Víkurfréttir - 11.08.1988, Blaðsíða 10
\)iKun
10 Fimmtudagur 11. ágúst 1988
Fimmtudagur 11. ágúst 1988 11
l'BÚÐIR ALDRADRA, KIRKJUVEGI 11, KEFLAVÍK. AFHENTAR EIGENDUM SÍNUM SL.LAUGARDAG
„Fannst eins og við
værum á hóteli'
- segja þau Guðrún Sigurðar-
dóttir og Þórólfur Sæmundsson
„Fyrsta nóttin var alveg
prýðileg. Við sofnuðum þreytt
eftir að hafa flutt inn og vökn-
uðum úthvíld," sögðu þau
Þórólfur Sæmundsson og
Guðrún Sigurðardóttir er
Víkurfréttir litu inn til þeirra í
nýja og glæsilega íbúð að
Kirkjuvegi 11. Tilgangurinn
með heimsókninni var að for-
vitnast um það hvernig fyrsta
nóttin hefði verið á nýju heim-
ili. „Þegar við vöknuðum
fannst mér eins og við værum
á hóteli og þyrftum ekkert
annað en að fara niður í morg-
unmat,“ sagði Þórólfur.
-En hvernig líst þér á hús-
ið?
„I einu orði sagt er þetta
alveg frábært. Ég átti ekki
eftir að ímynda mér að við
hjónin ættum eftir að koma í
svona íbúð á ævinni. Ég held
að fólkið sem býr hér megi
vera þakklátt fyrir að búa í
svona glæsilegu húsnæði og
því á eftir að líða vel það sem I Þórólfur Sæmundsson að
það á eftir af ævinni,“ sagði I lokum.
ÞÓRÓLFUR SÆMUNDSSON OG GUÐRÚN SIGURÐAR-
DÓTTIR voru meðal þeirra fimm fyrstu er fluttu inn í hinar glæsi-
legu íbúðir aldraðra að Kirkjuvegi 11 í Keflavik strax eftir afhend-
ingu íbúðanna.
Fjöldi gesta var viðstaddur at-
liöfn er fram fór við afhendingu
hússins.
Ljósmyndir:
epj. og hbb
Ættingjar hófust strax
handa við flutning húshúnaðar.
Hið nýja húsnæði aldraðra
að Kirkjuvegi 11 í Keflavík var
aflient við formlega athöfn síð-
asta laugardag. Við athöfnina
fluttu ræður Hannes Ragnars-
son, forpiaður byggingar-
nefndar, Askell Agnarsspn frá
Húsagerðinni, séra Ólafur
Oddur Jónsson og Guðfinnur
Sigurvinsson, bæjarstjóri, sem
afhenti hverjum handhafa
íbúðanna lykla að þeim.
Við ræðuhöldin kom fram
að flestir þeir sem áttu aðild að
byggingu þessari voru heima-
menn, bæði núverandi ogfyrr-
verandi, og er verkið þeim öll-
um til mikils sóma. Er hús
þetta hið fyrsta sinnar tegund-
ar sem sótt var um lán til hjá
Húsnæðisstofnun, fyrsta sem
Guðfinnur Sigurvinsson, forseti bæjarstjórnar, afhendir fvrstu lykl-
ana er komu í hlut Ágústu Ágústsdóttur og Stefáns Egilssonar.
byrjað var á eftir umræddum
reglum og um leið það fyrsta
sem tekið var í notkun.
Fjöldi gjafa barst til hússins,
m.a. 21 málverk frá hópi Bað-
stofufólks. Prýða verk þessi
sameign hússins. Einnig bár-
ust gjafir og kveðjur frá mörg-
um fyrirtækjum og einstakl-
ingum.
Kom það í hlut hjónanna
Ágústu Ágústsdóttur og Stef-
áns Egilssonar að veita fyrstu
lyklunum viðtöku og síðan
voru hinar 18 íbúðirnar af-
hentar hver á fætur annarri.
Strax að athöfninni lokinni
fluttu fyrstu íbúarnir inn og
var sofið í 5 þeirra strax fyrstu
nóttina.
Hannes Ragnarsson, formaður bygginganefndar, veitir viðtöku
gjafabréfi Baðstofufólks um 21 málverk, úrhendiÁstu Arnadóttur.
„Hér er allt svo rólegt"
„Hún var Ijómandi góð,“
sagði Georg Helgason er blm.
Víkurfrétta gerði innlit í íbúð-
ina hans og spurðist fyrir um
það hvernig fyrsta nóttin hafi
verið á nýju heimili.
„Hér var allt svo rólegt.
Menn voru að flytja hér langt
fram eftir kvöldi en ég held
að fáir hafi verið hér yfir
nóttina. Ég og konan mín,
Jóhanna Friðriksdóttir, vor-
um komin hér inn með
megnið af dótinu aðeins
tveim tímum eftir að fundin-
um lauk niðri,“ sagði Georg.
-Hvernig líst þér á hús-
næðið?
„Mér finnst þetta mjög
smekklegt og vel frá öllu
gengið, eins vel og hægt var
að búast við,“ sagði Georg
Helgason að endingu.
GEORG HELGASYNI fannst rólegt í nýju húsakynnunum en
hann er meðal frumbyggja þess.
Hannes Ragnarsson ávarpar
hátíðargesti.
Núverandi og fyrrverandi bæjarstjóri Keflavíkur voru viðstaddir.
Með þeim á myndinni sjást Hermann Ragnarsson og Oddgeir Pét-
ursson.
Opnum aftur
á mánudag
eftir sumarfrí
Opnum aftur n.k. mánudag
15. ágúst eftir sumarfrí.
Líkams- og partanudd fyrir
alla.
Andlits- og fótsnyrting.
Óskum að ráða snyrti-
fræðing og nuddara til
starfa.
SNYRTI- OG NUDDSTOFA
Hafnargötu 35 - Keflavik - Simi 14108