Víkurfréttir - 03.03.1988, Qupperneq 21
\)iKun
juiUt
Njarðvík-
ingar
steinlágu
í Eyjum
Njarðvíkingar höi'ðu lítið í
Eyjantenn að segja er liðin
áttust við í Eyjum á laugar-
dag. ÍBV sigraði 34:22 eftir
að hafa leitt í leikhléi 14:10.
Leikurinn var jafn framan
af og Njarðvíkingar náðu að
hanga i Eyjapeyjum framan
áf og í byrjun seinni hálfleiks,
en síðan ekki söguna meir.
Arinbjörn Þórhallsson og
Pétur Ingi Arnarson skor-
uðu mest fyrir UMFN, 6
ntörk hvor.
Stefán Arnarson, Reynismaður, brýst inn af línu og skorar eitt
ntarka sinna gegn Árntanni. Ljósm.: hbb.
Reynismenn kallaðir úr sturtu
Reynismenn mörðu sigur
gegn Armanni í leik liðanna í
2. deild handboltans, í Sand-
gerði á föstudagskvöldið.
Lokatölur urðu 23:22 eftir að
gestirnir höfðu leitt í leikhléi
13:14.
Leikurinn var allan tím-
ann i járnum. Reynismenn
náðu 3ja marka forystu í
byrjun, en Armenningar,
sem eru í neðri hluta deildar-
innar, sóttu í sig veðrið og
náðu að komast yfir fyrir
leikhlé. I seinni hálflei k
skiptust liðin á að hafa
forystu, þó heimamenn hafi
oftar haft frumkvæðið. Það
var svo Páll Björnsson sem
sveif inn úr horninu á loka-
mínútunni og skoraði sigur-
mark Reynis.
Þegar dómarar leiksins,
þeir Jón Kr. Magnússon og
Hermann Hermannsson úr
Keflavík, flautuðu leikinn af,
mótmæltu Armenningar og
töldu leiktímann ekki vera
búinn. Um 10 mín. síðar
þegar Reynismenn voru
flestir komnir í sturtu, köll-
uðu dómarar liðin út á
völlinn aftur og Armenning-
ar tóku aukakast frá miðju
vallarins. Þeim tókst ekki að
skora úr því og sigurinn varð
því Reynismanna. Vakti
þessi ákvörðun dómaranna
athygli, því þeir höfðu áður
flautað leikinn af.
markahæstir Reynis í þess-
um leik voru Willum Þór (6),
Stefán A. (5), Páll Bj. (4),
Sigurþór Þórarinsson (4),
Elvar G. (2) og Hólmþór og
Viðar H. 1 hvor.
Suðurnesja-
golfarar
léku með
þekktum
breskum
kylflngi
- og sigruðu
á PRO-AM
golfmóti
á Spáni
Suðurnesjaliðið á Spáni. F.v.: Pétur Antonsson, Brian Waites,
Sigurgeir Guðjónsson og Jóhann Benediktsson.
„Það er mikil upplifun að spila með svona kappa. Hann er
geysilega þekktur og virtur í golfheiminunt1*, sagði Jóhann
Benediktsson, kylfingur úr GS, sem tók þátt í tveimur PRO-AM
golfmólum á Spáni ásamt þeim Pétri Antonssyni og Sigurgeir
Guðjónssyni úr Golfklúhb Grindavíkur. Þeir félagar voru með
einum kunnasta kylfingi Breta, Brian Waites, í liði og kepptu
með honum í tveimur mótum. PRO-AM golfmót eru þannig að
það er keppt í 4ra manna liðum með þremur áhugamönnum og
einunt atvinnumanni.
Fyrra mótið fór fram
dagana 7.-14. febrúar og
gerði „íslenska** liðið sér lítið
fyrir og sigraði í því á 543
höggum. Leiknar voru 72
holur með punktakeppnis-
fyrirkontulagi. Þeir félagar
kepptu aftur á öðru móti
vikuna á eftir og lentu þá í 4.
sæti á 546 höggum.
Auk liðakeppninnar
keppa atvinnumennirnir sín
á milli. Félagi Suðurnesja-
mannanna, Brian Waites,
lenti í 1.-2. sæti í fyrri keppn-
inni á 289 höggum, en í 8.
sæti í þeirri seinni á 295
ltöggum. Brian þessi er af
flestum taiinn einn kunnasti
kylfingur Breta og var m.a. í
Evrópuúrvalinu árið 1983
gegn Bandaríkjamönnum,
þá 43 ára. I seinni keppninni
á Marbella voru tveir Bretar
úr Evrópuliðinu sem sigruðu
Bandaríkjamenn sl. haust.
Það voru þeir Eamon Darcy,
en hann sigraði í keppninni á
281 höggi, og Howard
Clark, sem endaði í 3. sæti.
Báðir eru þeir nú meðal 10
bestu kylfinga á Bretlands-
eyjum.
Þarna var einnig John
Garner meðal þátttakenda,
en hann hefur verið ráðinn
þjálfari íslenska golflands-
liðsins í sumar.
A Marbella á Spáni eiga
margar stórstjörnur heima.
Meðal þeirra sem Suður-
nesjamennirnir hittu var
enginn annar en Kevin
Keegan, einn frægasti knatt-
spyrnumaður Englendinga
og lék lengst af með Liver-
pool, en hætti knattspyrnu-
iðkun aðeins þrítugur að
aldri. „Keegan spilaði þarna
á hverjum degi og gerir ekk-
ert annað, enda er hann að
verða toppgolfari, þó hann
sé ekki á leið í atvinnu-
mennsku. Hann er kominn
niður í 4 í forgjöf og sagðist
ætla niður í núll“, sagði Jó-
hann.
Fimmtudagur 3. mars 1988 21
Dúbl í
horn!
Billiard
(snóker) er
skemmtileg
íþrótt sem
allir geta
leikið, ungir
sem eldti. Leiðbeinendur
ef óskað er. Sjö 12 feta borð
og kjuðar fyrir alla.
OPIÐ
alla daga
frá kl.
11.30-23.30.
Pantið tíma
eða komið.
Knattborðsstofa Suðurnesja
Grófinni - Keflavík - Sími 13822
Atvinna
í boði
Framkvæmdastjóri
Knattspyrnuráð Keflavíkur óskar eftir að
ráða framkvæmdastjóra í fullt starf. Þarf að
hefja störf fljótlega.
Umsóknirsem innihalda helstu upplýsing-
ar, sendist í pósthólf 122, merkt „Atvinna í
boði“, fyrir 10. mars 1988.
Knattspyrnuráð Keflavíkur
AÐALFUNDUR
Iðnþróunarfélags
Suðurnesja
verður haldinn í fundarsal félagsins að
Vesturbraut 10a, Keflavík, laugardaginn
5. mars 1988 og hefst kl. 13.30.
Félagar, mætið vel og stundvíslega.
GtMHfG „ , ..
RFDA Helgarfjor
Glaumbergi
SKEMMTISTAÐUR
Ji8 t a |
Opið föstudags- og laugardagskvöld frá kl. 22-03. - Hljómsveit Grétars Örv- arssonar leikur fyrir dansi.
SJAVARQULLID V RESTAURANT Opið föstudag og laugardag frá kl. 18.30. - Borðapantanir i síma 14040. Matargestir greiða ekki aðgangseyri i Glaumberg.