Morgunblaðið - 24.11.2015, Side 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2015
Serbneski tennisleikarinn Novak
Djokovic batt endahnút á frábæran
árangur sinn á árinu með því að
leggja Svisslendinginn Roger Fede-
rer að velli í úrslitaleik á ATP World
Tour Finals á sunnudaginn og
tryggja sér þar með sigur á mótinu
fjórða árið í röð. Mótið fór fram á O2
Arena í London.
Djokovic sem er efstur á heims-
listanum í tennis vann 11 titla á
árinu, þar á meðal þrjú risamót og
Serbinn hefur þar með unnið 10 risa-
mót á ferli sínum.
„Ég naut hverrar mínútu á vell-
inum og þetta var draumi líkast. Ég
er kominn í góða stöðu eftir að hafa
leikið vel á árinu og síðastliðin fimm
ár í raun. Titlarnir í ár setja mig á
spjöld sögunnar,“ sagði Djokovic.
hjorvaro@mbl.is
AFP
Bikar Novak Djokovic með nýjasta
verðlaunagripinn í fanginu.
Ellefu titlar
á árinu
SÚ BESTA
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
„Hún er ótrúlega efnilegur leik-
maður og einn sá efnilegasti sem
hefur komið fram í mörg ár,“ segir
Guðríður Guðjónsdóttir, aðstoðar-
þjálfari Fylkis og fyrrverandi lands-
liðskona, við Morgunblaðið þegar
hún var beðin um að lýsa hinni 18
ára gömlu Theu Imani Sturludóttur,
leikmanni Fylkis.
Thea Imani er leikmaður 13. um-
ferðar Olís-deildar kvenna að mati
Morgunblaðsins en unga örventa
skyttan skoraði 11 mörk í sigri Fylk-
is gegn ÍR, 28:27, í leik liðanna í
Fylkishöllinni um nýliðna helgi.
Thea hefur þar með skorað 87 mörk
fyrir Árbæjarliðið í deildinni á tíma-
bilinu og er á meðal markahæstu
leikmanna deildarinnar. Thea er
ekki bara góð handboltakona heldur
hefur hún látið að sér kveða í frjáls-
um íþróttum. Hún varð Íslands-
meistari í spjót- og kringlukasti í
flokki 18-19 ára í sumar. Hún fékk
bronsverðlaun í kringlukasti á
Meistaramóti fullorðinna í júlí, kast-
aði þá 10 metrum styttra en ólymp-
íufarinn Ásdís Hjálmsdóttir, og varð
bikarmeistari í fyrra.
„Einn af kostunum við Theu er að
hún er jafnvíg í vörn og sókn. Hún er
mjög öflug á báðum sviðum. Þrátt
fyrir að vera aðeins 18 ára gömul er
hún búin að vera í lykilhlutverki hjá
Fylki síðustu þrjú árin. Hún er
hörkugóð skytta og fantagóður
varnarmaður. Thea er með góðar
gabbhreyfingar, er mjög frá á fæti
og er í góðu líkamlegu formi. Ekki
skemmir fyrir að hún hefur hæðina
og er örvent,“ segir Guðríður, sem á
árum áður var besta handboltakona
landsins um árabil.
Hættir vonandi í frjálsum
Thea Imani var valin í A-landsliðið
í fyrsta sinn nú í haust en hún var í
landsliðshópnum sem tók þátt í
leikjunum við Frakka og Þjóðverja í
undankeppni Evrópumótsins og um
næstu helgi spilar hún með landslið-
inu í tveimur leikjum á móti B-liði
Norðmanna ytra.
„Thea er mikill íþróttamaður.
Hún hefur unnið til verðlauna í
spjótkasti en ég held og vona að hún
látið staðar numið í frjálsum og ein-
beiti sér alfarið að handboltanum.
