Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 30.04.1987, Page 4

Víkurfréttir - 30.04.1987, Page 4
mm 4 Fimmtudagur 30. apríl 1987 4*MU ___________________________________Orðvar_____ Nú eru það menn en ekki málefni . . . Steingrímur Hermannsson kom, sá og sigraði. Hann einn jók fylgi B-iistans í kjördæm- inu um rúm 100%. Án þess að blása úr nös kippti hann, öllum á óvart, Jóhanni Einvarðssyni með sér inn á alþing. Ef þing- menn annarra fiokka í kjör- dæminu vakna ekki upp af dval- anum á þessu kjörtímabili, má búast við að Framsókn komi hér að 4 mönnum í næstu kosning- um. Þetta er all svakaleg en eðlileg staðreynd.. Allt flokkakerfi, sem við- gengist hefur á íslandi sl. 50 ár, er að riðlast. Sá stjórnniála- flokkur, sem fyrstur áttar sig á breytingunum og samlagast þeim, verður sigurvegarinn. Kosningarnar nú og væntan- lega í framtíðinni munu fvrst og fremst snúast um menn, en ekki flokka, samanber Steingrím, Stefán Valgeirsson, Albert Guðmundsson og Halldór Ás- grímsson. Hver ætlar að halda því fram að raunverulegir fram- sóknarmenn í Reykjaneskjör- dæmi séu á áttunda þúsund? Raunasögu sjálfstæðismanna þarf ekki að rekja, en úrslit kosninganna sýna að siðferðis- hugsjón Þorsteins Pálssonar, hvernig sem menn skilja hana, felldi Sjálfstæðisflokkinn og ríkisstjórnina. Albert Guðmundsson fékkað Til sölu Toyota Hi-lux (langur) árg. 1980, bensín. - Ýmsir auka- hlutir. Til sýnis og sölu í Daihatsu- salnum í Njarðvík. Helgarvinna Starfskraftur óskast í hlutastarf í móttöku á kvöldin og um helgar. Þarf að geta unnið sjálfstætt. Nafn, aldur og fyrri störf leggist inn á skrif- stofu Víkur-frétta. Bókhaldari Óskum eftir góðum starfskrafti við færslu bókhalds hálfan eða allan daginn. Þarf að vera vanur bókhaldsvinnu. Umsóknir sendist á skrifstofu Víkur-frétta merkt „Bókhald". ATVINNA Næturvörður óskast til starfa í sumar frá mánudegi til föstudags. Þarf að geta byrj- að sem fyrst. Skriflegar umsóknir sendist á skrifstofu Víkur-frétta, merkt „Atvinna". 7/7 hamingju með daginn. NAUÐUNGARUPPBOÐ annað og síðara á fasteigninni Lóð i Hvassahraunslandi, þingl. eig. þrotabú Stálfélagsins hf., fer fram í skrifstofu em- bættisins, Vatnsnesvegi 33 í Keflavík, miðvikud. 6. maí kl. 16.30. - Uppboðsbeiðandi er:-Jón Þóroddsson hdl. Bæjarfógetinn í Keflavik, Grindavík og Njarövik Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu vissu leyti uppreisn æru með sigri Borgaraflokksins, en telja verður Hkiegt að það séu einnig endalok flokksins. Trúlega sam- einast hann öðrum flokk við næstu kosningar. Alþýðuflokkurinn stendur í stað, liann hcfur nú fengið sin atkvæði til baka frá Bandalagi jafnaðarmanna. Stcfnuléysi og sambands- leysi Alþýðubandalagsins við alþýðuna og láglaunastéttirnar kemur hvergi skýrar fram en í kosnmgaúrslitunum. Þeir tapa fylgi í hverju einasta kjördæmi á landinu. Kvennalistinn er fyrirbrigði, sem vekur verðskuldaða heims- athygli. Þeirra sigur var sann- gjarn og glæsilegur. Baráttu- málið er eitt,jafnrétti. Þær hafa vcrið hávaðasatnar um að konur agttu rétt til þingsetu, lengri fæðingarorlofs, hærri fæðingarstyrk, fleiri vöggustof- ur og