Víkurfréttir - 15.04.1987, Side 16
ViKurt
16 Miðvikudagur 15. apríl 1987
Grindavík
ORLOFSHÚS
Orlofshús Verkalýðsfélags Grindavíkur á
Akureyri verðurtil leigu ísumarfyrirfélags-
menn.
Tekið er á móti umsóknum frá 15. apríl til
15. maí n.k.
ATH. Þær umsóknir sem þegar hafa borist
og berast fyrir 15. apríl, þurfa að endurnýj-
ast. Að öðrum kosti verða þærekki teknar
til greina.
Til að koma sem flestum að verður húsið
opnað 1. júní n.k. til móttöku.
Leiga fyrir hverja viku er 2.500 kr., sem þarf
að greiða við úthlutun.
F.h. Verkalýðsfélags Grindavíkur
Orlofsnefnd
Félagasamtök
í Keflavík
sem áhuga hafa á að standa fyrir skemmt-
unum 17. júní, sendi fulltrúa til viðtals við
þjóðhátíðarnefnd í fundarsal bæjarskrif-
stofu Keflavíkurbæjar, Hafnargötu 12, mið-
vikudaginn 22. apríl kl. 17.30.
Þjóðhátíðarnefnd
Útivistartími
barna
Samkvæmt lögum um útivistartíma barna
á tímabilinu 1. maítil 1. september, er börn-
um 12 ára og yngri ekki leyfilegt að vera á
almannafæri eftir kl. 22 nema í fylgd með
fullorðnum.
Sömuleiðis er börnum yngri en 15 ára
óheimil útivist eftir kl. 23, nema í fylgd með
fullorðnum eða á heimleiðfrá viðurkenndri
æsku lýðsstarfsem i.
Barnaverndarnefnd Keflavíkur
~^\ KEFLAVÍK
ll^ Gæsluvellir
Gæsluvellir Keflavíkurbæjar við Miðtún,
Ásabraut, Baugholt og Heiðarból, verða
opnir á tímabilinu 2. maí til 15. september
kl. 9-12 og 13-17. Vellirnir verða opnir alla
virka daga nema laugardaga.
Félagsmálastofnun Keflavíkurbæjar
Minning:
Arnbjörg Sigurðar
dóttir, Kefiavík
Fædd 1. september 1934
Dáin 6. apríl 1987
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð ^
Hún hét Ambjörg en var þekkt-
ari undir nafninu Adda í Bárunni.
Foreldrar hennar voru Sigrún
Hannesdóttir og Sigurður J. Guð-
mundsson bifreiðastjóri en þau
eignuðust 8 böm sem komust til
fullorðinsára og var Adda næstelst
þeirra. Sigurður faðir hennar er
látinn fyrir 22 ámm, en Sigrún lif-
ir dóttur sína. Það kom engum á
óvart sem fylgst hafði með veikind-
um hennar, þótt dauðann bæri að
garði. En það kom mér á óvart
hversu mikið sálarþrek og stillingu
hún sýndi þegar ljóst var að hún
væri haldin ólæknandi sjúkdómi og
dauðinn var ekki langt undan. Það
gætu allir dregið mikinn lærdóm
af því að fylgjast með slíku.
Þar sem Adda var sjúkraliði
þekkti hún sjúkdóm sinn og tók
mótlætinu með þvflíkri reisn að
lengi verður f minnum haft. Hún
bognaði aldrei, hún féll til foldar
með sóma. Ég tengdist Öddu fyrir
rúmum aldarfjórðungi og því veit
ég að líf hennar var litríkt, og eng-
in lognmolla var henni að skapi.
Hún giftist ung Björgvin Guð-
mundssyni og átti með honum 8
böm. Þau bjuggu lengst af á Hring-
braut 64 í Keflavík, en þau slitu
samvistir.
Þegar ég læt nú hugann reika
til baka ber hæst minninguna um
það þegar hún veiktist af krabba-
meini aðeins 29 ára gömul og með
öll bömin 8 innan við fermingu,
yngsta 3 mánaða. Þá var Adda
mjög hætt komin, en hún fékk 23
ár í viðbót á meðal okkar. Mér seg-
ir svo hugur að um þær mundir
hafi lífið hjá henni verið þrotlaus
vinna, harka við sjálfa sig og ekki
síst umhyggja fyrir öðmm.
