki að snúa aftur hingað til
Þýskalands.“
Leið æðislega þarna eins
og allri fjölskyldunni
Morgunblaðið/Eva Björk
Landsliðið Ólafur Guðmundsson lék á EM í fyrra og á að baki 61 landsleik.
Ólafur hefði getað tekið meiri áhættu en kaus að snúa aftur til Kristianstad
Ólafur Guðmundsson
» Er 25 ára gamall og leikur oft-
ast sem vinstri skytta en einnig
sem leikstjórnandi.
» Er uppalinn hjá FH en samdi
árið 2010 við AG Köbenhavn í
Danmörku.
» Gekk í raðir Kristianstad árið
2012 og spilaði með liðinu í tvö
ár, en snýr nú aftur.
» Á að baki 61 A-landsleik.
HANDBOLTI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Ég hefði alveg getað tekið meiri
áhættu og fært mig til í Þýskalandi
eða farið til Frakklands eða skoðað
eitthvað enn annað, en þarna veit ég
hvað klúbburinn stendur fyrir,“ sagði
Ólafur Guðmundsson, landsliðsmaður
í handknattleik, við Morgunblaðið í
gær. Ólafur heldur í dag frá Þýska-
landi til Svíþjóðar en hann hefur
ákveðið að ganga í raðir Kristianstad
á nýjan leik. Ólafur verður lánsmaður
frá Hannover í Þýskalandi út leiktíð-
ina, en hefur samið við Kristianstad til
tveggja ára í viðbót eftir hana.
Ólafur lék við afar góðan orðstír
með Kristianstad árin 2012-2014 og
vill nú endurtaka leikinn, eftir erfiðan
tíma í Þýskalandi þar sem hann var
óheppinn með meiðsli og ósáttur við
skort á tækifærum til að sanna sig.
Hann var því byrjaður að líta í kring-
um sig þegar Kristianstad hafði sam-
band:
„Þetta byrjaði allt saman í vikunni.
Það eru meiðsli í herbúðum Kristian-
stad og á sama tíma er ég ekki búinn
að vera að spila nægilega mikið hjá
Hannover, og var byrjaður að líta í
kringum mig. Ég var ekki í plönunum
hérna og vildi finna eitthvað meira
spennandi, þar sem ég hefði stærra
hlutverk. Það gekk vel síðast þegar ég
var þarna, áhuginn var mikill og gagn-
kvæmur, svo þetta small,“ sagði Ólaf-
ur, sem er hæstnánægður með
ákvörðunina:
„Liðið er í Meistaradeildinni, í topp-
Hinn 22 ára gamli knattspyrnumaður Ingólfur Sigurðsson
hefur skrifað undir samning til tveggja ára við Fram. Hann
mun því leika með Frömurum í 1. deildinni á næstu leiktíð
eftir að hafa unnið deildina með Víkingi Ólafsvík á síðustu
leiktíð, en Ingólfur skoraði þá sex mörk í 21 deildarleik.
Fram er fimmta Reykjavíkurfélagið sem Ingólfur kemur
til með að spila fyrir. Hann lék sína fyrstu leiki í Pepsideild-
inni með KR árið 2009 en hefur einnig leikið í efstu deild með
uppeldisfélagi sínu, Val. Þá hefur Ingólfur leikið með KV í 2.
deildinni og Þrótti R. í 1. deildinni.
Í atvinnumennsku hefur Ingólfur verið á mála hjá Heeren-
veen í Hollandi og Lyngby í Danmörku.
Framarar stefna á að bæta enn frekar við sig mannskap í vetur en Ingólfur er
fjórði leikmaðurinn sem kemur til félagsins á síðustu vikum. Áður höfðu Atli
Fannar Jónsson, Hlynur Atli Magnússon og Brynjar Kristmundsson bæst í
hópinn. sindris@mbl.is
Í fimmta Reykjavíkurliðið
Ingólfur
Sigurðsson
Miklar breytingar eru fyrirhugaðar á Eimskipsmótaröð-
inni í golfi en starfshópur á vegum Golfsambandsins skilaði
af sér tillögum þess efnis á nýafstöðnu þingi sambandsins.
Hópurinn kynnti áætlanir til næstu þriggja ára sem meðal
annars fela í sér að mótaröðin telji átta mót, í stað sex. Sú
undantekning verður þó á þessu að næsta sumar mun móta-
röðin telja sex mót líkt og í ár.
Keppnistímabilið í mótaröðinni, þar sem Axel Bóasson og
Tinna Jóhannsdóttir úr Keili eiga nú stigameistaratitil að
verja, mun hefjast í lok ágúst ár hvert. Fyrstu tvö mótin
hverju sinni fara því fram að hausti. Tvö mót fara fram að
vori, og svo eru fjögur mót yfir hásumarið.
Fjöldi keppenda verður sá sami og áður á haust- og vormótunum, eða 144,
en færri keppendur á mótunum yfir hásumarið.
Fallið var frá hugmynd um að Íslandsmótið í golfi færi fram á höfuðborg-
arsvæðinu fjögur ár af hverjum fimm. sindris@mbl.is
Eimskipsmótaröðin stækkar
Tinna
Jóhannsdóttir
AFP
Magnaðir Klay Thompson og Stephen Curry eru lykilmenn í liði Golden State.
Dagskrá:
Í upphafi aðalfundar skal kjósa sérstakan fundarstjóra og ritara eftir
tilnefningu.
1. Skýrsla formanns.
2. Kynning á endurskoðuðum ársreikningi félagsins.
3. Umræður um skýrslu formanns og ársreikning sem síðan skal borinn
upp til samþykktar.
4. Umræður og atkvæðagreiðsla framkominna tillagna um lagabreytingar
ef einhverjar eru.
5. Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga.
6. Ákveðið árgjald og önnur gjöld fyrir næsta starfsár.
7. Kosning stjórnar og varamanna í stjórn.
8. Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara.
9. Önnur málefni ef einhver eru.
Dagskrá frekar kynnt á heimasíðu GR.
Virðingarfyllst,
STJÓRN GR.
Aðalfundarboð
Aðalfundur Golfklúbbs Reykjavíkur verður
haldinn Fimmtudaginn 03. desember 2015
kl. 20:00. Fundarstaður: Golfskálinn Grafarholti
Knattspyrnumaðurinn Emil Ás-
mundsson er á förum frá enska B-
deildarfélaginu Brighton & Hove Al-
bion, en þetta staðfesti hann í samtali
við vefsíðuna Fótbolta.net í gær. Emil
hefur verið að glíma við meiðsli í rúmt
ár, en hann var að brjóta sér leið inn í
aðallið Brighton þegar hann meiddist.
Emil er tvítugur miðjumaður sem
er uppalinn hjá Fylki, en hann gekk í
raðir Brighton í byrjun árs 2013.
„Ég er 90% heill og þarf kannski
nýtt umhverfi til að komast af stað.
Ég ætla að skoða mín mál út desem-
ber og tek vonandi ákvörðun sem
fyrst. Ef það er eitthvað spennandi
sem býðst þá skoða ég það. Það er
einhver áhugi erlendis og maður þarf
að vega og meta hvað er best að
gera,“ sagði Emil. sport@mbl.is
Emil á leið
burt frá
Brighton