dagheimili. Málefni, sem karlmenn hafa lítinn áhuga sýnt. En styrkur Kvennalistans liggur auðvitað fyrst og fremst í því að þær liafa átt áberandi og skynsama fulltrúa á Alþingi, fram að þessu alla vega. Allt er á huldu í stjórnar- myndunarbrölti formannanna. Fjölmiðlar segja að Jón Baldvin og Þorsteinn þreifi á Kvenna- listakonum þessa dagana, hvað sem við er ált með þvi. Trúlega eru þær of slcipar til að láta glepjast af ráðherrastólunum. Vafasamt er að spá i ríkisstjórn- ina tilvonandi, allt getur skeð. Steingrímur og Þorsteinn hafa þó alitaf eitt tromp á hendinni. Þeir vita að kratarhorfa stjörf- um augum á ráðherrastólana, enda er þeim orðið mál að sctjast í þá. Og fróðlegt verður að sjá, hvað eftir verður af- stefnuskrá þeirra þegar þeir setjast. Kosningahriðin var furðuleg og einstök, enda spilaðist úr henni eins og efni stóðu til. Einn sjálfstæðismaður sagði rétti- lega, eftir að líða tók á kosn- inganóttina: „Þetta spil erekk- ert að marka, það var vitlaust gefið'*. Hver gaf? Bílbeltið bjargaði í fyrsta árekstrinum Fyrsti áreksturinn á nýja Flugstöðvarveginum lét ekki á sér standa og daginn eftir vígsluathöfnina 15. apríl varð hörkuárekstur við Grænásbrekkuna. Þar skullu saman tveir bílar, annar ók eftir nýja veginum en hinn kom Grænásveginn þar sem stöðvunarskylda er. Af einhverjum orsökum áttaði ökumaðurinn sig ekki á stöðvunarskyldunni sem ekki hafði verið þar fyrr og ók beint á hinn bíl- inn. Sá valt og skemmdist mikið. Talið er að bílbeltið hafi bjargað ökumanni bif- reiðarinnar, sem valt, frá alvarlegum meiðslum. Lögreglan á Keflavíkur- flugvelli fékk mál þetta til meðferðar en nú hafa lög- reglustjórarnir í Keflavík og á Keflavíkurflugvelli komið sér saman um að lögreglan í Keflavík gæti vegarins hér eftir og nær yfirráðasvæði hennar að Sandgerðisafleggjara. Ljósm.: bb. Flugstöðvarvegur: Virðið hraðatakmarkanir Sem kunnugt er standa enn yfir framkvæmdir og frá- gangur við hinn nýja flug- stöðvarveg eða Ofanbyggð- arveg eins og margir kjósa að kalla veginn. Að sögn þeirra aðila sem að framkvæmdum þessum standa hafa skapast margvísleg vandkvæði vegna þess að vegfarendur hafa hvorki virt hraðatakmarkan- ir né aðvörunarmerkingar. Eitt besta dæmið þar um er atvik það er vörubíllinn fór nánast á hliðina. En frá því atviki var greint í síðasta blaði og sagt að vegkantur hafi gefið sig. Forráðamaður við verkið sagði í sambandi við þetta að viðkomandi ökumaður hafi ekki virt vegavinnumerki né aðvörunarmerki á vinnuvél þeirri sem var að störfum þarna, heldur hafi hann troð- ið sér framhjá tækinu með fyrrgreindum afleiðingum. Um það hvers vegna bíll- inn fór nánast á hliðina sagði viðkomandi að orsökin hefði verið sú að hann var kominn út fyrir öxlina og því út á væntanlegt sáningarsvæði. Er því sökin fyrst og fremst hjá bílstjóra vörubílsins. Vegna þessa er þeirri áskorun hér með komið á framfæri að menn virði hraðatakmarkanir og aðrar merkingar á veginum, því enn á mikið eftir að vinna við hann áður en yfir lýkur. M.a. er hinn mikli hraði ökutækja um þennan kafla áhyggju- efni þeirra sem að störfum eru þarna.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.