Víkurfréttir - 03.03.1988, Side 10
viKun
10 Fimmtudagur 3. mars 1988
julUi
Frítt ^
videotæki
í viku!
Þú þarí't ekki að leigja
nema eina spólu á dag.
PHOENIX-VIDEO
^ S. 14822
FRÁBÆRAR
FERMINGAR-
GJAFIR í
Frístund
Mollsgölu 26 - Njarðvík - Sínii 12002
Fjölmenni fylgdist með
keppninni í Stapa.
„Ég tel ekki
ástæðu til að
stofna þjðð-
inni í hættu"
„...Sagan hefur sannað að
hlutleysið er handónýtt og vita
gagnslaust. Við þurfum ekki
að líta lengra en til Svíþjóðar,
sem er hlutlaust land, en fær
sovéska kafbáta í heimsókn
oft á ári. Eg tel ekki ástæðu til
þess aðstofna þjóðinni í hættu,
þótt svo að nokkrir mislyndir
herstöðvarandstæðingar geri
allt sem í þeirra valdi stendur
til þess að rífa burt öryggi
þjóðarinnar..."
Þessi orð Jóhanns Björns-
sonar í ræðukeppni fram-
haldsskóla, MORFÍS, hafa
greinilega ekki hrifið dómara
keppninnar, því Fjölbrauta-
skólinn í Garðabæ hreinlega
burstaði FS í keppninni á
föstudagskvöldið í Stapa.
Mismunur á liðunum var
145 stig, sem var 5,39% af
heildarstigagjöf. Það lið sem
vann hlaut 1416 stig en FS
fékk 1271 stig. Ræðumaður
kvöldsins hlaut 509 stig og
var það Sigmar Guðmundsson
úr FG. Þá er bara að vona að
okkur gangi betur á næstu
önn.
DAVÍÐ ÓLAFSSON:
„. . . Hver á að vernda íslcnska
lofthelgi eftir að herinn er far-
inn? Flugvél flugmálastjórnar?"
unu tölvuvindan
veiðir fyrir þig
DNG tölvu-
vindan er
óþreytandi
vinnukraftur,
algjör sjálf-
virkni með tölvu
stýringu eykur hraða og
sparar ómælda vinnu.
Þjónustu-
aðilum
DNG fjölgar
sífellt um
allt land.
Kappkostað
er að hafa
þjónustuna mjög góða.
DNG tölvuvindan er
byggð úr seltuþolnu áli
og ryðfríu stáli.
Stjórnkerfið er þakið
plastefni til varnar
titringi, höggum og raka.
Vindan er þrýstiprófuð í
vatni áður en hún fer frá
verksmiðju, þannig er
tryggt hámarks öryggi
og lágmarks viðhald.
Það er á færi flestra að
eignast það besta, DNG
tölvuvindu, því við
bjóðum góð greiðslukjör
og kaupleigusamninga.
Óseyri 4, Akureyri. Pósthólf 157
JÓN PÁLL EYJÓLFSSON:
„ . . . Maður stendur ekki við
hengillug og sefur".
JÓHANN BJÖRNSSON:
„ . . . Og ég treysti mér ekki til
að snúa baki við vinaþjóðum
okkar í Atlantshafsbandalag-
inu“. Ljósm.: hbb.
Innbrot
Um síðustu helgi var
brotist inn í viðbyggingu
Grunnskóla Njarðvíkur.
Talsverðar skemmdir voru
unnar, auk þess sem ein-
hverju var stolið. Er málið
nú í rannsókn.