Hins vegar held ég að þetta hafi gert
henni gott að vera í frjálsum íþrótt-
um líka. En núna finnst mér kominn
sá tímapunktur að hún verði að ein-
beita sér að einni grein. Hún er kom-
in í landsliðið í handboltanum og þá
þarf hún að nota sumarið í að byggja
sig upp fyrir handboltann. Lífið hjá
Theu snýst bara um íþróttir og skól-
ann. Hún er algjör bindindismann-
eskja og leggur sig 100% fram í allt
sem hún gerir. Framtíð hennar er
svo sannarlega björt. Auðvitað vilja
öll stóru liðin hér heima fá hana en
hún gerði tveggja ára samning við
Fylki. Hins vegar held ég að næsta
skrefið hjá henni sé að fara út og
spila. Hún hefur svo sannarlega get-
una og burðina til þess en fyrst mun
hún klára stúdentinn,“ sagði Guð-
ríður en Thea Imani stundar nám
við Borgarholtsskólann og er þar á
afreksbraut í handbolta.
Næsta skrefið að fara út
Thea Imani Sturludóttir úr Fylki er leikmaður 13. umferðar í Olís-deildinni
Örvhenta skyttan varð Íslandsmeistari í spjótkasti og kringlukasti í sumar
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Barátta Hin efnilega Thea Imani Sturludóttir sækir að Helenu Örvarsdóttur og Esther Viktoríu Ragnarsdóttur í
leik með Fylki gegn Stjörnunni í vetur. Hún hefur skorað 87 mörk í fyrstu 13 leikjum Árbæjarliðsins.
Handbolti: Best í 13. umferð
Hvaða uppátæki er það hjá
stöku fréttamönnum að tala nið-
ur vináttulandsleiki í hinum
ýmsu íþróttagreinum með því að
kalla þá æfingaleiki?
Jú, jú – vissulega má verja
þessa orðnotkun með þeim rök-
um að þegar ekki sé um leiki í
undankeppni Evrópu- og heims-
meistaramóta að ræða séu við-
komandi leikir ekkert annað en
æfingaleikir. Það eru engin stig í
húfi.
En þegar spilaðir eru op-
inberir landsleikir, seldur að
þeim aðgangur, þeir sýndir beint
sjónvarpi og áhorfendur eru
kannski 58 þúsund eins og þegar
karlalandsliðið í knattspyrnu lék
í Varsjá á dögunum? Þá hljómar
orðið æfingaleikur hálfhjákát-
lega, ekki síst í lýsingu þess fjöl-
miðils sem hefur lagt út í kostn-
að við að koma honum á
framfæri við landsmenn.
Í mínum huga og minni mál-
vitund hefur æfingaleikur ávallt
verið í því formi að þar sé mest
lítið um áhorfendur, jafnvel spil-
að án þeirra, innáskiptingar
frjálsar, leiktíminn jafnvel líka, og
engin umgjörð. Hvað þá þjóð-
söngvar!
Á enskri tungu, sem stund-
um er höfð til fyrirmyndar (og
stundum ekki!) er notað hið
ágæta orð „friendly“ um vináttu-
landsleikina. Ég hef aldrei séð
eða heyrt BBC eða Sky fjalla um
„practice match“ í þessu sam-
bandi.
Á íslenskunni eigum við
þetta fína orð – vináttulands-
leikur – sem líka inniheldur
ágætis boðskap ef út í það er
farið. Það hefur líka verið í fullri
notkun til skamms tíma en þess-
ir „æfingaleikir“ hafa skotið upp
kollinum á allra síðustu árum.
Eigum við ekki að skjóta þá aftur
í kaf?
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
SÁ BESTI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Reginald Keil Dupree, betur þekktur
sem Reggie Dupree, lagði svo sann-
arlega sitt af mörkum þegar Keflvík-
ingar lögðu Íslandsmeistara KR-
inga, 89:81, í síðustu viku. Dupree
skoraði 21 stig, tók 7 fráköst og átti 2
stoðsendingar á þeim tæpum 33 mín-
útum sem hann spilaði. Bakvörður-
inn knái fór á kostum utan þriggja
stiga línunnar en hann hitti úr öllum
fimm þriggja stiga skotum sínum í
leiknum. Dupree er leikmaður 7. um-
ferðarinnar að mati Morgunblaðsins.