Hún komst í gegnum móður-
hlutverkið með dugnaði og seiglu.
Bömin hennar hafa öll komist vel
til manns og gengið menntaveginn
og sum þeirra em enn f skóla. Adda
var tvígift. Með seinni manni sínum,
Vilhjálmi Sigurlinnasyni, bjó hún í
Svfþjóð um árabil, þar sem þau
gengu bæði menntaveginn, hún
lærði til sjúkraliða en hann er hjúkr-
unarfræðingur. Það má nærri geta
að það þarf dugnað til að drffa sig
í nám eftir að hafa alið upp 8 böm.
Maðurinn minn, sem er elsti
bróðir hennar, og ég og sonur okk-
ar, Einar, vomm þess aðnjótandi
að vera gestir þeirra í Svfþjóð 1981
og eigum við yndislegar minningar
um það. Það var stór veisla allan
tímann, því Adda var snillingur í
matargerð og allt sem hún bar fram
var til fyrirmyndar. Oft er minnst
á steikta fískinn hennar sem á eng-
an sinn líka. Það lék allt í höndunum
á Öddu, hvort sem það var að sauma
eða ptjóna.
Ég minnist þess að á þessum tíma
var hún að ptjóna peysur og selja
og sagði hún mér að þá peninga
notaði hún til að borga símreikninga
vegna þess að hún vildi halda sam-
bandi við bömin, sem vora ýmist í
Danmörku, Svíþjóð eða á íslandi.
Ekki gleymist f minningunni
hversu smekklega hún bjó heimili
sitt hvar sem hún bjó. Það var allt-
af hreint og fágað í kringum hana.
í Svíþjóð hafði hún mikið af heima-
unnum hlutum og man ég hvað hún
var stolt þegar hún sýndi mér
smíðahlutina sem hún smíðaði og
sagði um leið, „hvað ætli Diddi
bróðir segi um þetta,“ en hann er
smiður.
Hún þurfti eflaust oft að vinna
úr litlu og hefur ábyggilega þurft
\jutU%
að halda vel á til að láta enda ná
saman en á ytra borði virtist manni
allt vera leikur hjá henni.
Sl. haust flutti Adda heimili sitt
til Reykjavíkur og auðnaðist henni
ekki að njóta þess fallega heimilis
sem hún hafði búið sér af mikilli
smekkvísi.
Minning Öddu lifir um ókomin
ár í afkomendum hennar sem em
orðnir margir. Adda var þakklát
öllum sem heimsóttu hana í veikind-
um. Ég held að ekki halli á neinn
þó ég segi að traust sitt lagði hún
í miklum mæli á Lilju sem var allt-
af litla systir hennar og var
aðdáunarvert hvað Lilja reyndist
henni vel þar til yfir lauk.
Að endingu vil ég votta öllum
ástvinum hennar samúð mína og
flölskyldu minnar. Sérstakar þakkir
em frá Ingu Benný sem býr í Stokk-
hólmi. Sérstaka samúð vottum við
móður hennar sem vakað hefur yfir
velferð hennar og beðið fyrir henni.
Bömunum hennar sem vöktu yfir
banabeði hennar til skiptis. Villa,
sem hún treysti mikið á í veikindun-
um, og við þau vil ég segja orð
spámannsins Kahlil Gibran: „Þegar
þú ert sorgmæddur skoðaðu þá aft-
ur huga þinn, og þú munt sjá að
þú grætur vegna þess, sem var gleði
þfn.
Að endingu
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Stella mágkona
Kátir krakkar í Vogum
Þessir krakkar eiga heirna í Vogunum og stunda nám í bamaskólanum þar. Um síðustu
helgi var glatt á hjalla hjá krökkunum, því þá voru þau með „opið hús“. Ljósmvndari
Víkur-frétta átti leið um og tók þá þessa mynd af glaðværum hópi sem var að leika
borðtennis.