„Dupree hefur komið geysilega
sterkur inn í lið okkar á tímabilinu og
við erum virkilega ánægðir með
hann,“ sagði Einar Einarsson, að-
stoðarþjálfari Keflvíkinga, við Morg-
unblaðið þegar hann var inntur álits
á lærisveini sínum.
Orðinn Íslendingur
Dupree fékk íslenskan ríkisborga-
rétt á þessu ári en hann giftur ís-
lenskri konu, Dísu Rhiannon Edw-
ards, og eiga þau eitt barn saman.
Þau kynntust í skóla í Bandaríkjun-
um. Dupree hóf sinn feril hér á landi
með liði Reynis í Sandgerði en hann
gekk í raðir Keflvíkinga fyrir tímabil-
ið í fyrra. Ekki lét Dupree mikið að
sér kveða á síðasta tímabili þar sem
hann skoraði 4,6 stig að meðaltali.
„Hann var ekki í neinu hlutverki
með okkur í fyrra. Hann var Kani
númer tvö og leysti hinn af hólmi
þegar hann þurfti á hvíld að halda.
Það er auðvitað hálfömurlegt hlut-
verk en hann vildi vera áfram í Kefla-
vík, vinna sig upp og öðlast íslenskan
ríkisborgararétt. Það gekk upp. Ég
var búinn að benda mönnum á að
hafa augu með Reggie og sagði að
hann ætti eftir að gera góða hluti í
vetur. Hann æfði alveg eins og
skepna í sumar og á æfingunum hjá
okkur er hann manna duglegastur.
Hann leiðir „tempóið“ og í nokkrum
leikjum sem hann var ekki með okk-
ur á undirbúningstímabilinu var
„tempóið“ allt annað í leikjunum og á
æfingunum. Hann er bara prímus-
mótorinn hjá okkur,“ sagði Einar en
Keflvíkurliðið hefur farið á kostum í
byrjun tímabilsins og hefur unnið
alla sjö leiki sína í deildinni. Dupree
hefur skorað 13,7 stig að meðaltali í
leik á þessu tímabili og tekið 4,3 frá-
köst.
Sjálfstraustið er í botni
„Hittnin hjá honum á tímabilinu
hefur verið óvenjugóð. Hann er góð-
ur skotmaður og allt það en að setja
niður fimm þriggja stiga skot úr jafn-
mörgum tilraunum á móti KR er
ekki eitthvað sem maður hefði reikn-
að með fyrir leikinn. Ég hefði alveg
fyrirgefið honum ef hann hefði
brennt af einu skoti. Dupree hitti á
fantagóðan leik á móti KR. Hann
hefur mikla trú á því sem hann er að
gera og sjálfstraustið er í botni hjá
honum. Líkamlega formið á honum
er frábært og þeir hæfileikar sem
hann hefur yfir að ráða nýtast okkar
spræka liði afar vel. Það má segja að
hann sé svona nett ofvirkur. Hann er
manna harðastur í vinnunni í eldhús-
inu hjá IGS og þegar það er róleg æf-
ing daginn fyrir leik þá vill hann vera
á fullu. Hann er flott fyrirmynd og
hann er þannig leikmaður sem allir
þjálfarar elska að hafa í sínu liði,“
sagði Einar.
Körfubolti: Bestur í 7. umferð
Prímusmótorinn í liðinu
Reggie Dupree hefur spilað afar vel með Keflvíkingum á leiktíðinni
Leikmaður sem allir þjálfarar elska að hafa í sínu liði, segir Einar Einarsson
Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson
Stórleikur Reggie Dupree með boltann í sigurleiknum gegn KR-ingum þar
sem hann skoraði m.a. úr öllum fimm þriggja stiga skotum sínum.